Fréttablaðið - 18.10.2022, Page 12
„Við fengum afhent í nóvember
2020 og fluttum inn í desember
sama ár. Íbúðin hafði lengi verið
í útleigu svo hún var orðin frekar
sjúskuð. Það þurfti þó ekki mikið
að gera áður en við fluttum inn
annað en að mála og snyrta. Við
pússuðum líka gólfin og olíu-
bárum. Einnig hafði fatahengi
verið innbyggt í eitt barnaher-
bergið svo við brutum það niður.
Þá settum við upp vegg og skiptum
upp stofunni svo allir heimilis-
meðlimir fengju sitt rými,“ segir
Auður Ýr.
Íbúðin er að sögn Auðar skráð
67 fermetrar en þar sem stór hluti
hennar er undir súð er gólfflötur-
inn yfir hundrað fermetrum. „Ég
heillaðist strax af íbúðinni enda
finnst mér risíbúðir alltaf svo
sjarmerandi. Maðurinn minn var
ekki jafnhrifinn í fyrstu enda er
hann hávaxinn. En þetta gengur
vel upp,“ segir hún.
„Það besta við íbúðina er and-
inn, myndi ég segja. Okkur líður
vel hérna og stærðin og uppsetn-
ingin virkar vel fyrir fjölskylduna
okkar. Staðsetningin er líka frábær.
Það er stutt í vinnuna fyrir okkur
bæði og krakkarnir geta labbað í
rútuna sem fer með þau í skólann.
Vinur okkar býr svo rétt hjá og
mamma líka.“
Vildi liti á veggina
Auður vissi það snemma að hún
vildi mála veggi íbúðarinnar. „Í
gömlu íbúðinni máluðum við
aldrei og var hún öll hvít nema
einn veggur sem fyrri íbúi hafði
málað. Mér fannst mjög leiðinlegt
að búa í þrjú ár í húsi þar sem allt
er hvítt og var staðráðin í því að
setja alls konar liti á veggina í nýju
íbúðinni. Það var líka eitt af því
fyrsta sem við gerðum. Við völdum
til dæmis skítugan bleikan inn í
svefnherbergið. Sjálfa langaði mig
í kokteilsósubleikan í stofuna, en
maðurinn var ekki hrifinn af því,
svo við gerðum samkomulag um
að mála með hamborgarasósu-
bleikum í staðinn, sem er ágætis
millivegur.
Baðherbergið máluðum við
fyrst dökkfjólublátt. En þegar við
fengum gefins sinnepsgult klósett
og handlaug í stíl fannst okkur lita-
samsetningin ekki passa nógu vel,
svo við máluðum það skærgrænt
í staðinn. Við leikum okkur mjög
mikið með litina í íbúðinni og við
málum alla veggina, ekki bara einn
vegg í hverju herbergi. Á baðher-
berginu máluðum við líka loftið,
en herbergið er undir súð. Það
kemur mjög vel út,“ segir Auður.
Hlutirnir birtast í lífinu
„Ég myndi segja að við séum
bæði með frekar svipaðan stíl
sem ég myndi lýsa sem hlýjum,
skandinavískum bóhemstíl. Þegar
maður byrjar að búa er svo auðvelt
að kaupa bara allt í IKEA en fyrir
nokkrum árum tókum við með-
vitaða ákvörðun um að reyna hægt
og rólega að skipta út IKEA-hús-
munum. Við erum bæði hrifin af
því að safna alls konar hlutum og
einhvern veginn hefur flest það
sem við höfum sankað að okkur
verið frítt eða að minnsta kosti
mjög ódýrt. Við leitum mikið í
nytjamarkaði og kaupum notað á
netinu, en annars eiga hlutir það til
að birtast í lífi okkar og hér hefur
ýmislegt safnast saman héðan og
þaðan.“
Auður segist að sumu leyti
fylgjast með innanhússhönnun.
„Ég fylgi nokkrum Instagram-
reikningum, kaupi mér stundum
tímarit um innanhússhönnun og
fleira. Ég held að sú staðreynd að
ég hafi alist upp í Waldorfskóla
sem krakki hafi haft áhrif á stílinn
minn. Það er ákveðin fagurfræði
á bak við Waldorfstefnuna sem
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Jóhanna María
Einarsdóttir
jme
@frettabladid.is
Auður starfar
sem húðflúrs-
listmaður og
maðurinn
hennar starfar
hjá minjavernd.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Þeim skötu-
hjúum finnst
skemmtilegt
að gera fallegt
í kringum sig
og nýta hvert
tækifæri til
þess. Þessi
fallega blúnda
kemur vel út
sem glugga-
tjöld í erfiðan
en sjarmerandi
glugga.
Sinnepsgula klósettið kemur stór-
skemmtilega út með græna litnum
inni á baðherberginu.
Auður lærði að spila á selló þegar
hún var yngri og tekur það enn þá
fram til að æfa sig.
Auður segir að einn af sínum uppá-
haldshlutum sé smámunahillan.
Stofan fékk girnilega andlitslyftingu með hamborgarasósulitum veggjum.
kemur líka inn í innanhúss-
hönnun og snýst um að setja fókus
á náttúruleg efni með mjúkar
línur. Þetta hefur haft mikil áhrif
á það hvernig ég vil hafa hlutina í
kringum mig.“
Persónuleg list
Á veggjum íbúðarinnar má sjá
dágott safn af fallegum listaverk-
um sem Auður segir að séu mörg
hver eftir listamennina í lífi þeirra.
„Systir mannsins míns er til dæmis
ljósmyndari og við eigum verk
eftir hana. Svo er maður mömmu
minnar listamaður. Við maðurinn
minn kynntumst í menntaskóla og
fórum saman út til Bandaríkjanna
í framhaldsnám í listaháskóla. Þar
skiptumst við oft á listaverkum við
samnemendur okkar.
Uppáhaldsverkið mitt í augna-
blikinu er ofið veggverk sem ég
fékk í afmælisgjöf. Svo held ég
mikið upp á smáhlutahilluna þar
sem ég á samansafn af alls konar
pínulitlum hlutum sem mér þykir
vænt um. Einnig elska ég eldgömlu
ritvélina mína sem maðurinn
minn gaf mér á fyrsta brúðkaups-
afmælinu okkar. Hún virkar enn
þá og hefur meðal annars verið
notuð sem gestabók í brúðkaupi.“
Í stofunni stendur svo gullfallegt
selló upp á rönd. „Ég held líka
mikið upp á það. Stundum tek ég
það fram og þykist kunna að spila
á það,“ segir Auður sem lærði að
spila á selló sem barn.
Húsgögn og húðflúr
Nokkrir hlutir á heimilinu eru
smíð eiginmanns Auðar Ýrar,
Marinós, en þegar hann var í kvik-
myndafræði í Bandaríkjunum tók
hann valáfanga í húsgagnasmíði.
„Hann smíðaði til dæmis fallega
kommóðu sem við erum með í
stofunni. Einnig smíðaði hann
hillurnar í svefnherberginu, skrif-
borðið okkar, kolla og ýmislegt
fleira. Hann hefur eitthvað verið
að selja húsgögn sem hann smíðar
en starfar annars hjá Minjavernd.“
Auður Ýr starfar sem húðflúrs-
listamaður á Íslensku húð-
flúrstofunni og hefur verið að
húðflúra í sextán ár. „Ég lærði
myndskreytingu í háskólanum
í Bandaríkjunum með fókus á
barnabókateikningu. Ég hef verið
að gera verk fyrir barnabækur
líka og nota grunninn í náminu
í húðflúrslistina mína. Ég myndi
segja að það sé ákveðin barnaleg
og myndskreytingarleg tilfinning
í teikningunum mínum,“ segir
Auður að lokum. n
Fyrir áhugasama er hægt að
fylgjast með húðflúrlistaverkum
Auðar á Instagram: auduryrtattoo.
2 kynningarblað A L LT 18. október 2022 ÞRIÐJUDAGUR