Austurglugginn


Austurglugginn - 06.09.2007, Blaðsíða 4

Austurglugginn - 06.09.2007, Blaðsíða 4
4 AUSTUR • GLUGGINN Fimmtudagur 6. september 47 starfsmenn munu vinna við slátrun Sláturtíðin hafin á Vopnafirði Fyrstu dilkar sláturtíðarinnar hanga. Mynd: Bjarki Björgólfs Fljótsdalshérað: j Vilja ekki sjá rautt Kaupfélag Héraðsbúa sótti um undanþágu frá skilmálum deiliskipulags fyrir lóðina Sól- vangur 7 á Egilsstöðum vegna lits á þaki. A lóðinni rís versl- unarhúsnæði ætlað undir rekstur Húsasmiðjunnar. Kaupfélagið óskaði eftir að hafa þakið rautt á litinn. Því hafnaði Skipulags- og byggingarnefnd Fljótsdals- héraðs og vísaði í skilmála deiliskipulags fyrir lóðina. Málefni erlendra starfsmanna Krafðist fundar eftir rútuslysið Ögmundur Jónasson í Vinstri Grænum og fulltrúi þeirra í félags- og tryggingamálanefnd Alþingis, kraðist þess á seinasta miðvikudag að nefndin yrði kölluð saman til að fjalla um brotalamir á eftirliti með réttar- stöðu erlendra verkamanna á íslandi. Þetta gerði hann í framhaldi af fregnum um rútuslysið í Bessa- staðaíjalli og þeirri staðreynd að fjöldi farþega í rútunni var óskráð erlent vinnuafl. Framsóknarflokkurinn Kjördæmisþing verður haldið á Raufarhöfn Framsóknarflokkurinn hefur tilkynnt um kjördæmisþing flokksins í Norðausturkjör- dæmi. Þingið verður haldið á Raufarhöfn laugardaginn 29. september næstkomandi. Dag- skrá liggur ekki fyrir, en verður tilkynnt síðar. Sjávarútvegs- ráðuneytið gaf út loðnukvóta Loðnuveiðar verða heimilar 1. nóvember 2007 samkvæmt ákvörðun Sjávarútvegsráðu- neytisins í síðustu viku, sem tekin er samkvæmt tillögu Hafrannsóknarstofnunar. Bráðabirgðakvóti fyrir kom- andi vertíð er 205 þúsund tonn og er hlutur íslenskra fiskiskipa því 145 þúsund tonn miðað við ákvæði samninga um nýtingu loðnustofnsins. Við ákvörðunartökuna er miðað við að heildarkvóti vertíðarinn- ar veröi 308 þúsund tonn. Gangi það eftir eykst kvóti íslenskra loðnuskipa um 100 þúsund tonn. Loðnukvótinn er gefmn út með fyrirvara um að loðnurann- sóknir á komandi hausti gætu breytt leyfilegu heildarmagni. EBÞ s_________________________y í seinustu viku hófst sláturtíðin formlega á Vopnafirði þegar fyrstu dilkunum var slátrað þann 30. ágúst. Ekki er ætlunin að slátra af fullum þunga fyrstu dagana meðan menn og tækjabúnaður slípast til. í tilkynningu frá Fljótsdalshéraði segir að 30. ágúst hafi samkomulag milli Brunavarna á Austurlandi og Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna um launa- greiðslu til slökkviliðsmanna á svæði Brunavarna á Austurlandi verið undirritað og að með sam- komulaginu dragi slökkviliðsmenn á Héraði uppsagnir sínar til baka. Náðu í megindráttum fram sínum kröfum Vernharð Guðnason formaður Landssambands Slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna segir að menn séu ánægðir með að sam- komulagið sé í höfn og nú sé hægt að vinna að því að gera gott slökkvilið enn betra. “Við náuin í megindráttum fram okkar kröfum vegna greiðslna fyrir bakvaktir, þótt auðvitað sé það alltaf þannig í viðræðum af þessu tagi að ekki nást fram ýtrustu kröfur aðila.” sagði Vemharð. Hugmyndir um atvinnuslökkvideild I samkomulaginu kemur fram að slökkviliðsmönnum er kunnugt um að uppi eru hugmyndir um stofnun atvinnuslökkvideildar á Fljóts- dalshéraði. í þeim efnum eru í gangi viðræður við Flugstoðir ehf., Landsvirkjun, Landsnet og Heil- brigðisstofnun Austurlands. Komi Þegar allt verður komið á full afköst er gert ráð fyrir því að slátra tæpum 800 dilkum á dag af svæðinu frá Borgarfirði Eystra til Bakkaljarðar. Fjörtíu og sjö starfsmenn starfa við Sláturhúsið á Vopnafirði þessa til stofnunar slíks liðs fyrir lok þessa samkomulags er aðilum Ijóst að taka þarf upp samninga áður en samkomulaginu lýkur. Unnið að bættum starfsanda Aðilar eru sammála um að grund- völlur samkomulagsins er að vinna Á heimasíðu Fjarðabyggðar kemur fram að undanfarið hefur staðið yfír námskeið fyrir sjúkraflutninga- menn í Fjarðabyggð. Námskeiðið er haldið af Sjúkraflutningaskólanum fyrir Slökkvilið Fjarðbyggðar en einnig sitja það starfsmenn frá Sec- uritas og Alcoa. Að námskeiðinu loknu hafa allir þeir sem starfa að sjúkraflutningum fyrir Slökkvilið Fjarðabyggðar réttindi sem vertíð, langstærsti hluti starfsmann- anna er af erlendu bergi brotin. Þó starfa nokkrir Islendingar við slát- urhúsið, aðallega yfirmenn. sameiginlega að uppbyggingu öfl- ugra brunavarna á svæðinu og að þjónusta á þessu sviði verði enn betri en hún hefur verið fram að þessu. Aðilar eru einnig sammála um að beita sér fyrir bættum starfs- anda og að vinna sameiginlega að stofnun atvinnuslökkvideildar á Héraði. sjúkraflutningamenn. Það er mikil breyting frá því sem verið hefur. Slökkvilið Fjarðabyggðar tók við öllum sjúkraflutningum í Fjarða- byggð frá og með 1. júlí sl. með samningi við Heilbrigðisstofnun Austurlands og Heilbrigðisráðu- neytið. Hjá slökkviliðinu verða þar með starfandi 22 sjúkraflutn- ingamenn með full réttindi. BB Launadeila slökkviliðsmanna leyst Allt útlit var fyrir pað í seinustu viku að nær allir slökkviliðsmenn á Fljótsdalshéraði leggðu inn vaktsíma sína og fylgdu eftir uppsögnum í kjölfar launadeilna. Deilan leystist hins vegar á elleftu stundu. Mynd GG EBÞ Námskeið sjúkraflutningamanna Öðlast full réttindi

x

Austurglugginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.