Fréttablaðið - 12.10.2022, Side 37
Florealis býður upp á jurta-
lyfið Lyngonia sem er eina
viðurkennda meðferðin við
endurteknum þvagfæra-
sýkingum kvenna sem ekki
er í flokki sýklalyfja.
Margar konur glíma við endur-
teknar þvagfærasýkingar, en um
60% kvenna fá sýkingu einhvern
tímann á lífsleiðinni og allt að
þriðjungur þeirra fær endurtekna
sýkingu innan 6 mánaða. Allir geta
fengið blöðrubólgu, en líffræði
kvenna, meðganga, breytingaskeið
og sjúkdómar svo sem sykursýki
auka líkur á sýkingu.
Helstu einkenni blöðrubólgu
eru sviði við þvaglát, verkur í
neðanverðum kvið og stöðug þörf á að pissa, jafnvel þegar þvag-
blaðran er tóm.
Blöðrubólga er almennt með-
höndluð með sýklalyfjum, en á
undanförnum árum hefur ónæmi
gegn sýklalyfjum aukist töluvert
sem gerir meðferð ýmissa sýkinga
erfiða. Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunin (WHO) og aðrar alþjóð-
legar stofnanir hafa lýst því yfir
að sýklalyfjaónæmi sé ein mesta
ógn við heilbrigði sem mannkynið
stendur frammi fyrir.
Lyngonia - eina viðurkennda
meðferðin án lyfseðils
Lyngonia vinnur gegn einkennum
vægra þvagfærasýkinga. Jurtalyfið
byggir á virkum efnum úr sortu-
lyngi (e. uva-ursi) sem hafa bakt-
eríudrepandi virkni og verka stað-
bundið í þvagrásinni. Lyngonia
hefur því ekki áhrif á bakteríu-
flóru annars staðar í líkamanum,
eins og þekkist með hefðbundin
sýklalyf. Best er að byrja að taka
Lyngonia um leið og einkenna
verður vart. Lyfið er
ekki ætlað sem fyrir-
byggjandi meðferð.
Staðfest klínísk
virkni
Lyngonia inni-
heldur virk efni úr
sortulyngi, en jurtin
er á meðal elstu lækningajurta
á Íslandi. Hún hefur staðfesta
virkni í klínískum rannsóknum
og skráða örugga notkun í Evrópu
í yfir 40 ár. Lyngonia var fyrsta
jurtalyfið á Íslandi til að fá leyfi
Lyfjastofnunar.
Gagnlegar upplýsingar
Lyngonia fæst í öllum apó-
tekum án lyfseðils og inniheldur
pakkningin allt að þrjá meðferðar-
skammta.
Lyngonia er jurtalyf sem hefð er
fyrir og ætlað konum eldri en 18
ára eftir að alvarleg veikindi hafa
verið útilokuð af lækni. Notkun er
2 töflur 2-4 sinnum á dag og ekki
skal nota lyfið lengur en í eina
viku. Ef einkenni eru viðvarandi
í meira en 4 daga eða versna við
notkun skal hafa samband við
lækni. Ekki á að nota Lyngonia ef
truflun er á nýrnastarfsemi. n
Lesið vandlega upplýsingar á
umbúðum og fylgiseðil fyrir
notkun lyfsins. Leitið til læknis
eða lyfjafræðings sé þörf á frekari
upplýsingum um áhættu og auka-
verkanir. Sjá nánari upplýsingar
um lyfið á serlyfjaskra.is og á
heimasíðu Florealis, florealis.is.
Einstök meðferð við blöðrubólgu án sýklalyfja
Lyngonia
fæst í
apótekum án
lyfseðils.
Allir geta fengið
blöðrubólgu, en
líffræði kvenna, með-
ganga, breytingaskeið og
sjúkdómar svo sem
sykursýki auka líkur á
sýkingu.
Florealis býður upp á úrval jurtalyfja sem byggja á virkum náttúruefnum.
Margar konur glíma við endurteknar þvagfærasýkingar, en um 60% kvenna fá sýkingu einhvern tímann á lífsleiðinni. MYNDIR/AÐSENDAR
ALLT kynningarblað 3MIÐVIKUDAGUR 12. október 2022