Fréttablaðið - 05.11.2022, Page 54
Háskólinn á Hólum er elsta menntastofnun landsins, staðsett á Hólum í Hjaltadal. Við skólann er boðið upp á gæðanám
á grunn- og framhaldsnámsstigi, sem og öflugt rannsóknastarf. Háskólinn er miðstöð þekkingar á þremur fræðasviðum:
hestafræði, ferðamálafræði og fiskeldis-, sjávar- og vatnalíffræði.
Háskólinn á Hólum leitar eftir öflugum einstaklingum sem hafa
metnað og drifkraft til að sinna skemmtilegum og krefjandi
verkefnum á fjölbreyttum sviðum innan skólans.
Kennslustjóri
Viltu vera „hjarta háskólans“?
Um er að ræða spennandi og krefjandi starf
við mótun og þróun kennslustefnu skólans,
nemendabókhald, námskynningar, sam-
skipti við nema o.fl. Kennslustjóri vinnur náið
með starfsmönnum og stjórnendum skólans
til að tryggja vandaða og góða kennslu.
Sérfræðingur á fjármálasviði
Ertu snillingur í fjármálum?
Við leitum að aðila sem þrífst á því að sinna
fjölbreyttum verkefnum, býr yfir nákvæmni
og skipulagi og sér tækifæri í tækninni.
Frábær möguleiki til að taka þátt í mótun
fjármálaverkefna í samstarfi við stjórnendur
og starfsmenn. Um er að ræða starf án stað-
setningar.
Starfsmaður við fiskeldistilraunir
Hefurðu brennandi áhuga á rannsóknum
og kynbótum?
Áhugavert starf við fiskeldistilraunir í bleikju-
kynbótastöðinni okkar, sem rekin hefur verið
á Hólum í Hjaltadal í meira en 30 ár.
Starfið hentar vel fyrir aðila með þekkingu
og reynslu á sviði fiskeldis og/eða líffræði.
Öryggis- og staðarumsjónarmaður
Hefurðu gaman af almennu viðhaldi og
samskiptum við verktaka?
Gefandi starf með yfirumsjón með fast-
eignum háskólans. Þar á meðal eru bæði
sögulegar byggingar og nýbyggingar,
reiðhallir, fiskeldisstöðvar o.fl.
Framundan eru einnig miklar framkvæmdir
á húsnæði og svæði skólans.
Um 100 % stöður er að ræða.
Umsóknarfrestur er til og með
21. nóvember 2022 og er æskilegt að
viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um störfin veitir
Íris Dögg Björnsdóttir mannauðsráðgjafi,
hr@holar.is.
Ítarlegri upplýsingar og umsóknir um
störfin eru á starfatorg.is
Á Hólum er fjölskylduvænt samfélag, falleg náttúra og sögurík umgjörð.
Á staðnum eru einnig leikskóli og grunnskóli. Háskólinn aðstoðar við að
útvega húsnæði í Skagafirði ef þess er þörf.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er
farið eftir ákvæðum laga um opinbera háskóla nr. 85/2008. Launakjör
eru skv. kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og
skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
www.holar.is
Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík
Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is