Fréttablaðið - 14.10.2022, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 14.10.2022, Blaðsíða 21
Daily Defence Face Mousse frá Evy er uppbyggjandi dagkrem með langvirkni og hæstu mögulega viður- kenningu á UV-vörn. Það dregur úr hættu á húð- krabbameinum og ótíma- bærri öldrun húðar. „Eve Technology Daily UV Face- dagkremið er til daglegra nota. Það inniheldur jafnframt, með grunnformúlunni, UV-vörn, hýalúronsýru, kollagen og silki- extrakt, ásamt C- og E-vítamíni sem efla endurnýjun húðarinnar. Kremið fyrirbyggir brúna húð- bletti og ótímabæra öldrun, dregur úr roða og húðertingu, húðin fær fallegan ljóma, mýkist og þéttist, en dagleg notkun við- heldur og eykur árangur,“ segir Anna Björg Hjartardóttir, eigandi og framkvæmdastjóri Celsus ehf. sem flytur inn Evy-húðvörurnar. Evy Technology húð- og sólar- vörn hefur hlotið fjölda verð- launa og viðurkenninga. Þær hafa af bragðsmeðmæli húðsjúk- dómalækna og margir húðlæknar á Norðurlöndunum selja Evy á sínum stofum. „Mörg ár í röð hefur Evy verið útnefnt í fyrsta sæti yfir bestu húð- og sólarvarnir í öllum flokkum og það gerðist aftur í ár þegar Evy Daily Face var valið besta dagkremið með sólarvörn árið 2022. Skandinavíska fyrir- tækið „Bäst il Test“ framkvæmir óháðar prófanir sem unnar eru af sérfræðingum og fara fram við erfiðustu aðstæður sem reyna á gæði húðvarnanna,“ upplýsir Anna Björg. Fimm stjörnu sólarvörn Eve Daily Face er í grunninn dag- krem með langvirkri sólarvörn sem ver húðina gegn skaðlegum UV-geislum sólar og öðrum skað- legum áhrifum samkvæmt ítrustu kröfum húðlækna. „Dagkremin Evy Daily Face og Evy Daily Defence eru ætluð til nota árið um kring og borin á húðina á morgnana, ýmist ein og sér eða undir farða. Þeim fylgir engin fituáferð né glans, sem gerir þau frábær undir farða og serum. Evy Daily Defence er með sólavörn SPF30 og SPF50, sem er hæsta sólarvörnin og merkt fimm stjörnu gegn UVA-sólar- geislum sem auka mest hættu á húðkrabbameinum, en SPF50 ver húðina að auki fyrir HEV-skjá- bláum geislum,“ greinir Anna Björg frá. Viðurkenndur Boots-staðall UVA-geislar sólar eru taldir helsta orsök húðkrabbameina en sortu- æxli er oft erfitt að lækna. „UVA-geislarnir brenna ekki húðina en þeir skaða og auka líkur á húðmeinum auk þess að elda húð okkar mest af öllum áhrifa- þáttum húðöldrunar. UVA-geislar brjóta niður húðina, það gerist líka þótt kalt sé eins og á haustin og veturna. Þeir fara líka í gegnum glerrúður svo við finnum ekkert fyrir því, en skaða húðina samt,“ upplýsir Anna Björg. Hún segir góð tíðindi fyrir heilbrigði og fegurð húðar að Evy hefur einnig Boots-staðal sem er óháð sólarvarnarprófun á UVA- geislum. „Evy hefur hæstu mögulegu UVA-vörnina sem er merkt með fimm stjörnum, sem er Ultra sem stendur fyrir 90 prósent UVA- vörn í hlutfalli við uppgefinn UVB-varnarstuðul. En UVA Boots- staðall er viðurkennt viðmið af húðlæknum,“ segir Anna Björg. Rósroði, exem og krabbamein Evy Daily Face-formúlan hentar sérlega vel á vandamálahúð, rós- roða, exem, unglingabólur, þurrk og þurrkbletti. Það uppfyllir kröfur um afbragðsvernd fyrir húð sem þarf að verja vel eins og húð sem farið hefur í lasermeðhöndlun eða fengið húðkrabbamein. „Reynslan af Daily Face er sér- lega góð fyrir rósroða sem þarf sérhæfða vörn. Evy Daily Face er fitulaust í froðuformi. Það róar húðina, jafnar litarháttinn og er jafnframt hægt að nota undir farða,“ segir Anna Björg. Gott við skjallblettum Sænsku samtökin Vitiligoför- bundet, sem er félag fólks með skjallbletti, hafa átt í margra ára samstarfi við Evy. „Þar sem Evy er fyrir alla húð, en sérstaklega til að vernda ofur- viðkvæma húð og varnareigin- leikar húðarinnar styrkjast er Evy af bragð fyrir þá sem glíma við húðvandamál og þurfa húðvörn sem virkar til að leysa húðvanda sinn. Hin milda formúla vinnur gegn þrota og sólarexemi, gefur eftirtektarverðan ljóma og mjúka, rakafyllta húð,“ segir Anna Björg. SPF50 vörn fyrir bláum HEV-skjágeislum Frá tölvuskjáum og símaskjáum smýgur HEV-blátt ljós inn í húðina, rétt eins og UV-ljós. Það getur losað um sindurefni sem aftur valda hrukkum, grófri húð- áferð og stuðlar að neikvæðum húðbreytingum. „Dagleg notkun á Evy-and- litsvörn gefur langvirkan raka og mýkt og styrkir eigin varnir húðarinnar. Hún hentar öllum húðgerðum og er hentug í hár- svörð því í henni er engin fita. Hún skilur því ekki eftir sig filmu eða hvíta slikju og stíf lar ekki svitaholur. Hún er tilvalin til að nota sem „primer“ undir farða þar sem hún verndar jafnframt gegn húðertingu af völdum snyrtivara,“ upplýsir Anna Björg. Frábært í kulda og frosti Evy-húðvörurnar vernda húðina gegn því að þorna í vindum, frosti og hitabreytingum, innan húss og utan. Þær eru frábærar til að laga og fyrirbyggja varaþurrk. Til dag- legra nota að morgni dags og fyrir alla útivist, skíði og göngur. n Evy-húðvörurnar: n Styrkja varnir húðarinnar, og mýkja og þétta húðina sem fær fallegan ljóma. n Fullkomin vörn undir farða, teppa ekki húðina, hentugar fyrir rósroðahúð, ofnæmi, exem og bólur. n Létt áferð og engin fita, líka frá- bært á varir og í hársvörð. n Ofnæmisprófaðar, vernda húðina fyrir ertingu af farða og mengun. Hin milda formúla vinnur gegn þrota og sólarex- emi. n Evy-húðvörurnar eru lausar við paraben, ilmefni og innihalda engar nanóagnir. Þær koma í súrefnis- og bakteríuheldum umbúðum. n Kremin eru drjúg og í einum brúsa um 90 skammtar. Evy fæst í öllum apótekum, Hag- kaup og í vefverslun evy.is þar sem einnig er enn frekari fræðsla um Evy-húðlínuna. Sjá meira á celsus.is Evy dregur úr hættu á húðkrabbameinum Anna Björg Hjartardóttir er eigandi og framkvæmdastjóri Celsus ehf. MYNDIR/AÐSENDAR Evy Daily Defence Face Mousse er andlitsvörn með SPF 50 sólarvörn. Meðmæli með Evy-húð- vörum frá konum og körlum „Vá, ég gersamlega dýrka þessa vöru, er ekki lengur með þurrkbletti né húð- pirring. Ég þarf ekkert annað en Daily Face til að húðin sé þétt af raka, fín eftir raksturinn, engin roða- erting lengur, húðin er jöfn og heil. Ég hef notað líka vöruna í hársvörðinn með flottum árangri.“ „Ég ferðast mikið og þegar ég var í London notaði ég Evy Daily Face. Ég verð að segja að húðin hefur aldrei verið svona fín. Það var eins og ekkert utanaðkomandi næði að erta eða þurrka húðina. Ég sólbrann ekkert og húðin hafði hvorki mett- ast af ryki eða óhreinindum sem eru alltaf í loftinu í London. Húðin var aftur á móti jöfn, rakafyllt og með ljóma. Þetta er vara sem ég dýrka og verður notuð á hverjum morgni undir allan farða.“ Evy Daily Defence er með SPF30 og SPF 50 sem er hæsta sólarvörnin og merkt fimm stjörnu vörn gegn UVA-sólargeislum sem auka mest hættu á húð- krabbameinum. Anna Björg Hjartardóttir 5FÖSTUDAGUR 14. október 2022 BLEIK A SLAUFAN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.