Í fótspor Meistarans - 01.06.1939, Page 28
Frá Grænlands ísgnúp yztum,
frá Indlands kóral-strönd,
frá landi sunnan sólar
við silfurlinda bönd,
frá fljótum frumskóganna
og fríðri pálmahlíð,
berst hróp til vor að hrífa
úr hlekkjum viltan lýð.
Þótt sólblær sætri angan
um Seylon andi milt,
þótt leiki allt í lyndi,
er líf manns syndum spillt;
ei stoðar Guðs þótt gjafir
úr gæzku drjúpi sjóð,
því starblind dýrkar stokka
og steina heiðin þjóð.
Mun oss, er Orðsins njótum,
sú aðferð henta þá,
þeim synja’ um lampa lífsins,
er langvinn myrkur þjá?
Nei, boðum Jesúm, boðum
hans blessað hjálparráð,
unz fólki fjarstu landa
er frelsisorð hans tjáð.
Þér vindar! blítt það berið
og bárur sævargeims!
Unz allt skín í þess ljóma
til endimarka heims;
unz lambið lausnar kemur,
er leið og dó á kross,
í veldi vegs og dýrðar
til verndar frelstum oss.