Austurglugginn


Austurglugginn - 06.09.2007, Blaðsíða 8

Austurglugginn - 06.09.2007, Blaðsíða 8
8 AUSTUR • GLUGGINN Fimmtudagur 6. september Mikil barátta kom Kvennalið Hattar tapaði 4-3 gegn lið HK/Víkings í úrslitakeppni 1. deildar kvenna í knattspyrnu á laugardaginn fyrir framan um 65 áhorfendur. HK/Víkingur byrjaði mun betur í leiknum og náðu að pressa lið Hattar fram á völlinn. Fyrri hluta fyrri hálfleiks náðu HK/Víkings stelpur að læsa lið Hattar á eigin vallarhelming, sem með klókind- um þjörmuðu að liði Hattar við ófá útspörk frá markinu. Smám saman náði lið Hattar þó að vinna sig út úr þessum óþægilegu aðstæðum og skoraði Sigríður Björk Þorláksdótt- ir fyrsta mark leiksins á 34. mínútu fyrir Hött. Adam var þó ekki lengi í paradís því HK/Víkingur jafnaði aðeins mínútu síðar, staðan var því 1 -1 í hálfleik. í seinni hálfleik komu HK/Víkings stelpur virkilega öflugar til leiks og tóku völdin í Ieiknum um tíma og komust í stöðuna 4-1 á fyrstu 15 mínútum hálfleiksins. Allt útlit var fyrir að HK/Víkingur fylgdi þessu eftir og myndi valta yfir Hattarlið- ið. Hattarstúlkur náðu þó að snúa leiknum sér í vil með mikilli bar- áttu og fómfýsi. Þá færðu þær spil sitt meira út á kantana og náðu að halda boltanum meira innan liðs- ins. A 66. mínútu fékk Höttur svo víti sem Hugrún Hjálmarsdóttir skoraði ömgglega úr og minnkaði muninn í 4-2. Eftir það tók Höttur nánast öll völd á vellinum og fór svo að Elísabet Sara Emilsdóttir skoraði lokamark leiksins á 83. mínútu eftir að Höttur hafði legið í sókn. Þrátt fyrir tap í leiknum eiga Hatt- arstelpur hrós skilið fyrir að gefast ekki upp og hafa náð að snúa í veg fyrir stórtap Kvennalið Hattar gat brosað eftir að hafa minnkað muninn gegn HK/Viking Mynd: EBÞ leiknum sér í vil á ný og þannig að lagað stöðuna fyrir seinni leik liðanna sem fram fór í Kópavogi gærkvöldi, þegar blaðið var farið í prentun. Að öðrum ólöstuðum var Sigríður Björk Þorláksdóttirbest í liði Hattar, en hún vann marga bolta með mikilli baráttu og átti mikilvægar sendingar auk þess að skora. I liði HK/Víkings var Karen Sturludóttir í sérflokki, enda lék hún um völl- inn með knöttinn nánast að vild og skoraði tvö mörk. EBÞ Góður moli KFF: Skrifað undir stórsamning í Molanum Á föstudag skrifuðu Knattspyrnu- félag Fj arðabyggðar og Landsbanki Islands undir styrktarsamning sem gerir bankann að aðalstyrktarað- ila félagsins næstu þrjú árin. Það má gera a því í skóna að um sé að ræða stærsta styrktarsamning sem austfírskt íþróttalið hefur gert. I máli Jóns Bjöms Hákonarsonar hjá Landsbankanum kom fram að gaman væri að ná samningi við íþróttalið sem náð hefur svo stórstígum framförum á stuttum tíma, en í samningnum eru end- urskoðunarákvæði sem koma til ef félagið kemst upp í úrvalsdeild á samningstímanum. Það eru útibú Landsbankans í Fjarðabyggð sem ganga svo myndarlega til verks. SVARSENDING Austurglugginn ehf. Brekkugata 9 730 Reyðarfjörður Merki bankans verður á búningum meistaraflokks karla og kvenna auk 2. flokks félagsins. Bjami Ólafur Birkisson formaður KFF segir samninginn mjög mik- ilvægan fyrir félagið sem hefur komið öðrum liðum í 1. deildinni í opna skjöldu með góðri frammi- stöðu sem nýliðar í deildinni. EBÞ Vangaveltur um Eggert: Eggert þénar fyrir KFF Má setja ófrímerkt í póst Gott gengi Eggerts Gunnþórs Jóns- | sonar hjá Hearts í Skotlandi skapar i Knattspyrnufélagi Fjarðabyggðar ágætis tekjur. KFF seldi Eggert á i sínum tíma til Hearts og lék hann með ungmennaliði Hearts til að byrja með. I sölusamningi KFF og Hearts em ákvæði um að ef Eggert spili með aðalliðinu komi i til aukagreiðslur til KFF. Þannig fær KFF aukagreiðslur eftir því i sem Eggert spilar fleiri leiki fyrir Hearts. Fari svo að Eggert verði seldur til annars liðs, sem er ekki i ólíklegt fær KFF 10% af andvirði sölunnar þar sem klúbburinn er i uppeldisfélag leikmannsins. Ekki væri ólíklegt að ef Eggert færði sig um set í ensku 1. deildina væri i söluverð um 100 milljónir króna, en vitað er af áhuga leikmannsins i um að spila í þeirri deild. Hlutur KFF við slíka sölu gæti því verið um 10 milljónir króna ef Eggert ; væri seldur til Englands. 4 EBÞ

x

Austurglugginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.