Fréttablaðið - 12.10.2022, Page 16
Gjöf til starfsfólks er vin-
áttutákn sem gleður. En að
eiga vin á vinnustaðnum
er ómetanlegt. Rannsóknir
hafa sýnt fram á að það
gagnast ekki bara starfsfólk-
inu heldur fyrirtækinu líka.
sandragudrun@frettabladid.is
„Ég er ekki vinur þinn, ég er sam-
starfsfélagi þinn,“ var sungið í
söfnunarþættinum Verum vinir –
Mannvinasöfnun Rauða krossins
sem sýndur var á RÚV síðastliðið
föstudagskvöld. Það voru heldur
köld skilaboð sem starfsmanna-
hópurinn í grínatriðinu sendi
vinnufélaga sínum með þessu
lagi. Flestir vilja eiga í góðum
samskiptum við vinnufélaga sína.
Að eiga góðan vin í vinnunni
stuðlar að jákvæðri starfsreynslu,
meiri skuldbindingu og auknum
árangri í starfi.
Starfsfólk sem á besta vin í
vinnunni er líklegra til að virkja
viðskiptavini og samstarfsaðila,
verða meira úr verki á skemmri
tíma, fá nýjar hugmyndir, deila
þeim með öðrum og hafa gaman í
vinnunni, þetta hafa niðurstöður
Gallups sýnt ítrekað. Reyndar
hafa nýleg gögn frá Gallup sýnt
fram að á það að eiga besta vin
í vinnunni hefur orðið mikil-
vægara eftir að heimsfaraldurinn
hófst, þrátt fyrir að fjarvinna hafi
aukist gríðarlega.
Vinnuvinir hjálpast að
Starfsfólk sem þurfti að fara í
fjarvinnu upplifði að besti vinur
þeirra í vinnunni hjálpaði þeim
að vera upplýstur um það sem var
að gerast á vinnustaðnum, svo það
Ég er sko vinur þinn
Þegar vinnuálagið í
vinnunni er mikið
finnst starfsfólki það
bera vissa ábyrgð á besta
vinnuvininum og leggur
því á sig að hjálpa
honum með verkefni.
Flestir vilja eiga góð samskipti á vinnustaðnum. Að eiga góðan vin í vinnunni er sannkölluð gjöf. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
upplifði að það væri enn í tengsl-
um við teymið sitt. Starfsfólk gat
spurt besta vin sinn „heimsku-
legra“ spurningar um breytingar
á verklagi í vinnunni án þess að
óttast að gera sig að fíf li.
Þegar vinnuálagið í vinnunni
er mikið finnst starfsfólki það
bera vissa ábyrgð á besta vinnu-
vininum og leggur því á sig að
hjálpa honum með verkefni. Það
starfsfólk sem á ekki besta vin í
vinnunni fann aftur á móti fyrir
aukinni einangrun á meðan á
heimavinnu stóð, samkvæmt
upplýsingum frá Gallup. Skortur á
samvinnu og ábyrgðartilfinningu
gagnvart besta vininum gat orðið
til þess að frammistaða starfs-
mannsins varð verri.
Tækifæri til að kynnast
Þar sem yfirmenn leggja yfirleitt
línurnar um hvað er viðeigandi og
hvað ekki á vinnustaðnum, ættu
þeir að ýta undir það að starfsfólk
myndi vinasambönd sín á milli.
Það geta þeir gert með því að tala
um mikilvægi þess mynda tengsl
við vinnufélaga sína og fara fram
með góðu fordæmi sjálfir. Allt
starfsfólk ætti að gefa sér tíma til
að tengjast samstarfsfólki sínu því
það er öllum til góðs, ef marka má
Gallup.
Yfirmenn ættu að leyfa starfs-
fólkinu að sækjast eftir vináttu
við aðra vinnufélaga upp á eigin
spýtur og gæta þess að andrúms-
loftið sé þannig að starfsfólkið
upplifi að slíkt sé velkomið. En
yfirmenn fyrirtækja geta líka ýtt
undir tengslamyndum starfsfólks
með því að gefa starfsfólkinu næg
tækifæri til að spjalla, til dæmis
með því að skipuleggja félagslega
viðburði á vegum vinnustaðarins,
eða styðja starfsmannafélagið til
að skipuleggja slíka viðburði.
Stjórnendur geta einnig stutt við
félagsleg tengsl með því að gefa sér
tíma til að spjalla við starfsfólkið
sjálfir. Fimmtán mínútna samtal
milli starfsmanns og yfirmanns
getur varpað ljósi á nýjar leiðir
sem hægt væri að fara til að tengja
starfsfólkið betur saman. Einnig
geta tíð samtöl leitt í ljós hindranir
sem koma í veg fyrir vináttu á
vinnustaðnum. n
HEIMILD: GALLUP.COM
Með gjafakorti Landsbankans er
ekkert mál að velja rétta jólagjöf fyrir
starfsfólkið. Þú ákveður upphæðina
og þau sem þiggja velja gjöfina.
Gjafakort
Landsbankans
LANDSBANKINN. IS
4 kynningarblað 12. október 2022 MIÐVIKUDAGURFYRIRTÆKJAGJAFIR