Fréttablaðið - 12.10.2022, Síða 15

Fréttablaðið - 12.10.2022, Síða 15
Chilly´s kaffimálið heldur drykknum heitum í 4 klst. Gríðarlegt vöruúrval, frábært verð og persónuleg þjónusta einkennir Fyrirtækjaþjón- ustu ELKO, þar sem hægt er að finna réttu starfsmanna- gjöfina fyrir jólin. Fyrirtækjaþjónusta ELKO býður upp á persónulega ráðgjöf fyrir fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum og þjónustar þau um land allt með allar týpur raftækja. „Við bjóðum upp á persónulega og faglega þjónustu, frábært verð og gríðarlegt vöruúrval, en á heima- síðunni okkar er ekki tæmandi listi yfir allt sem við bjóðum upp á, því við höfum aðgang að stærsta heimilis- og raftækjalager á Norðurlöndunum, sem er 108 þúsund fermetrar,“ segir Stefán Pétur Kristjánsson, viðskiptastjóri í Fyrirtækjaþjónustu ELKO. Vöruúrval sem hentar öllum Fyrirtækjaþjónustan býður upp á aðstoð við að velja og skaffa starfs- mannagjafir fyrir jólin. „Þar býðst frábært verð, gríðarlegt úrval og góð og persónuleg þjónusta,“ segir Stefán. „Þegar fyrirtæki leita til okkar til þess að fá aðstoð við jóla- gjafir til starfsmanna þá byrjum við að vinna út frá fjölda starfs- manna og ákveðnum verðpunkti sem fyrirtækin miða við fyrir hvern starfsmann. ELKO býður upp á vörur á öllu verðbili sem ættu að henta flestum fyrirtækjum.“ Hann segir starfsfólk ELKO vinna út frá þessum upplýsingum og koma með hugmyndir að gjöfum. „Við getum einnig hjálpað þeim óákveðnu að velja gjafir ef þess er óskað. ELKO býður einnig upp á innpökkunarþjónustu á keyptum vörum gegn vægu gjaldi,“ segir Stefán Pétur. Betra að panta tímanlega „Það skiptir máli að vera tímanlega, sérstaklega ef panta á inn mikinn fjölda starfsmannagjafa fyrir stærri fyrirtæki. Rétt er að benda á það að ELKO tekur á móti vöruskilum til 31. janúar 2023, og ef fólk er óvíst með hvort það vilji eiga vöruna eða ekki, þá virkar skilarétturinn þannig að það getur prófað vöruna en fengið henni skipt ef það er ekki ánægt,“ útskýrir Stefán. Hann tók saman lista yfir vörur sem gætu verið hentugar sem jóla- gjafir til starfsmanna frá fyrirtækj- um. „Þessar vörur eru auðvitað bara brot af þeim vörum sem við höfum sérvalið sem heppilegar fyrir- tækjagjafir en hægt er að kynna sér úrvalið frekar á elko.is eða hafa samband beint við mig í netfanginu b2b@elko.is.“ Úrval af frábærum gjöfum n Gjafakort ELKO: Gjafakort ELKO njóta mikilla vinsælda og gilda í öllum verslunum ELKO. Hægt er að velja upphæð allt frá 5.000 krónum. ELKO er stærsta raf- tækjaverslun landsins og starfs- fólk getur því auðveldlega valið fallega gjöf hjá okkur. Gjafakort ELKO rennur aldrei út – það er því nægur tími til þess að finna réttu gjöfina. n Pitsaofn: Við bjóðum upp á breytt úrval pitsuofna þar sem hægt er að útbúa ljúffengar ítalskar pitsur heima. n Ninja loftsteikingarpottur: Loftsteikingarpottarnir hafa verið mjög vinsælir, enda ein- staklega auðveldir í notkun. n Aarke kolsýrutæki: Kolsýru- tækin frá Aarke eru glæsileg og sóma sér vel inni í hvaða eldhúsi sem er. Tækið er mjög einfalt í notkun og á sama tíma um- hverfisvæn lausn. ELKO auðveldar val starfsmannajólagjafa Stefán Pétur Kistjánsson, viðskiptastjóri fyrirtækjaþjónustu ELKO, segir að ELKO bjóði upp á lausnir í fyrirtækjagjöfum sem henti öllum gerðum fyrirtækja. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Gjafakort ELKO eru alltaf jafn vinsæl gjöf enda virka þau í öllum verslunum ELKO og renna aldrei út. Nespresso Vertuo Next hylkjavél- in býður upp á endalausa möguleika. Ferða- hleðslur henta vel fólki sem er á ferðinni. Garmin Venu Sq2 snjall- úrið er hannað fyrir fólk sem hreyfir sig. Marshall Willen ferðahátalarinn er troðinn Marshall-vottuðum hljómgæðum. JBL PartyBox Encore ferðahátal- ari heldur partíinu gangandi. Kolsýrutækin frá Aarke eru glæsileg og sóma sér vel inni í hvaða eldhúsi sem er. Xiaomi TV Stick 4K breytir snjallsjón- varpinu í afþrey- ingarstöð. n Ferðahleðsla: Ferðahleðslur eru vinsælar fyrir fólk á ferðinni og alltaf gott að hafa með sér til að geta hlaðið til dæmis síma og spjaldtölvur. n Bose QuietComfort Earbuds II þráðlaus heyrnartól: Bose QuietComfort Earbuds II þráð- lausu heyrnartólin varpa skýrum hljóm og góðum bassa, þökk sé CustomTune tækninni ásamt Intelligent Noise Cancelling. n Nespresso Vertuo Next hylkja- vél: Rosa flott kaffivél. Með 1,1 l vatnstanki og fimm bolla- stærðum hefur þú endalausa möguleika. Vélin er Wi-Fi tengd og notar Centrifusion tækni. n Garmin Venu SQ 2: Garmin Venu Sq2 snjallúrið er hannað fyrir fólk sem hreyfir sig. Úrið heldur utan um skrefafjölda, hjartslátt, svefn og súrefnismettun í blóði. Hægt er að tengja snjallúrið við önnur tæki með Bluetooth og ANT+. Allt að 11 daga rafhlöðu- ending. n Marshall Willen ferðahátalari: Þrátt fyrir smáa stærð er hátalar- inn hreinlega troðinn Marshall- vottuðum hljómgæðum, allt að 15 klukkustunda rafhlöðuend- ingu og IP67 vatns- og rykvörn. n JBL PartyBox Encore ferða- hátalari: Haltu partíinu gangandi með JBL PartyBox Encore ferða- hátalaranum. Tengdu tækin þín við hann með Bluetooth eða AUX tengi og spilaðu í allt að 6 klukkustundir með kröft- ugum JBL Original Pro hljómi, skemmtilegum ljósum og hljóð- nema. n Xiaomi Mi TV Stick 4K: Breyttu hvaða snjallsjónvarpi sem er í 4K UHD afþreyingarstöð með Xiaomi TV Stick 4K margmiðl- unar- og streymisspilara. Tengdu Xiaomi TV Stick 4K með Micro USB, HDMI, Wi-Fi eða Bluetooth og horfðu á myndir, hlustaðu á tónlist eða spilaðu tölvuleiki í 4K upplausn. n Chilly´s kaffimál: Hægt að taka með sér ljúffengan kaffibolla í vinnuna sem heldur drykknum heitum í allt að 4 klst. Nánari upplýsingar á elko.is. kynningarblað 3MIÐVIKUDAGUR 12. október 2022 FYRIRTÆKJAGJAFIR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.