Fréttablaðið - 12.10.2022, Síða 46
Ég ímynda mér að
Hrafn hefði sagt mér
að vera ekki með þessa
væmni.
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@
frettabladid.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrir@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078:
Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolbeinn@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Vinaskákfélagið heldur í
dag minningarskákmót um
Hrafn Jökulsson í Norður
turninum í Smáralind. Hrafn
var verndari félagsins alla
sína tíð en þeir Hjálmar
Hrafn Sigurvaldason, Ólafur
Thorsson og Guðjón Heiðar
Valgarðsson segja mótið
verða í hressari kantinum,
eins og Hrafn hefði viljað.
odduraevar@frettabladid.is
„Það er erfitt að ganga í fótspor
Hrafns, en það er hægt að ganga í
sömu átt,“ segir Ólafur Thorsson
sem situr í mótsstjórn Vinaskák
félagsins og kemur að minningar
móti Hrafns Jökulssonar heitins
sem lést í september úr krabba
meini. Þeir félagar leggja áherslu á
að mótið verði skemmtilegt og að
viðtalið verði hressilegt, allt eins og
Hrafn hefði viljað hafa þetta.
„Ég verð að viðurkenna að það
eru blendnar tilfinningar við að
halda þetta skákmót fyrir hann,“
segir Ólafur hlæjandi. „Ég ímynda
mér að Hrafn hefði sagt mér að vera
ekki með þessa væmni og halda
bara áfram að efla skákina. Svo við
vildum bara gera það, fara í sömu átt
og hann með ástina, gleðina og kær
leikann í hjarta.“
Þeir félagar taka fram að allir
séu velkomnir á mótið sem hefst
klukkan 16.00 í dag og stendur til
18.30. Hrafn var verndari félagsins
alla sína tíð en tilgangur þess er að
ef la skáklíf meðal fólks með geð
raskanir.
Frítt er fyrir 18 ára og yngri en
2.000 króna þáttökugjald og vegleg
ir vinningar í boði. Guðjón útskýrir
að þetta hafi átt að vera styrktarmót
fyrir Hrafn.
„Eftir að hann kvaddi lá því bein
ast við að breyta því í minningar
mót. Við verðum með posa þar sem
fólk getur lagt sitt af mörkum og
það rennur beint til barna Hrafns
auk þess sem allt sem verður eftir
í kassanum að móti loknu rennur
beint til þeirra.“
Þrímenningarnir eru ekki lengi
að rifja upp sínar bestu minningar
af Hrafni þegar þeir eru spurðir
hvernig maður hann var.
„Hann var goðsögn í lifanda lífi,“
segir Hjálmar sem kynntist honum
fyrir tíu árum í gegnum Vina
skákfélagið. „Það hreinlega gustaði
af honum og allt lék í höndunum
á honum. Ég var jafnvel örlítið
smeykur við hann fyrst, sem auð
vitað var alger óþarfi, hann var hið
mesta ljúfmenni sem vildi öllum
vel. Það var virkilega ánægjulegt
að hafa Hrafnakónginn, eins og við
köllum hann, sem verndara Vina
skák félagsins.“
Guðjón segir Hrafn hafa verið
eins og eitt af náttúruöf lunum.
„Eldur, vindur, jörðin, vatnið og
Hrafn. Hann lét ekkert stoppa sig og
hafði endalausan drifkraft og orku.“
Ólafur hefur sína samlíkingu
alveg á hreinu. „Hrafn var dínamít.
Hann gat fengið allt til að blómstra.
Það er mikill missir að honum en
arfleifð hans er þvílík. Hvað get ég
sagt? Hver sem er, sama hvað hann
fæst við, gæti fundið andagift í verk
um Hrafns. Hann var sannkallað
ofurmenni. Svo var þessi einlægi
kærleikur sem geislaði út frá honum
í öllum hans verkum sem einkenndi
hann og kristallaði hvað hann var
góð og heilsteypt manneskja.“
Vakti allt af dvala
Hjálmar segir að hans eftirminni
legasta reynsla af Hrafni hafi verið
þegar hann fór með góðum hóp úr
Vinaskákfélaginu til Trékyllisvíkur,
norður á Strandir.
„Hrafn var eins og gestrisinn
landvættur. Margur reyndi oft að
halda honum í böndum, já, því
miður. En í sveitinni sinni var hann
dásamlega óbundinn og þá var aldr
ei dauð stund. Þetta var stórkostleg
ferð.“
Guðjón segist eiga sínar bestu
minningar af Hrafni á Grand Rokk.
„Hann var alltaf með einhver járn í
burðarliðnum þar í kringum skák
félagið Hrókinn sem hann stofnaði,“
útskýrir Guðjón.
„Svo var eitt skipti eftirminnilegt
þegar hann var að halda skákmara
þon í Kringlunni árið 2006. Þá tefldi
hann 250 skákir á 40 klukkutímum,
sem er met enn þann dag í dag. Ég
mætti þarna og tók eina skák við
hann. Í miðri skákinni var eitthvert
fólk farið að tala helst til hátt fyrir
hans smekk svo að hann sussaði
á það af ákveðni og sagði: Viljiði
aðeins hafa þögn, ég er að tefla við
einn sterkasta skákmann landsins
hérna!“ segir Guðjón hlæjandi.
„Það var auðvitað langt frá því
að vera satt, en ég hafði lagt skák
skóna á hilluna mörgum árum
áður. Ég man samt að mér þótti
voða vænt um þetta komandi frá
honum. Truflunin kom þó ekki að
sök og hann mátaði mig nú þarna á
endanum.“
Ólafur segir að þegar hann hafi
verið ungur maður að tefla hafi sér
alltaf þótt Hrafn hálfgerður útlagi.
„Hann var svo miklu meira en
þessi venjulegi skákfélagsmála
forkólfur. Hann vakti allt af dvala
og kom með nýjar hugmyndir og
vinkla. Hrafn var í slagtogi við
forseta, embættismenn, kónga og
biskupa, og hann einhvern veginn
reitskipti veröldinni. Mörgum varð
um og ó, hann varð strax umdeildur.
Það er mikill missir að honum.“ n
Hrafn var dínamít
Hrafn Jökulsson við taflborðið á Grand Rokk árið 2005. MYND/ÞÖK.
Þremenningarnir leggja áherslu á létt- og hressleikann, allt saman að sjálfsögðu í anda Hrafns. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
íísssssllleeeeennnnndddiinnnnnguuuuurrr íí
ULUWATU HOFI
Stórsveitin frumflytjur glænýja og
spennandi tónlist Stefáns S. Stefánssonar
undir stjórn höfundar. Síðasta verkefni
Stefáns og Stór sveitarinnar, Íslendingur
í Alhambrahöll frá 2015, hlaut Íslensku
tónlistarverðlaunin bæði fyrir jazzplötu
ársins og jazztónleika ársins.
� 13. NÓVEMBER, KL. 17.00
� SILFURBERG
Miðasala á HARPA.IS og TIX.IS
18 Lífið 12. október 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ