Í fótspor Meistarans - 01.06.1939, Side 2
Athyglisverðar tölur
S. D. Aðventistar reka hina heimsvíðtæku starfsemi
sína í 385 löndum, eyjum eða eyjaklösum á 71ð mismun-
andi tungumálum. Þeir reka 163 heilsuhæli, sjúkrahús
og minniháttar lækningastofur víðsvegar um heiminn.
Næstum 700.000 sjúklingar fá árlega hjálp á þessum
stofnunum. Þeim, sem ekki hafa hcift efni á að borga
fyrir sig, hefur verið hjátpað endurgjaldslaust, og nam
þessi ókeypis læknishjálp síðastliðið ár nálægt ll/> milj-
ón króna.
S. D. Aðventistar hafa 2800 líknarfélög, og hafa þau
mörgum þúsundum sjálfboðaliða á að skipa í starfinu,
sem hjálpa sjúkum, safna saman og gefa út mat og
klæðnað til fátækra, stofna heimili fyrir munaðarlausa,
hjálpa unglingum til að fá kristilega menntun og til að
læra eitt eða annað handverk sér til lífsframdráttar.
Árið 1937 var meira en einni miljón fatnaða úthlutað til
bágstaddra. Auk þess voru mörg tonn af sáraumbúða-
vörum send til kristniboðslækna á þeim stöðum, sem
neyðin var mest. Sama ár gáfu læknar vorir og hjúkr-
unarkonur næstum eirini miljón sjúklinga ókeypis lækn-
ish jál p.
Vér myndum ekki geta framkvæmt allt þetta starf til
að draga úr neyð manna ef ekki kæmi til fjárhagsleg
hjálp vina vorra víðsvegar um heiminn. En beiðnir koma
til vor um enn meiri hjálp. Þessvegna biðjum vér vini
vora enn á ný um hjálp, til þess að vér getum stutt að því,
að bæta kjör þeirra meðbræðra vorra, sem verst eru
settir.