Heimar - 01.02.1935, Blaðsíða 8

Heimar - 01.02.1935, Blaðsíða 8
H E I M A R framhjá vegvísum. Á miðjum sandi eru tvær smá ár eða kvíslar með mjög stuttu millibili, og falla þær saman spölkorn fyrir sunnan veginn, þær fi jósa mjög sjaldan því að í þeim er „kaldavermsl8. Þeir félagar koma nú að þessu kvislum og komast. taf- arlítið yfir þá vestri, en er þeir koma að þeirri eystri, „Blautukvísl”, þá er hún kæfð af snjó og frosin nokkuð. Þeir reyndu ísinn og fundu að hann var ótraustur, en héldu þó að fært mundí yfir. Þeir höfðu meðferðis tvo hesta og fisk á þeim. Lögðu þeir svo útá kvíslina, en er miust varbi fór annar hesturinn ofaní, þó tókst þeim að ná honum upp, en á meðan mistu þeir hinn hestinn út í bylinn og vissu ógjörla hvað um hann varð. Þeir fóru nú að reyna að finna hatm, en við það týndu þeir hvor öðrum og hittust ekki aftur. Peir hröktust ákaflega við að ná hestinum upp úr kvíslinni og frusu því föt þeirra brátt. Á laugardag um kl. 2 koin Jón að Mýium í Álftaveri, nær dauða en lífi og tæpast með fullri rænu, gengmn inn í bein á öðrum fætí, kalinn á fótum, höndum og andliti. enda var hann þá buinn að berjast uti í grimdar norðan gaddi í 30 kl.st., allslaus á berangri þar sem ekkert skjól var að finna. Að hann skyldi lífi halda allan þann tíma, virðist óskiljanlegt, en ferðasaga sú er hér fer á undan er eins og hann sagði mér hana. Þegar Jón kom til bæja var veður farið að lægja svo að sást ofaná bæi, en ver mun hafa sést á mann upp úr byikófinu, samt var þegar safnað nokkrum mönnum til þess að gera leit að Porsteini og hestunum, og fundu þeir hestana á tungunni á rnillí áðurnefndra kvísla, en hvorki fundu þeir Þorstein eða flutning þann sem á hest- unuin hafði verið. Árla sunnudagsmorgun, var enn hafin leit. Ég var þá með leitarmönnunum, þá var komið þið- viðri og gott veður og er við komum að Blautu- kvisl var hún ófær á veginum, vatnið svall yfir ísinn, sem hún var nú byrjuð að bijóta af sér. Við fórum því langt upp með henni til að komast yfir, en er við komum á vestri bakkann og ég horfði niður með kvíslinni sá ég nákvæmilega sama landslag og mér birtist í draumnum. Við héldum svo niður með kvíslinni þar til ég var kominn á möts við þar sem mér í drauminum þótti selurinn liggja, þá vorum við nú staddir á margra metra háum geysilóngum snjóskafli. Ég rendi mér á stöng niður skaflimi, niður að vatni og bað samleitarmenn mína að renna til min skóflu. Ég byrjaði aö moka í skaflinn niður með vatni, og er ég tók á skófluna í þriðja sinn sá ég á skóflunni þveng, en bann var fastur í skó á fæti Éorsteins sáluga. Éar lá hann á beium sandi und- ir hinni gríða stóru fönn, er vel hefði getað hulið þúsundir manna. Ég er ekki í neinum vafa um að það var eingöngu draumnum að þakka að ég var svona einkennilega fundvís, enda hefir seladráp í draumi ætið verið mér fyrir vofeiflegum mannadauða. Jón lagðist af kalsárum, og dó af drepi eftir 8 eða 10 daga og votu þeir félagar báðir lagðir í sömu gröf. Jön þessi var afi Oskars prófasts Por- lákssonar á Siðu og faðir frú Sigríðar á Hofi hér. Margir menn lifa. enn er uppi votu í Álftaveri er atbntður þessi gerðist. Tilvísun í draumi. Eftir Jón Sverrisson. Bærinn „Sandar" í Meðallandi i Vestur- Skaftafellssýslu stendur eins og kunnugt er á hólma í miðju Kúðafljóti, en það er eitt með allra stærstu vatnsföllum hér sunnanlands. Hólmi sá er bærinn stendur á er nefndur bæj- arhólmi, og stendur bærinn austan á honum og því örskamt að vátninu, sem rennur oftast alveg við túnið. Eins og að líkindum lætur verður það oft- ast hlutskifti þeirra er á Söndum búa, að leið— beina ferðamönnum yfir Kúðafljót, ýmist á hest- um, ferju eða ís, eftir því sem á stendur, og hafa af því vinnutöf og hrakninga, oftast án endurgjalds. — Þegar sá atburður gerðist er í i

x

Heimar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimar
https://timarit.is/publication/1704

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.