Fréttablaðið - 14.10.2022, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 14.10.2022, Blaðsíða 38
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@ frettabladid.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrir@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolbeinn@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Það er ákveðin áskor- un hjá okkur í dag að geta tengt okkur við pabbana og sérstak- lega hjá okkur strák- unum. Það snýst einnig um að tengja við upprunann. Jónas Sig Þar sem himin ber við haf, með Jónasi Sig í félagi við Lúðrasveit Þorlákshafnar, kom út fyrir sléttum tíu árum í dag. Í dag kemur út lagið Faðir, þar sem Jónas og lúðra- sveitin mætast á ný og heiðra feður. ninarichter@frettabladid.is „Úr varð gullfallegt verkefni á marg- an hátt,“ segir tónlistarmaðurinn Jónas Sig um hina tíu ára gömlu plötu Þar sem himin ber við haf. Jónas, sem alinn er upp í Þorláks- höfn, segir að við vinnslu plötunnar hafi orðið til merkilegt samfélags- listaverk. Auk Lúðrasveitar Þor- lákshafnar var kór eldri borgara í bænum, Tónar og trix, einnig þátt- takandi á plötunni. „Þegar svona galdur gerist er freistandi að endurtaka galdur- inn. En það er samt svo brothætt,“ útskýrir Jónas. „En nú eru tíu ár liðin og mig langar að halda tónleika og fara inn í þetta aftur. Á þessum tíma snerist þetta um að tengja sig við upprunann. Íslendingar eru svo mikið úr fiskiþorpunum. Þarna er hafið og fólk finnur það í undirmeð- vitundinni.“ Jónas segir einn stærsta smellinn af plötunni, Hafið er svart, hafa hitt á ákveðna taug hjá þjóðinni. „Þetta var allt svo satt og rétt, og maður tengdi sig við sögu margra. Núna vinnum við með sama hljóðheim. Nýja lagið byrjar á kirkjuorgelinu í Þorlákskirkju sem setur tóninn.“ Lagið er tileinkað feðrum. „Það vantar. Það er ákveðin áskorun hjá okkur í dag að geta tengt okkur við pabbana og sérstaklega hjá okkur strákunum,“ útskýrir Jónas. „Það snýst einnig um að tengja við upp- runann. Að tilheyra og eiga ein- hvern föður á bak við mann, hvort sem það er pabbi manns eða ein- hver annar í lífinu,“ segir hann. „Ein- hver sem horfir á mann og segir: Ég hef trú á þér.“ Jónas segir að allt of margir menn hafi farið á mis við slíkt í uppeldinu. „Og þeir eru bara að skaða heiminn í einhverjum óuppgerðum vanmætti út í sjálfa sig,“ segir hann. Það er óhætt að segja að Hafið er svart sé eitt þekktasta dægurlagið sem komið hefur frá Þorlákshöfn. Aðspurður hvort útgáfa plötunnar hafi breytt einhverju fyrir tónlistar- senuna í plássinu svarar Jónas: „Ég myndi segja að það hafi orðið gald- ur þarna hjá okkur öllum. Bæði hjá okkur og fólkinu í lúðrasveitinni og fólkinu sem kom á tónleikana. Þegar maður elst upp í svona litlu þorpi er maður ekki með á tilfinningunni að maður tengist einhverju merkilegu menningarsamfélagi,“ segir hann. „Nú eru við búin að gera nýtt lag og ég var svolítið hissa hvað ég fann fyrir sömu orkunni koma bara, þetta er orðið bara brunnur sem við getum stungið okkur í samband við.“ Jónas leggur áherslu á ríkan þátt lúðrasveitarinnar í verkefninu, sem hefur vaxið ásmegin á áratugnum sem liðinn er frá útgáfu Þar sem himin ber við haf. Með Lúðrasveit Þorlákshafnar leika rúmlega fjörutíu manns og stjórnandi sveitarinnar er Ása Berglind Hjálmarsdóttir en hún hefur leikið með sveitinni alveg frá barnsaldri. „Hún er frá Þorláks- höfn og er mikill menningarfröm- uður þar,“ segir Jónas og bætir við að margir sem séu í lúðrasveitinni í dag hafi líka verið í henni þegar hann spilaði með þeim fyrst árið 1990. „Ég spilaði á bassatrommu en ég var með svo mikið ADHD að ég gleymdi henni oft á tón- leikaferðum og svona. En það eru ótrúlega margir sem eru upphaf legir meðlimir sem gefur þessu mikið vægi.“ Hann bætir við að hljómsveitin hafi haldið fjölda tónleika á síðustu árum og mikill kraftur sé í kringum meðlimi sem sumir hverjir hafi leikið með sveit- inni í 30 ár. n Áratugur frá fyrstu útgáfu Jónasar með lúðrasveitinni Jónas Sig tekur upp lag í Stúdíó Sýrlandi með Lúðrasveit Þorlákshafnar í tilefni þess að tíu ár eru liðin frá því platan Þar sem himin ber við haf kom út sem hann gerði með lúðrasveitinni á sínum tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR ninarichter@frettabladid.is Bleiki dagurinn er í dag. Dagurinn er eins konar hápunktur fjáröf l- unarátaks Krabbameinsfélagsins Bleiku slaufunnar, sem tileinkað er baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. K rabbameinsfélag ið hvet ur landsmenn til að sýna lit á deg- inum og klæðast bleiku í nafni átaksins. Fyrirtæki víða um land, auk menntastofnana á öllum skóla- stigum taka þátt og hvetja nem- endur og starfsfólk til að klæðast bleiku í tilefni dagsins. Slaufan er alþjóðlegt ták n brjóstakrabbameins. Ása Sig- ríður Þórisdóttir, kynningarstjóri Krabbameinsfélagsins, segir fyrsta árvekniátak slaufunnar hér á landi hafa verið árið 2000, að frumkvæði umboðsaðila sny rtivör uf y r ir- tækisins Estée Lauder í samvinnu við Samhjálp kvenna. „Frá árinu 2010 hefur athyglin beinst að öllum krabbameinum hjá konum hér á landi. Frá árinu 2007 hafa sérhann- aðar slaufur verið seldar til styrktar átakinu. Í samvinnu við Félag íslenskra gullsmiða hefur verið haldin samkeppni þar sem valið er úr þeim tillögum sem berast.“ Bleika slaufan í ár er hönnuð af Helgu Friðriksdóttur og Orra Finn- bogasyni hjá Orrifinn skartgripum. n Landsmenn sýna lit á bleikum degi Bleika slaufan er seld til 20. október. 22 Lífið 14. október 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ ÍÞRÓTTAVIKAN MEÐ BENNA BÓ FÖSTUDAGA KL. 19.00 OG AFTUR KL. 21.00 Benedikt Bóas fær til sín góða gesti til að ræða íþróttavikuna sem leið og skoðar það helsta sem gerðist á léttu nótunum.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.