Fréttablaðið - 12.10.2022, Page 11
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
MIÐVIKUDAGUR 12. október 2022
Það er einstaklega skemmtilegt að
heimsækja Tókýó. FRÉTTABLAÐIÐ/ELÍN
elin@frettabladid.is
Eftir að hafa verið lokað fyrir
ferðamönnum í tvö og hálft ár
opnast nú Japan á nýjan leik.
Stjórnvöld vonast til að ferðamenn
muni styrkja jenið og setji kraft í
efnahagslíf landsins.
Japan lokaði landamærum
sínum snemma þegar heims-
faraldurinn skall á og á tímabili
var Japönum sjálfum sem voru á
ferðalagi bannað að koma heim.
Nú gefst ferðamönnum sem sagt
kostur á að ferðast til landsins fal-
lega og samkvæmt nýjum reglum
þurfa 68 lönd ekki vegabréfsáritun
sem er nýjung. Hins vegar þurfa
ferðamenn að framvísa bólu-
setningarvottorði og neikvæðu
Covid-prófi sem má ekki vera eldra
en þriggja daga.
Árið 2019 heimsóttu 31,9
milljónir útlendinga Japan en
stjórnvöld höfðu það markmið að
ná 40 milljónum árið 2020 þegar
heimsfaraldurinn skall á en þá áttu
Ólympíuleikarnir að fara þar fram.
Enn með grímur
Tala dauðsfalla í Japan í Covid
var 45.500 sem er mun minna en
í mörgum öðrum iðnríkjum. Jap-
anir ganga enn með grímur bæði
úti og inni þótt það sé ekki skylda
lengur. Mörg hótel vilja enn að
fólk beri grímur, að því er Jyllands
Posten greinir frá, og stjórnvöld
hafa í hyggju að leyfa þeim að
vísa gestum frá sem neita að bera
grímur. ■
Japan opnar fyrir
ferðamenn á ný
Þetta var erfið ákvörðun
Skíðakappinn Hilmar Snær Örvarsson tilkynnti á dögunum að hann hefði ákveðið að
leggja keppnisskíðin á hilluna en þessi 22 ára gamli Garðbæingur hefur átt góðu gengi að
fagna í skíðabrekkunum, bæði hér heima og erlendis. 2
QUICK CALM
Vellíðan - skerpa
Fæst í Fjarðarkaup, www.celsus.is
FLJÓTVIRKT
FRÁBÆR
MEÐMÆLI
Hugurinn leitaði annað, segir segir Hilmar Snær Örvarsson sem hefur lagt skíðin á hilluna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI