Í fótspor Meistarans - 01.06.1939, Qupperneq 13
vébanda þess vaxið svo, allt til þessa
dags, að nú á það 16-3 stórar lækn-
ingastofnanir úti um allan heiminn.
Þessar stofnanir hafa veitt móttöku frá
400.000 til 700.000 sjúklingum á ári.
A þessum lækningastofum. heilsu-
hælum og sjúkrahúsum fá þúsundir
fátæklinga ókeypis hjúkrun.
Það er einnig rétt að geta um
hinar mörgu stofnanir einstakra
manna, sem stjórnað er eftir megin-
reglum Sjöunda dags Aðventista. Við
þessar stofnanir, sem sjá um sig
sjálfar, er veitt ókeypis læknishjálp
fyrir allt að hálfri miljón króna á
ári.
Svona víðtæk læknakristniboðs-
meginregla útheimtir auðvitað mikið
fé til rekstrar og viðhalds. Oftast
reynist það ómögulegt fyrir þessar
stofnanir að sjá fyrir sér sjálfar til
lengdar.
Vér skulum t. d. nefna ástandið í
kristniboðslöndunum, þar sem lækn-
ingastofur og sjvikrahús voru stofnuð
meðal hinna fátæku, en mjög þurf-
andi innfæddu manna. Þetta fóllc er
ekki þannig innrætt að það vilji ekki
borga. Þvert á móti vilja þeir gjarn-
an borga þá læknishjálp, sem þeir
fá, en vantar peninga til þess.
Það kemur oft fyrir lækni úti á
kristniboðsakrinum, að sjúklingur
kemur með hænu og býður hana
sem borgun fyrir stóran lækninga-
skurð. Aðrir koma með dálítið af
korni eða hrísgrjónum. I þessum lönd-
um eru fimm krónur taldar mikil
upphæð sem borgun fyrir lækninga-
skurð, sem hér heima mundi kosta
mörg hundruð krónur.
Innfæddur starfsmaður við Jengrekristniboðs-
stöðina í Nigería bindur um sár.
Asamt sjálfum lækningaskurðinum
verður kristniboðssjúkrahúsið að sjá
sjúklingnum fyrir hjálp og hjúkrun,
þangað til hann er orðinn albata.
Það kemur fyrir, að sjúklingar borga
fáeina aura á dag týrir sjúkrahús-
vist sína, en oftast hafa þeir ekkert
til að borga með.
Þetta ástand staðfestir aðeins það
sem Frelsarinn sagði: „Fátæka hafið
þér ávallt hjá yður.“ (Jóh. 12, 8.)
En hann talaði einnig þessi huggun-
arríku orð, sem eru svo dýrmæt fyrir
hvern kristniboðslækni: „Svo fram-
arlega sem þér hafið gert þetta ein-
um þessara minnstu bræðra minna,
þá hafið þér gert mér það.“ Matt.
25, 40.
Vér erum í mikilli þakklætisskuld
við þau mörgu hundruð duglegra
lækna, og þær þúsundir hjúkrunar-
kvenna, sem hafa helgað líf sitt lækna-
kristniboðsstarfinu, til að líkna hinum
þjáðu. Þessir ágætu menn og konur
yfirgefa heimili, vini og öll þægindi.
Vér megum ekki bregðast að hjálpa
Fraitih. á bls. 17
11