Heimar - 01.02.1935, Blaðsíða 15

Heimar - 01.02.1935, Blaðsíða 15
H E I M A R 1 5 4 Anuars var dauði Ludvigs Dahls sjálfs einnig sagður fyrir og hvenær hann bæri að höndum. Er það mjög vottfast, Retta var einnig fyrir miðlun frú Ingibjargar. Er mér sagt að eínhverjir bjálfar í hínni norsku prestastétt hafi kært frúna fyrir að hafa verið völd að dauða bæjarfógetans með þess- um spádómi. Þegar hlutir eru fluttir á „dulrænan" hátt inn á fundi með miðluin, er þetta kallað „apport". Stundum vita menn ekkert hvaðan hlutirnir koma en stundum er hægt að rekja það. Einn kunnur miðill í þessa átt er Lajos Pap, Budapest. Hinn 1. desember f. á. komu flmm gömul skjöl (giftingarvottorð og fjögur skírnar- vottorð) með þessum hætti á fundinn. Það var haft uppi á eigendunum. Kom í ijós að skjölin voru sett í skjalasafn í Budapest árið 1930, en höfðu síðan horflð þaðati og hafði komið unrkvörtun um þetta. Afrit af umkvörtun þessari er nú 1 höndum Dr. Chengery Pap sem stjórnaði fundinum á rannsóknarstofu sinni. Eigendurnir heimta nú skjölin. En Dr. Pap neitar og óskar að mál sé höfðað. Hann hefur sjö vitni að því á hvern hátt skjölin komu í hans hendur. Hann vonar að vekja með þessu sérstaka athygli á fyrirbrigðinu og raunveruleika þess. (Eftir Light). „Þráðlaus flutningur“. Að sálræn fræði sé á ýmsum sviðam vel á á undan vísindunum má m. a. marka af þess- um útdrætti úr bók próf. Lou: Hin furðulega veröld sem framundan er. „Úrslitasigur radio-verkfræðinganna verður þegar tímar líða fram er þeir eru búnir að finna aðferð til þess að senda efni staða á milli „þráðlaust". Það er engín teóretisk fjarstæða. Lögmálin sem notuð verða eru þau hin sömu, sem nú eru notuð til þess að flytja hljóð lang- ar leiðir. Efninu er breytt í etersveiflur og þeim aftur á viðtökustaðnum í efnið sjálft eins og það var. Það á ekki að vera ógerningur að setja t. d. pennaskaftið sitt í þar til gert tæki, opna fyrir straumi og sjá skaftið síðan smáhverfa er það leystist upp í rat'magnseindir þær, sem það er myndað úr. en síðan er þjapp- að saman aftur á öðrum stað. Enda þótt þetta kunni að þykja óhemju fjarstæða er það rök- rétt ályktun af því, sem við vitum um atóm- urnar eða frumeindir efnisins. Oss á ekki að þykja þetta neitt ótrúlegra eða ómögulegra en mannfólkinu á nííjándu öldinni að geta talað milli staða í órafjarlægð án þess að þráður væri á milli." •— — — Blaðið „Light“ sem þetta er tek- ið úr bætir við nokkrum athugasemdum um flutning af þessu tæi í sambandi við miðla. Því verður ekki neitað að vísindi nútímans gera mönnum auðveldara að skilja (og þessvegna trúa) hinum margvíslegu svonefndu dularfullu fyrirbrigðum. — Ernest Vickers vélaverkfræðingur, sem er „fysiskur" miðill, þ. e. a. s. efnisleg fyrirbrigði gerast kringum hann svo sem flutningar o. fl., hefur ritað bók þar sem hann lýsir þróun hæfiieika þessa hjá sér. Eins og við er eð búast og fleiri hafa sagt frá fylgja því bæði líkamleg og andleg óþægindi. Yirðist mér engin furöa enda þótt miðlar fái borgun fyrir þetta starf sitt eins og hverja aðra vínnu. Hitt er annað mál að mjög er æskilegt að miðillinn vinni starflð ekki peninganna vegna. En margir hneykslast enn þann dag í dag á að miðill leggur ekki þetta allt á sig fyrir ekkert. Þeir halda sumir að það sé bara barnaleikur fyrir miðilinn en aðrir vilja heimta það af öðrum, sem þeim dytti ekki í hug að heimta af sjálfurn sér. Eðlilegast þegar miðill gefur kost á sér, að þeir slái sig saman um að borga honum sem áhugann hafa. Hann er ekki ef menn tíma ekki að sjá af einhverju til þessa. í rauninni ættr-

x

Heimar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimar
https://timarit.is/publication/1704

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.