Fréttablaðið - 12.10.2022, Qupperneq 4
Matarkarfan í Nettó
lækkaði um 3,3 pró-
sent.
bth@frettabladid.is
MENNTAMÁL Í gær urðu söguleg
tímamót við Háskólann á Akureyri
þegar fyrsta doktorsvörnin við skól-
ann fór fram.
Karen Birna Þorvaldsdóttir varði
ritgerð sína á heilbrigðissviði og ber
hún heitið Að skilja og mæla hindr-
anir þess að leita sér hjálpar eftir
áfall: Þróun á mælitæki með blönd-
uðum aðferðum.
Ritgerðin var unnin undir leið-
sögn Sigríðar Halldórsdóttur, pró-
fessors við Háskólann á Akureyri.
Auk hennar voru í doktorsnefnd-
inni Denise Saint Arnault, prófessor
við University of Michigan í Banda-
ríkjunum, Rhonda M. Johnson,
prófessor við University of Alaska
Anchorage í Bandaríkjunum, og
Sigrún Sigurðardóttir, dósent við
Háskólann á Akureyri.
Andmælendurnir í doktors-
vörninni voru Stefanía Ægisdóttir,
prófessor í sálfræði við Ball State
University í Bandaríkjunum, og
Maria Wemrell, dósent í lýðheilsu-
vísindum við Lunds universitet í
Svíþjóð.
Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir,
forstöðumaður Miðstöðvar dokt-
orsnáms, og Kristján Þór Magnús-
son, settur forseti Heilbrigðis-, við-
skipta-, og raunvísindasviðs, stýrðu
athöfninni. n
Fyrsta doktorsvörnin á Akureyri
benediktboas@frettabladid.is
SAMGÖNGUR „Svarbréf borgarstjóra
er dagsett 4. október, en þar eru því
miður ekki veitt nein svör við þeim
spurningum sem settar hafa verið
fram í áðurnefndum bréfum,“ segir
Salvör Nordal, umboðsmaður barna,
en henni barst loks svarbréf frá Degi
B. Eggertssyni borgarstjóra um skýr-
ingar á gjaldskrárhækkunum Strætó
bs. í tengslum við kosningaloforð um
gjaldfrjálsar strætósamgöngur fyrir
öll börn í Reykjavík.
Salvör sendi Strætó bréf 3. des-
ember þar sem óskað var skýringa
vegna nýrrar gjaldskrár, en sam-
kvæmt henni hækkaði gjald fyrir
árskort ungmenna um 60 prósent á
sama tíma og gjöld fyrir fullorðna
voru lækkuð.
Hún fylgdi því eftir með því að
senda bréf til Dags í janúar. Hún rak
á eftir svörum í september og svaraði
Dagur henni þann fjórða október en
veitti ekki fullnægjandi svör, að mati
Salvarar. n
Vonsvikin með
svarbréf frá Degi
Salvör Nordal,
umboðsmaður
barna
Tímamót hjá Háskólanum á Akureyri. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Hendrick’s
gin, 1 l,
44%
Bombay
Sapphire
1 l, 47%
Absolut
Vodka, 1 l,
40%
Stolichnaya
Vodka, 1 l,
40%
Johnnie
Walker Red
label, 1 l, 40%
Chivas
Regal, 1 l,
40%
Berlín
Kaupmannahöfn
London
Barcelona
Keflavík
Hækkun á
áfengisgjaldi *
Verð í Kef. 2023
6.524
6.509
4.450
6.107
6.999
8.209
1.210 1.293 1.100 1.100 1.100 1.100
5.583 4.790 4.099 4.599 6.890
4.290 3.690 2.999 3.499 5.790
3.125 2.497 2.219 2.864 5.125
3.349 3.261 1.594
4.271 3.338 4.084
2.768 2.351 3.464 3.881
* skv. frumvarpi
til fjárlaga fyrir
árið 2023.
Heilsuvara vikunnar
GJAFALEIKUR
Atvinnurekendur segja fjár-
málaráðherra kominn í mót-
sögn við sjálfan sig með því
að vilja hækka stórlega álögur
á áfengi á sama tíma og hann
tali fyrir því að skattlagning
á þeim vettvangi sé komin
algjörlega út í ystu mörk.
ser@frettabladid.is
S K AT TA M Á L Forkólfa r Félag s
atvinnurekenda (FA) gagnrýna
harðlega auknar álögur á almenn-
ing og fyrirtæki sem þeir segja felast
í nýju fjárlagafrumvarpi stjórnvalda.
Félagið beinir sérstaklega sjónum
að áfengissköttum. Gangi frum-
varpið eftir muni áfengisgjald
hækka um 7,7 prósent. Í fríhafnar-
verslunum komi ofan á þá hækkun
150 prósenta hækkun gjaldsins, en
það eigi að hækka úr 10 prósentum
af fullu áfengisgjaldi í 25. Hækkunin
í þessum verslunum verði þá sam-
tals 169 prósent. Það sé skattpína.
„Áfengisskattar á Íslandi eru þeir
hæstu í Evrópu og þótt víðar væri
leitað,“ segir í umsögn félagsins til
fjárlaganefndar, „en ekki sé hægt
að ganga lengra í gegndarlausri
skattpíningu neytenda þessarar
einu almennu neyzluvöru og engri
ríkisstjórn eða löggjafarsamkundu
í þeim löndum sem Ísland ber sig
saman við dettur í hug að ganga jafn
langt,“ segir þar enn fremur.
„Fyrir hinn almenna neytanda
þýða þessar skattahækkanir að
hæsta áfengisverð í Evrópu hækkar
enn,“ segir Ólafur Stephensen, fram-
kvæmdastjóri félagsins, en léttvíns-
kassinn hækki um 600 krónur og
bjórkippan um 150 krónur.
„Þessar hækkanir skerða líka
samkeppnishæfni ferðaþjónust-
unnar og koma niður á af komu
veitingahúsa. Svo virðast stjórnvöld
ætla að verðleggja Fríhöfnina út af
markaðnum, sem þýðir að fólk mun
kaupa áfengi í fríhöfnum erlendis og
Segja boðaðar auknar álögur á
áfengi hér á landi vera óskiljanlegar
taka með sér í handfarangri í f lugi,“
segir Ólafur, en tafla sem fylgir frétt-
inni sýnir verðlagsbreytingarnar.
Í umsögn FA til þingnefndarinnar
segir að ráðherra málaflokksins viti
þetta mætavel – og hafi raunar talað
fyrir því að stemma stigu við aukn-
um álögum á áfengi hér á landi.
Bent er á eftirfarandi ummæli hans
í beinni útsendingu á vef Sjálfstæð-
isf lokksins 10. júní 2021 þar sem
hann var spurður um skattlagningu
á áfengi: „Það er mín skoðun að við
séum komin algjörlega út í ystu
mörk á skattlagningu. Þá er ég ein-
faldlega að vísa til þess að við erum
líklega með eina dýrustu bjórkrús í
Evrópu. Mér finnst ekki endilega að
það eigi að vera þannig.“
Félagið telur að orð og efndir eigi
hér að fara saman. „Fjármálaráð-
herrann hefur sagt sjálfur að skatt-
lagning áfengis væri komin að ystu
mörkum,“ bendir Ólafur á og bætir
við: „Samt leggur hann til þessar
gríðarlegu skattahækkanir, sem er
óskiljanlegt. Það væri miklu nær að
vinda ofan af þessum ofursköttum.“
Almennt varar FA við auknum
álögum á almenning og fyrirtæki
sem félagsmenn telja leynast í nýju
fjárlagafrumvarpi. „Þar má nefna
sem dæmi hækkandi bifreiða- og
eldsneytisgjöld, sem munu valda
hækkun á kostnaði við vöru-
dreifingu,“ segir í umsögninni, en
allt saman kyndi þetta verðbólgu-
bálið. n
Svo virðast stjórnvöld
ætla að verðleggja
Fríhöfnina út af mark-
aðnum.
Ólafur Stephensen,
framkvæmdastjóri FA
olafur@frettabladid.is
NEYTENDUR Í verðkönnun Veritabus
sem Fréttablaðið greindi frá í gær,
kom í ljós að matarkarfan lækkaði
um 3,3 prósent í Nettó en hækkaði
um 2,1 prósent í Krónunni og Hag-
kaupum og 4,1 prósent í Heimkaupi.
Samkvæmt könnuninni keppir
Nettó nú við lágvöruverðsverslan-
irnar Bónus og Krónuna um að
bjóða ódýrustu matarkörfuna.
Gunnar Egill Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Samkaupa sem reka
Nettó, segir að í vildarklúbbi bjóði
Nettó ódýrustu matarkörfuna.
Gunnar Egill segir verðlag inn-
fluttra vara hafa lækkað að undan-
förnu og Samkaup hafi gætt þess að
láta þær lækkanir ganga áfram til
viðskiptavina.
Hann segir innlenda framleið-
endur sem njóta tollverndar lítinn
áhuga hafa á að halda verði í skefj-
um. Mjólkursamsalan hafi hækkað
verð tvisvar eða þrisvar á árinu og
lambakjöt hækki um 27 prósent. n
Innflutningur lækkar en innlendar vörur hækka
bth@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Björn Leví Gunnars-
son, þingmaður Pírata, sem hótað
hefur verið líf láti, gagnrýndi Jón
Gunnarsson dómsmálaráðherra og
Sigmund Davíð Gunnlaugsson, for-
mann Miðflokksins, fyrir, orðræðu
þeirra í viðtali á Fréttavaktinni í
gærkvöld.
Fram kom einnig að umræða er
nú meðal þingmanna um að auka
beri öryggisgæslu á Alþingi. n
Nánar á frettabladid.is
Ræða um aukna
gæslu á Alþingi
Björn Leví Gunn-
arsson þing-
maður Pírata
4 Fréttir 12. október 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ