Í fótspor Meistarans - 01.06.1939, Side 10

Í fótspor Meistarans - 01.06.1939, Side 10
Kristnir skólar og þýðing þeirra fyrir boðun fagnaðarerindisins. Sú trú, að hverjum manni beri skylda til að hjálpa meðbræðrum sínum af fremsta megni, hefir komið því til leiðar, að Sjöunda dags Að- ventistar hafa sett á stofn um allan heim skóla, þar sem þeir framfylgja hinuin beztu fræðslu-meginreglum. I þessu innifelst það, að mennta hjarta, höfuð og hönd á réttan hátt. Það er eins og einhver hefir sagt: „Sönn menntun er meira en undirbúningur undir þetta líf. Hún mótar manninn allan og nær yfir allt það tímabil, sem honum er auðið að lifa. Hún er innifalin í því, að allir kraftar líkama, sálar og anda þroskist í sam- ræmi hver við annan.“ Innfæddur starfgmaður við prentsmiðju vora í Kenya. Æskulýðnum í skólum Sjöunda dags Aðventista, er kennt að taka á móti öllu Guðs orði afdráttarlaust og algerlega, til að byggja trú sína á því, og til að gera hinar heilnæmu meginreglur fagnaðarerindisins að hyrningarsteini menntunar sinnar. Menntun sú, sem byggist á öðrum grundvelli, mun á hinum mikla degi, þegar verk hvers manns verða opin- Nemendur við kvennaskólann í Kisii. beruð eins og þau eru í raun og veru. reynast aðeins „hey og hálm- ur“, eða einkisvirði. Það er aðeins þegar kennarinn situr við fætur Meistarans mikla, og lærir af hon- um, að hann getur gefið hinum ungu réttar hugmyndir um, hvað sönn menntun er. Eins og Drottinn kallaði vissa menn meðal Israelsmanna í fornöld, fyllti þá Anda sínum. veitti þeim speki og skilning, þekkingu og dugn- að til alls konar starfa; þannig verð- ur söfnuður Guðs nú [á dögum að taka að sér meðlimi sína, og færa 8

x

Í fótspor Meistarans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Í fótspor Meistarans
https://timarit.is/publication/1727

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.