Í fótspor Meistarans - 01.06.1939, Side 5

Í fótspor Meistarans - 01.06.1939, Side 5
lega hafa verið uppgötvuð. Þar búa nálægt 350,000 heiðingjar á mjög lágu menningarstigi, þeir búa í léleg- um torfkofum, og hafa hvítir menn hingað til ekkert um þá vitað. Nokkr- um mánuðum áður en ég kom, hafði fyrsti hvíti kristniboðinn á þessum stöðvum safnað að sér nokkrum inn- fæddum drengjum og kennt þeim. I dag, aðeins þremur árum síðar, höf- um vér hér um bil 40 skóla og kristniboðsstöðvar meðal þessara fyr- verandi villimanna. Frá öllum löndum koma beiðnir um fleiri kennara. Þekkingarþorstinn virðist vera þessum mönnum í brjóst borinn, og það er einn hluti af fyr- irætlun Guðs, að evangeliskir kenn- arar skuli fara út og kenna þeim. Bækur og rit eru eitthvert bezta fræðslumeðalið. Vér höfum hingað og þangað í ýmsum löndum 7 5 stór bókaútgáfuhús, og fjöldamargar smærri bókaútgáfudeildir, sem prenta bækur og rit á ekki færri en 194 tungumálum. Líf mörg þúsund manna og kvenna hafa gerbreytzt fyrir áhrif slíkra kristilegra bókmennta. Meir en 3400 bóksalar hafa helgað líf sitt þess konar trúboðsstarfi. Munnleg' boðun. Prédikunarstarfsemin er eitthvert áhrifamesta og ávaxtasamasta með- alið til framgangs fyrirætlun Guðs. Öll kristniboðsfélög úti um heiminn hafa trú á og framkvæma þess konar trúboðsstarf. Sjöunda dags Aðventistar starfsetja hér urn bil 8000 vígða prédikara og kristniboða, sem verja öllum tíma sínum til að prédika, og fer það starf fram á meir en 700 ólíkum tungumálum. Þeir leitast við að boða „fagnaðarboðskapinn um ríkið“, og vegsama Frelsarann, sem dó oss til réttlætingar, reis upp oss til helgunar, og mun innan skamms koma í skýjum himins, til að gera þá vegsamlega, sem vaka og bíða hans. Þetta er í sannleika „hin sæla von“, sem veitir djörfung, traust og trú á þeim tím- um, er inenn vanmegnast af ótta og kvíða fyrir því, sem koma mun yfir heimsbyggðina. Lækningastarf. Jesús var læknir og trúboði, og rithöfundur einn hefir komizt svo að orði: „Guð átti einkason, og hann lét hann verða lækni og kristniboða.“ Þegar Jesús var hér á jörðu, voru menn og konur stödd í mikilli lík- amlegri neyð. Hið sama ástand er ríkjandi nú, og nær yfir allan heim. Allt mannkynið er sjúkt. Sjöunda dags Aðventistar feta í Innfæddir sjúklingar bíða eftir hjálp fyrir utan Jengre-lækningastofuna í Nigería. 3

x

Í fótspor Meistarans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Í fótspor Meistarans
https://timarit.is/publication/1727

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.