Fréttablaðið - 18.10.2022, Blaðsíða 9
Henry Alexander
Henrysson
heimspekingur
Í huga f lestra eiga skólar að vera
nokkurs konar griðastaður þar sem
reynt er að halda á lofti gildum og
siðferðilegum verðmætum sem
efla og ýta undir þroska nemenda.
Skiptir þá litlu máli hvaða skólastig
um er rætt. Öll eiga þau sér vissulega
sína sérstöðu en í grunninn eru það
þó sameiginleg stef sem eiga að vera
leiðarljós í öllu skólastarfi.
Því miður er það svo á heims-
vísu að víða eiga þessi sameigin-
legu stef erfitt með að brjótast
fram. Menntakerfi um allan heim
eru gríðarlega stór iðnaður þótt í
grunninn eigi starfið að snúast um
eitthvað allt annað en framleiðslu.
En fjármagnið sem fer í gegnum
skólakerfi, hvort sem það er opin-
bert eða ekki, gerir það því miður
að verkum að spilling getur skotið
þar rótum.
Það er ekki einungis í skólastarf-
inu sjálfu og námi nemenda sem
slík spilling fær þrifist. Utan skól-
anna sjálfra höfum við séð spretta
upp fyrirtæki sem bæði bjóða upp
á falsaðar háskólagráður og snögg-
soðnar ritgerðir handa nemendum
um allt milli himins og jarðar. Og
gjaldið sem fólk getur greitt til að
komast hjá því að leggja sig fram
við nám stefnir stöðugt niður á við.
Það getur einfaldlega verið ódýrara
að svindla heldur en að ljúka námi
á heiðarlegan máta.
Ég hef verið fulltrúi Íslands í
mörg ár í verkefni á vegum Evrópu-
ráðsins þar sem reynt hefur verið
að finna leiðir til að berjast gegn
þessari þróun (ETINED, Coun-
cil of Europe Platform on Ethics,
Transparency and Integrity in
Education). Hvatinn bak við þetta
starf er ekki síst sá að það sé spurn-
ing um mannréttindi að útskrif-
aðir nemendur fái að njóta erfiðis
síns. Ef traust til menntastofnana í
vissum löndum er farið er lítil von
til þess að tekið sé mark á prófskír-
teinum þaðan. Síðastliðið sumar
samþykkti ráðherranefnd Evrópu-
ráðsins á grundvelli vinnu ETINED
tilmæli sem hvetja aðildarlönd til
þess að taka þessi mál alvarlega og
bregðast við. Í tilmælunum er farið
yfir helstu áskoranir í samtíman-
um og bent á lausnir og viðbrögð
við þeim. Má segja að tilmælin séu
nokkurs konar vitundarvakning.
Vonandi munu tilmælin verða
þýdd yfir á íslensku f ljótlega og
verða tilefni til slíkrar vitundar-
vakningar hér á landi. Auðvitað
erum við betur stödd en mörg
lönd hvað varðar traust til mennta-
kerfisins. Almenningur á Íslandi
ber traust til skóla og íslenskir
nemendur geta auðveldlega nýtt
sér prófskírteini sín til að komast í
nám um allan heim. En það má þó
ekki sofna á verðinum, sérstaklega
ekki á tímum þegar menntastofn-
anir og umhverfi þeirra eru að taka
gríðarlegum breytingum.
Evrópuráðið um siðferðilegt hlutverk menntastofnana
En hvað ætti skólafólk á Íslandi
að hafa í huga þegar tilmæli Evr-
ópuráðsins eru lesin? Ég myndi
hvetja það til að huga að þrennu.
Í fyrsta lagi að vera á verði. Það
sem hefði kannski þótt fjarstæðu-
kennt fyrir nokkrum árum er það
ekki lengur í dag. Einfalt fyrirbæri
eins og það hversu auðvelt er að
verða sér úti um ritgerð á netinu
er mikið áhyggjuefni, til að mynda
vegna þess að sífellt f leiri námskeið
á æðri námsstigum eru kennd á
öðru tungumáli en íslensku. Til-
mælin rekja f leiri slík atriði sem
mikilvægt er að vera á varðbergi
gagnvart.
Þá er einnig mikilvægt fyrir
íslenskt samfélag að vera hrein-
skilið við sig sjálft og gæta að því
hvort þau gildi sem við viljum
sjá í skólastarfi séu ávallt höfð í
hávegum. Gæðamál eru vissulega
tekin mjög alvarlega á Íslandi,
en er mögulegt að hluta þeirra sé
sinnt á ófullnægjandi hátt því við
höldum að við séum ónæm fyrir
alþjóðlegum straumum í okkar
litla samfélagi?
Að lokum vil ég nefna að við
Íslendingar þurfum stöðugt að
gæta að siðferðilegu hlutverki
skóla. Dæmi um spillingu erlendis
sýna að það sem bjó í haginn fyrir
hana var að fólk hélt að það væri í
lagi að gera undantekningar og láta
undan þrýstingi hagsmunaaf la.
Þannig hefur molast úr heilindum
skólanna. Það eru til ýmsar leiðir
til að minna sig á hvaða viðmið
það eru sem ekki má hvika svo auð-
veldlega frá. Mörg lönd sem tengj-
ast Evrópuráðinu hafa til dæmis
undanfarið, og ekki síst í ljósi vinnu
ETINED, farið þá leið að skrá siða-
reglur fyrir skólakerfið. Á Íslandi
þekkjum við þá leið ágætlega og
erum vel á veg komin með slíka
skráningu. Tilmæli Evrópuráðsins
gætu hins vegar orðið okkur tilefni
til að ræða hvort við tökum siða-
reglurnar nægilega alvarlega. n
Kauptu Galaxy Flip4 og fáðu Galaxy Tab A8 spjaldtölvu í kaupauka (Virði 44.900 kr.)
Flippaður kaupauki í október
samsungmobile.is
Jesús sagði:
biblian.is
„Gangið inn um þrönga
hliðið ... Hve þröngt er það
hlið og mjór sá vegur er
liggur til lífsins og fáir þeir
sem finna hann.“
Matt. 7.13-14
ÞRIÐJUDAGUR 18. október 2022 Skoðun 9FRÉTTABLAÐIÐ