Fréttablaðið - 18.10.2022, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 18.10.2022, Blaðsíða 8
n Halldór n Frá degi til dags ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@ frettabladid.is , Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is . Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Þorvaldur S. Helgason tsh@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Að taka upplýs- ingum sem yfir okkur flæða sem gefnum er ekki aðeins heimsku- legt – heldur beinlínis hættulegt. Áætlað er að rúm- lega tólf prósent íslenskra barna eigi á hættu að búa við fátækt. Björk Eiðsdóttir bjork @frettabladid.is Halldóra Mogensen formaður þing- flokks Pírata Við vitum öll hvaða áhrif fátækt hefur á fólk. Líf fátækra einkennist af miklu álagi, vanlíðan og niður- lægingu, sem grefur undan andlegri og líkamlegri heilsu. Fátækt getur einnig haft langvarandi áhrif á börn, því þroski fyrstu áranna leggur grunninn að heilsu þeirra til framtíðar. Þess vegna er mikilvægt að tryggja börnum bestu mögulegu byrjunina í lífinu. Við vitum að þúsundir barna á Íslandi lifa við fátækt. Áætlað er að rúmlega tólf prósent íslenskra barna eigi á hættu að búa við fátækt. Einu af hverjum tíu börnum í okkar velmegunarsamfélagi er neitað um lífsskilyrði og tækifæri sem öðrum börnum bjóðast, bara vegna fjárhagsstöðu foreldranna. Stærsta orsök fátæktar er að fólk á ekki nægilega mikla peninga. Besta leiðin til að leysa þetta vanda- mál er einfaldlega að tryggja að fátækt fólk eigi meiri peninga. Þetta vitum við. En samt finna stjórnvöld endalausar réttlætingar fyrir því að viðhalda fátækt fólks. Algengasta réttlætingin er að það sé svo dýrt að afnema skerðingar, hækka bætur og tryggja að fólk eigi í sig og á – en það sem fylgir sjaldnast umræðunni er kostnaðurinn sem fylgir því að gera það ekki. Það er nefnilega afar kostnaðarsamt fyrir samfélagið að leyfa fátækt að viðgangast. Nú hef ég fengið skýrslubeiðni samþykkta á Alþingi þar sem samfélagslegur kostnaður fátæktar verður kannaður til hlítar. Skýrslubeiðnin verður vonandi til þess að við hættum að tala um aukið fjármagn til velferðarmála sem útgjöld. Að uppræta fátækt er fjár- festing í fólki og samfélaginu sem skilar sér margfalt til baka. Við þurfum að tryggja efnahagslegt öryggi fólks með auknum beinum framlögum og með því að draga úr skerðingum og skilyrðum í bótakerfinu. Svo þurfum við að hætta að tala um bætur. Þetta er arður, sjálfsagður hluti okkar í sameiginlegri velmegun sam- félagsins. n Við höfum ekki efni á fátækt odduraevar@frettabladid.is Ný Ekki-Menntamálastofnun Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, kynnti í gær að Menntamála- stofnun yrði lögð niður. Hennar í stað verður sett á fót önnur stofnun, sem ekki hefur fengið nafn. Sú stofnun á að tryggja gæði menntunar og aðgengi allra nemenda, foreldra og starfsfólks skóla að samþættri, heildstæðri skólaþjónustu á leik-, grunn- og framhalds- skólastigi, að sögn Ásmundar. Öllu starfsfólki er sagt upp enda er hlutverki stofnunarinnar gjörbreytt að ráðherrans sögn. Gárungum hefur þegar dottið í hug nýtt nafn fyrir stofnunina. Ekki-Menntamálastofnun. Eða hvað? Sinna starfinu Hrós fá starfsmenn Mennta- málastofnunar sem svara fyrirspurnum fjölmiðla um leshraðakannanir þrátt fyrir að þeim hafi verið tilkynnt hálf- tíma áður að þeim verði brátt sagt upp störfum vegna nýrrar stofnunar sem senn verður stofnuð. Blaðið greindi í gær frá grátandi foreldrum og börnum með kvíðahnút í maganum vegna leshraðaprófa. Bráðum atvinnulaust starfsfólk svaraði fyrirspurn um hæl. Það er víst ekki algilt að starfsfólk stofnana hafi yfir höfuð fyrir því að svara fyrirspurnum fjölmiðla sem varða hagsmuni almennings. n KAUPUM BLEIKU SLAUFUNA Sýnum lit á bleikaslaufan.is og á sölustöðum um allt land 1. – 20. október LíFIÐ E að LIFA DAUÐANN AF OG LÍKA VERKFÖLLIN Um leið og aðgengi að upplýsingum hefur aldrei verið betra er upp- lýsingaóreiða ein stærsta ógnin sem að okkur steðjar. Þeir sem hafa fjár- magn til að verja slæman málstað og eiga hagsmuna að gæta, hika ekki við að setja hættulegar maskínur af stað. Í huga margra er hugtakið falsfréttir flokkað í sama hólf og fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, og samfélagsmiðlar – en það er engin nýlunda að mikilvægum upplýsingum sé haldið frá almenningi – og reynt sé að rugla þá í ríminu svo stórfyrirtæki geti haldið áfram að maka krókinn. Í dag er það almenn vitneskja að tóbaksfram- leiðendur vissu vel um skaðsemi reykinga, þær staðreyndir voru aftur á móti slæmar fyrir við- skiptin og því ekki aðeins haldið frá almenningi heldur hann markvisst afvegaleiddur. Það sama má jafnvel segja um áfengis- og sykurframleið- endur í dag og ekki síður þá sem framleiða gervi- sætu en sífellt fleiri gögn um skaðsemi þessara efna eru að koma fram, sem og vísbendingar um þöggun. Enn alvarlegri fyrir okkur öll, og það sem snýr ekki aðeins að einstaklingnum, heldur heild- inni, er umræðan um loftslagsvána sem vísinda- menn hafa lengi varað við. Á dögunum kom út bókin Petroleum Papers, þar sem Geoff Dembicki birtir hundruð trúnað- arskjala því til sönnunar að olíufyrirtæki hafi logið að almenningi áratugum saman og þannig komið í veg fyrir að tekið væri almennilega á vandanum þá þegar. Í bókinni er greint frá því hvernig amerísk olíufyrirtæki virtu að vettugi viðvaranir um loftslagsvandann allt frá árinu 1959. Fyrirtæki á við Shell, Exxon og Koch stóðu að herferðum sem höfðu það markmið að dreifa fölskum upp- lýsingum, og sá efasemdum um þær alvarlegu upplýsingar sem fyrir lágu. Þessi sömu fyrirtæki lögðu gríðarlegt land- svæði í Alberta-fylki í Kanada undir olíusand- vinnslu. Svæði sem í dag býr yfir þriðja stærsta olíuforða heims og gaf olíuráð Bandaríkjanna út skýrslu fyrir tíu árum þar sem ýmsar áhyggjur af olíuvinnslu á jarðbikssvæðum eru viðraðar. Gríðarleg vatnsnotkun er nauðsynleg vinnsl- unni og röskun á dýralífi og jarðvegseyðing er áhyggjuefni auk þess sem frárennslisefni blandast við vatnskerfi svæðisins. Gagnrýn hugsun hins almenna neytanda hefur aldrei verið mikilvægari. Að taka upplýsingum sem yfir okkur flæða sem gefnum er ekki aðeins heimskulegt – heldur beinlínis hættulegt. n Gagnrýn hugsun SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 18. október 2022 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.