Fréttablaðið - 18.10.2022, Blaðsíða 28
Fram koma
JFDR, Sóley,
Moses High
tower, Snorri
Helgason og Of
Monsters and
Men.
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
VEFVERSLUN
www.betrabak.is
OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN
Stærð Verð með botni Tilboð
160 x 200 cm 424.900 kr. 339.920 kr.
180 x 200 cm 464.900 kr. 371.920 kr.
200x200 cm 504.900 kr. 403.920 kr.
SERTA HEILSURÚM (dýna, botn, gafl og lappir)
YORK
FIMM STJÖRNU HÓTELRÚM FRÁ SERTA
YORK eru með Serta Splendid Royal heilsudýnu frá Serta. Hún
er fimm svæðaskipt pokagormadýna með góðum stuðningi við
mjaðmasvæði og mýkri við axlarsvæði. Einstakt pokafjöðrunarkerfi
sem lagar sig að þér og tryggir rétta svefnstellingu.
SERTA HEILSUDAGAR
20% AFSLÁTTUR
AF SERTA DÝNUM OG RÚMUM
V
er
ð
o
g
v
ö
ru
u
p
p
lý
si
n
g
ar
í
au
g
lý
si
n
g
u
n
n
i e
ru
b
ir
ta
r
m
eð
fy
ri
rv
ar
a
u
m
p
re
n
tv
ill
u
r.
Nú 212.496 kr.
MASTERPIECE DÝNA
OG BOTN
Vönduð heilsudýna frá Serta. Aðlagast að líkama þínum og
veitir þér fullkominn stuðning. Fimm mismunandi heilsu-
og hægindalög sem aðlagast að þér og gefa þér þá mýkt sem
þú þarft en um leið stuðning. Náttúrulegt latex gefur henni
sneggra viðbragð og góða öndun. Tilvalin í stillanleg rúm sem
og önnur rúm.
140x200 cm. Verð 265.620 kr.
Landvernd blæs til Hálendis-
hátíðar þann 19. október í
Gamla bíó. Þar stíga kanónur
íslenskrar tónlistarsenu
á svið, JFDR, Sóley, Moses
Hightower, Snorri Helgason
og Of Monsters and Men.
ninarichter@frettabladid.is
„Hugmyndin er bein tenging við
þessa umræðu um hálendisþjóð-
garð,“ segir Hafþór Óli Þorsteinsson,
viðburðastjóri Landverndar. Hann
segir að þrátt fyrir að ekki beri eins
mikið á umræðunni um þjóðgarð-
inn og áður, þá viti hann til þess að
fjöldi manns vilji þjóðgarð. „Þessi
hugmynd hefur blundað í okkur
lengi fyrir Covid, að fyrst og fremst
hafa gaman,“ segir Hafþór.
„Oft er tilfellið með náttúru-
verndina í heild sinni að þetta
verður skotgrafahernaður,“ segir
hann og bætir við að vel sé hægt að
hafa gaman og tengja gott málefni
við góða tónleika.
Nokkur hefð hefur skapast fyrir
því á Íslandi að tónlistarfólk beiti
sér fyrir vernd náttúrunnar, og er
Björk Guðmundsdóttir þar frægust,
en hún hefur ritað greinar, haldið
tónleika og staðið fyrir viðburðum
til styrktar málefninu. Aðspurður
hvers vegna tónlistarfólk sé svo
ötult í þessari baráttu svarar Haf-
þór:
„Ég held að náttúran gefi Íslend-
ingum svo margt sem við áttum
okkur aldrei almennilega á. Sér-
staklega ef maður fer upp á hálend-
ið. Þar eru þessi gífurlegu verðmæti
sem við eigum í náttúrunni. Þetta
óspillta víðerni og þessir frussandi
fossar, eldhraunið og allt.
Þetta gefur manni svo ótrú-
lega mikið og maður áttar
sig ekki á því hversu dýr-
mæt þessi óspillta náttúra
er fyrr en maður hefur
upplifað hana,“ segir hann.
Hafþór segir að greiðlega
hafi gengið að fá tónlistar-
fólk með í verkefnið, en taka
skal fram að allt listafólkið
gefur vinnu sína. „Um leið og
orðið fór að berast, að við værum
með tónleika fyrir hálendið, þá
hlupu tónlistarmenn undir bagga,“
segir hann. „Fjármagnið sem safn-
ast af þessum tónleikum verður
nýtt í áframhaldandi baráttu og
vitundarvakningu fyrir verndun
hálendisins.“
Haf þór segir umræðuna um
náttúruvernd oft litast af rifrildum
og átökum. „Með þessu viljum við
undirstrika það jákvæða sem við
eigum,“ segir hann. Aðspurður segir
Haf þór að náttúruvernd sé vissu-
lega inn í dag. „Já. Mér finnst það.
Þetta er orðið svo samofið öllu sem
við gerum. Þetta er framtíðin og er
ekki framtíðin alltaf kúl?“ n
Hálendishátíð tengir gott
málefni við góða tónleika
Á íslenskt
mál kynhlut-
laust orð yfir
foreldri, það
er, ávarpsorð
á borð við
mamma eða
pabbi?
Daníel E. Arnarson
framkvæmdastjóri Samtakanna ’78.
Rokksveitin Of Monsters and Men hefur slegið í gegn á heimsvísu. Sveitin gefur vinnu sína í þágu náttúruverndar á
Hálendishátíð sem fram fer þann 19. október. Miðasala á viðburðinn er í fullum gangi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
n Lykilspurningin
Hafþór Óli
Þorsteinsson
„Það er í raun ekki til, þannig
séð. Bara foreldri,“ segir Daníel E.
Arnarson aðspurður um hugsan-
leg nýyrði í þessu samhengi. „Svo
hefur maður heyrt krakka nota
alls konar, mamba, mápi og fleira.
Ekkert endilega sem kynhlut-
laust, bara til dæmis ef það eru
tvær mömmur eða tveir pabbar í
for eldrapari,“ segir framkvæmda-
stjórinn. n
ninarichter@frettabladid.is
Íslensk hönnunarvara lýsir upp
Reykjavík á ljósaskiltum alla vik-
una. Átakið „Þetta er íslensk hönn-
un“ er hugarfóstur Eyjólfs Pálssonar
stofnanda Epal. Átakið fór fyrst
af stað í fyrra, vakti mikla athygli
og vann til gullverðlauna í keppni
Félags íslenskra teiknara.
„Þetta er bara ástríða mín fyrir
íslenskri hönnun,“ segir Eyjólfur í
samtali við Fréttablaðið. „Að gera
hana sýnilegri og reyna að tryggja
að hún njóti verðskuldaðrar viður-
kenningar. Ekki bara á húsgögnum
og ljósum heldur bara almennt,
þetta er svo rosalega víðtækt svið.“
Eyjólfur segir að þess vegna
megi sjá hönnun fyrirtækja á borð
við Marel, Össur og CCP á ljósa-
skiltunum, í bland við hönnun frá
66°Norður. Hann leggur sömuleiðis
Íslensk hönnun lýsir upp stræti
Reykjavíkurborgar í heila viku
áherslu á að átakinu sé ekki ætlað að
vera auglýsing heldur kynning á því
hversu víðtækt fagið er.
Eyjólfur vann verkefnið í sam-
starfi við Miðstöð hönnunar og
arkitektúrs, sem var honum innan
handar við að útbúa lista yfir vörur
sem endurspegla hina gríðarlegu
breidd sem einkennir íslenska
hönnun. „Við viljum vekja athygli
á fjölbreytileika hönnunar og í ár
voru sextíu hönnunarvörur frá
jafnmörgum hönnuðum valdar til
að prýða borgarumhverfið,“ er haft
eftir Eyjólfi í fréttatilkynningu sem
send var á fjölmiðla í gær. Þar kemur
einnig fram að forsendur þátttöku
séu að varan sé nú þegar í fram-
leiðslu og sölu.
Um er að ræða þrjátíu stóra skjái
auk þrjú hundruð skjáa í strætis-
vagnaskýlum. Myndir úr átakinu
birtast þar á mínútu fresti. nEyjólfur Pálsson
16 Lífið 18. október 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 18. október 2022 ÞRIÐJUDAGUR