Fréttablaðið - 18.10.2022, Side 30
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@
frettabladid.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrir@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078:
Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolbeinn@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
www.husgagnahollin.is
Sími: 558 1100
*Verð og vöru upp lýsingar í auglýs ingunni eru birtar með fyrirvara um prentvillur.
Taxfree tilboðið gildir af öllum sófum, sófaborðum, mottum, púðum og teppum
nema sérpöntunum og jafngildir 19,35% afslætti. Að sjálfsögðu fær ríkissjóður
virðisaukaskatt af söluverði. Afslátturinn er alfarið á kostnað Húsgagnahallarinnar.
Tilboð gildir ekki af sérpöntunum.
TAXFREESÓFAVEISLA
TAXFREE AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM SÓFUM, SÓFABORÐUM,
PÚÐUM, TEPPUM OG MOTTUM
CHARLIETOWN
3ja sæta sófi í dökkgráu sléttflaueli.
219x88x78 cm. 137.097 kr. 169.990 kr.
SALTO
Hornsófi. Hægra eða vinstra horn.
275x216x85 cm. 298.397 kr. 369.990 kr.
KIRUNA
3ja sæta sófi. Dökkgrátt áklæði. 227x90x78 cm.
112.902 kr. 139.990 kr.
PINTO
U-sófi í Kentucky koníakslituðu bonded
leðuráklæði. Hægri eða vinstri tunga.
349x206x85 cm. 338.722 kr. 419.990 kr.
MAX
U-sófi, hægri eða vinstri tunga.
286x200x87 cm. 161.292 kr. 199.990 kr.
LIAM
Tungusófi með hægri eða vinstri tungu.
267x160x93 cm. 387.112 kr. 479.990 kr.
Silja Rós sendir frá sér nýtt
lag á föstudag, Lie just to lie.
Lagið er samið í Danmörku
í heimsfaraldri. Myndband
lagsins var tekið upp í Los
Angeles í apríl á aðeins fimm
klukkustundum.
ninarichter@frettabladid.is
Tónlistarkonan Silja Rós er nýkom
in heim frá París þar sem tónlistar
hátíðin og bransaráðstefnan MaMA
fór fram. „Þarna var margt fræð
andi. Ég var bara á ráðstefnunni
og aðeins að kynna mér alþjóðlega
markaðinn,“ segir hún.
Silja Rós gefur út nýtt lag á föstu
dag samhliða tónlistarmyndbandi
sem frumsýnt er á YouTube. „Lagið
heitir Lie just to lie. Ég samdi það
í Kaupmannahöfn haustið 2020
ásamt lagahöfundi sem ég hef unnið
mikið með, René Andreas Kowal
czyk,“ segir hún. Þau René kynntust
í ritsmiðju í Kaupmannahöfn sem
var haldið á vegum útgáfufyrir
tækisins The Arrangement.
„Ég hef oft reynt að kryfja hvaðan
hugmyndin og textinn kom en ég
held að sögur okkar beggja hafi
blandast svolítið saman í þessum
heimi. Þetta byrjaði allt á gítar
grunni þannig að innblásturinn
hefur komið frá melankólískum
hljómum,“ segir Silja Rós og hlær
dátt.
Að sögn Silju Rósar sömdu þau
René tónlist saman hér um bil allan
tímann sem hún var búsett í dönsku
höfuðborginni. „Maður var svolítið
að þessu þegar maður gat ekki verið
að gigga. Þá var maður bara inni í
stúdíói,“ útskýrir hún.
Aðspurð hvort Danir séu jákvæðir
í garð íslenskrar tónlistar, segir
Silja Rós svo vera. „Það kom mér
skemmtilega á óvart. Það var meiri
áhugi en ég hefði haldið. Það var
júník að vera Íslendingur og það
hjálpaði mér. Ég var fljót að mynda
nýtt tengslanet þar.“
Sem stendur er lagið sjálfstæð
útgáfa. Silja Rós segist þó vera með
nýja plötu í vinnslu sem komi út
næsta sumar. „Eftir áramót koma
út fleiri lög af plötunni,“ segir hún.
Myndband lagsins var tekið upp í
Los Angeles í apríl. „Ég bjó þar heil
lengi og komst fyrst aftur þangað
eftir Covid í apríl. Ég var búin að
vinna með kvikmyndagerðarmanni
sem heitir Taylor McWhorter sem er
búinn að vera vinur minn í mörg ár.
Segir áhugann í Danmörku
koma ánægjulega á óvart
Það var meiri áhugi en
ég hefði haldið. Það
var júník að vera
Íslendingur og það
hjálpaði mér. Ég var
fljót að mynda nýtt
tengslanet þar.
Silja Rós vinnur um þessar mundir að sinni þriðju plötu sem hún stefnir á að gefa út næsta sumar. MYNDIR/SAGA SIG
Silja Rós segist oft hafa reynt að kryfja hvaðan hugmyndin að laginu Lie just
to lie er komin. Hún samdi lagið í Danmörku ásamt René Andreas Kowalczyk.
Ég sýndi honum lagið sem var tilbú
ið á þeim tíma og þá ákváðum við að
kýla á það og taka upp myndband á
meðan ég væri þar,“ segir Silja Rós,
sem bætir við að vinnan hafi gengið
gríðarlega vel og tökur hafi staðið
yfir í aðeins fimm klukkustundir.
„Við erum vön að vinna saman og
komum úr sama skóla. Þegar maður
er að vinna með einhverjum sem
maður treystir svona rosalega vel
þarf ekki eins mikla grunnvinnu og
maður er svo mikið í mómentinu.“
Í fyrra sendi Silja Rós frá sér
plötuna Stay Still. „Ég fylgdi henni
eitthvað eftir í ár, var með útgáfu
tónleika í mars og er búin að vera
að spila hana síðan,“ segir hún. „Sú
plata átti að vera löngu komin út,
og ég fylgdi henni eftir eins og ég
nennti,“ útskýrir Silja Rós en bætir
við að hún hafi farið rakleiðis eftir
útgáfutónleikana í stúdíóið að taka
upp nýtt efni. n
18 Lífið 18. október 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ