Í fótspor Meistarans - 01.06.1939, Blaðsíða 16
buga hann, og' hann reynist enn sem
fyrr góður og trúr kristinn maður.
Annar ungur maður var sendur burt
frá heimili sínu sakir fagnaðarerindis-
ins. Faðir hans sagði: „Ég vil ekki
sjá þig framar fyrir augum mér.“ I
heilt ár var þessi ungi maður útlæg-
ur frá heimili sínu. Mikið var beðið
fyrir hinum heiðna föður piltsins, og
Guð beygði hjarta þessa harðlynda
manns. Nú les hann Guðs orð með
áhuga, og hefir beðið son sinn fyrir-
gefningar.
Fjórtán ára gömlum dreng var
misþyrmt og hann sendur burt af
heimilinu af því að hann vildi fylgja
kenningum Biblíunnar. Allir ættingj-
ar voru honuin andstæðir og hötuðu
hann. Faðir hans dó, en sonurinn
fékk ekki leyfi til að koma heim og
vera við jarðarförina. Fjölskyldan lof-
aði drengnum öllu góðu, ef hann
aðeins vildi sleppa trú sinni, en hann
var fastur fyrir, og nú er hann á ung-
lingaskóla vorum í Nchzwangu. Ég
gæti sagt frá mörgum slíkum atburð-
um, sem allir sýna, að ineðlimir vor-
ir eru trúir, jafnvel þó þeir verði að
líða þjáningar og mæta mótstöðu.“
Muderspach kristniboði skýrði
einnig frá mörgu öðru, sem gerðist
á hinu fjarlæga starfssvæði hans, er
sýnir greinilega, að Andi Guðs hríf-
ur hjörtu fólksins, og gerir kraftaverk
enn í dag, eins og á íýrstu tímum
kristninnar. Innan skamms fer br.
Muderspach aftur til Uganda, og
opnar þá kristniboðsstöð í vesturhluta
landsins, þar sem boðskapurinn hefir
ekki ennþá verið fluttur. Vér biðjuin
Guð að blessa hann ríkulega á ferða-
laginu og framvegis, og veita honum
náð til að vinna margar sálir fyrir
fagnaðarerindi Krossins.
Gamalkunning'i vor, Gunnar
Fag'ereng' Gudmundsen, prestur,
einn af brautryðjendum kristniboðs-
ins í Abessiníu, sem starfaði í hinu
gamla afríkanska keisararíki í 14 eða
15 ár, hefir aftur tekið á móti köll-
un til kristniboðs. Nú á hann að
fara til Anglo-Egiptist Sudan, eftir
tveggja eða þriggja ára dvöl heitna
á ættjörð sinni. Þegar menn lesa
þetta, mun hann og kona hans vera
farin að starfa með krafti að því að
vinna sálir fyrir Krist á þessu fjar-
læga og þurfandi kristniboðssvæði.
Á kristniboðsferð í þriðja sinn
er kristniboði N. Balle Nielsen,
fremur ungur maður, en samt sem
áður fer hann nú út í þriðja sinn
sem kristniboði.
Fyrst var hann í Indlandi í mörg'
ár, síðan í Abessiníu nokkur ár, og nú
hefír hann lagt af stað þangað aftur
eftir mjög stutt starfshlé. Vér höfum
klippt úr stuttri ritgerð í unglinga-
blaði voru nokkur eftirfarandi kveðju-
orð:
„Mig vantar orð til að lýsa gleði
minni yfir því sem ég hefi séð og'
reynt af náð Guðs á þeim árum,
sem liðin eru síðan ég sem korn-
ungur maður hóf starf mitt í þjón-
ustu Meistarans.
Nú sem stendur er ég, sem ég
vil kalla á þriðju kristniboðsferð
minni. Það er sem sé í þriðja skipti.
að ég ferðast út á kristniboðsakur-
14