Í fótspor Meistarans - 01.06.1939, Blaðsíða 3
Frá Nýju-Hebridiseyjun-
um í Kyrrahafinu.
— Kristniboðsbáturinn
liggur fyrir akkerum.
Fagnaðarerindið
til alls heimsins.
Jesús var spámaður og leit yfír
allan heim. Hann dó til að bæta úr
þörf heimsins. Þegar hann steig upp
til Föðurins, eftir að starfi hans hér
á jörðu var lokið. fékk hann fylgj-
endum sínum heimsvíðtækt verk að
vinna þegar hann sagði: „Mér er
gefíð allt vald á himni og jörðu;
farið því og gerið allar þjóðir að
lærisveinum .... Og sjá, ég er
með yður alla daga, allt til enda
veraldarinnar.“ Matt. 28, 18—20.
Hann bauð einnig lærisveinum sín-
um að vitna um hann, allt til endi-
marka jarðarinnar. Post. 1, 8.
Þegar Páll, hinn mikli postuli og
kristniboði, var gagntekinn orðinn af
boðskap Drottins síns, og hinu heims-
víðtæka kristniboðsstarfi, sem hon-
um var sýnt, áminnti hann hina trú-
uðu Kólossumenn á þessa leið:
„Látið ekki hreyfast frá von þess
fagnaðarerindis, sem þér hafið heyrt,
og prédikað hefir verið hjá allri
skepnu undir himninum, og er ég,
Páll, orðinn þjónn þess.“ Kol. 1, 23.
Þessi heimsvíðtæka sjón hefir
ávallt verið sá máttur, sem knúð
hefir fylgjendur Krists áfram, og
sannar greinilega áforin Guðs, eins
og það var lagt fram fyrir lærisvein-
ana og framkvæmt af þeim um liðn-
ar aldir.
I hinum síðasta fagnaðarboðskap,
sem flytja skal öllum heimi rétt á und-
an endurkomu Krists, verður einnig
þessi heimsvíðtæka sjón undirstrik-
uð. I Opinberunarbókinni lesum vér,
að „eilífur fagnaðarboðskapur“ skuli
i LAND380KA5AFN
i jys 147363
1