Fréttablaðið - 05.11.2022, Page 71

Fréttablaðið - 05.11.2022, Page 71
Kynlíf hefur mjög mikil áhrif á sam- skipti og gæði sambanda. Ef ekki er veittur stuðn- ingur vegna áhyggjuefna í kynlífi getur það ýtt undir vonbrigði, kvíða og depurð hjá karlinum og maka hans og leitt til minni lífsgæða beggja. Jóna Ingibjörg Jóna Ingibjörg Jónsdóttir flytur fyrirlesturinn Kynlíf og nánd eftir blöðruhálskirt- ilskrabbamein, í málstofu Bláa trefilsins þann 12. nóv- ember næstkomandi. Hún hefur starfað við og rann- sakað málefnið um árabil. Jóna starfar við kynlífsráðgjöf á Landspítalanum. Hún býr að fjölbreyttri menntun innan sviðs hjúkrunarfræði, samtalsmeðferð- ar, í málefnum kynheilbrigðis og klínískri kynfræði. Í fyrra lauk hún doktorsprófi frá Háskóla Íslands í Hjúkrunar- og ljósmóðurfræði- deild. „Rannsóknarverkefnið laut að því að þróa og prófa árangur stuðnings- og fræðslumeðferðar fyrir pör þar sem kona hefur fengið krabbamein, til að efla aðlögun að Mikilvægi þess að veita nándinni súrefni Jóna Ingibjörg hefur um árabil starfað við kynlífsráðgjöf og þekkir til áhrifa meðferðar við blöðruhálskirtilskrabba- meini í körlum á kynlíf og nánd þeirra í samböndum. Fréttablaðið/Ernir kynlífi og nánd eftir krabbamein. Fyrr á árinu fékk ég svo sérfræði- leyfi í kynheilbrigðishjúkrun,“ segir Jóna. Ólíkar orsakir og afleiðingar Meðferð við krabbameini í blöðru- hálskirtli getur haft margvíslegar aukaverkanir sem snúa að kynlífi og nánd karla. „Margir karlar finna fyrir miklum breytingum á kynlífi og kynsvörun sem getur haft mikil áhrif á lífsgæði þeirra,“ segir hún. „Það fer mjög eftir vali á meðferð og umfangi hennar, hvaða auka- verkanir koma helst fram. Staðsetning krabbameins í blöðruhálskirtli gerir karla útsetta fyrir kynlífstengdum auka- verkunum. Blöðruhálskirtillinn umvefur þvagrásina og er í grennd við mikilvægar taugar og æðar sem hafa bein áhrif á ris.“ Jóna bendir þó á að það sé mikil einföldun að einblína á áhrif risbreytinga á kynlíf og nánd karlmanna eftir meðferð. „Risbreyting hefur mikil áhrif en er ekki það eina sem skiptir máli,“ segir hún. Helstu aukaverkanir meðferðar „Í skurðaðgerð geta taugar og æðar skaddast og haft áhrif á ris og sáðlát. Fullnæging karlsins getur breyst í kjölfarið. Einnig geta sumir karlar tekið eftir útlitsbreytingum á lim eftir skurðaðgerð. Ef hann er í nánu sambandi getur þetta haft mikil áhrif á nánd hans við maka, sérstaklega ef hann á erfitt með að ræða um það sem er í gangi. Margir karlar fara í geisla- og/ eða lyfjameðferð áður eða eftir uppskurð og báðum meðferðum fylgja margar aukaverkanir eins og ógleði, þreyta, viðkvæm slímhúð og möguleg ófrjósemi, sem hafa bein og óbein áhrif á kynsvörun karlsins. Í andhormónameðferð er testósterón-búskapur líkamans þurrkaður upp til að koma í veg fyrir að æxli vaxi. Skortur á testósteróni getur bælt kynörvun karla og sumir upplifa líkamlegar breytingar eins og stækkun brjósta eða hitakóf.“ Algengt vandamál Óhætt er að segja að meirihluti karla, eða um 81-93% finni fyrir breytingu á kynlífi eftir meðferð við blöðruhálskirtilskrabbameini. Kynlífstengd áhyggjuefni og vandi eru, að sögn Jónu, sú aukaverkun sem hefur hvað mest áhrif á lífsgæði karla og maka þeirra. „Í breskri rannsókn sem gerð var í fyrra og tók til 36.000 karla sem höfðu greinst með krabbamein í blöðruhálskirtli, sögðu 40% frá lélegri kynsvörun og mátu hana sem miðlungs eða stórt vandamál. Kynlíf hefur mjög mikil áhrif á samskipti og gæði sambanda. Ef ekki er veittur stuðningur vegna áhyggjuefna í kynlífi getur það ýtt undir vonbrigði, kvíða og depurð hjá karlinum og maka hans og leitt til minni lífsgæða beggja.“ Mikilvægi stuðnings og eftir- fylgni er gífurlegt Sem betur fer er margt í boði. „Risendurhæfing snýst um að auka flæði súrefnisríks blóðs til vefja á svæðinu og viðhalda teygjan- leika í limnum eftir skurðaðgerð. Kynlífsendurhæfing tekur hins vegar til víðara sviðs og er væn- legri til árangurs. Þá er markmiðið enn fremur að „koma súrefni að nándinni“ í parsambandinu og styrkja sjálfsmyndina. Kyn- lífsendurhæfing getur styrkt sjálfsmynd karlsins, sálræna líðan og karlmennskuna. Einnig getur hún aukið nánd í sambandinu, en líkur á kynlífsbata aukast ef maki er með í ráðum og fær fræðslu um það sem er í gangi. Ýmsar áskoranir mæta körlum í kynlífsbata eftir meðferð. Ein af þeim er óvissan um framhaldið. Önnur áskorun er væntingar um árangur úrræða. Það getur valdið vonbrigðum ef úrræði veita ekki skjótan bata. Því er mikilvægt að byrja fyrst á þeim úrræðum sem mestar líkur eru á að skili árangri. Góð eftirfylgni heilbrigðisstarfs- fólks sem og frumkvæði karlanna sjálfra og seigla þeirra að prófa sig áfram, er það sem þeir segja sjálfir að hafi hvað mest áhrif. Sem betur fer hefur þróunin verið í þá átt að auka stuðning og fræðslu um kynlífstengd mál áður en til krabbameinsmeðferðar kemur. Þeir sem fá snemma góða fræðslu um ferlið og úrræðin sem þeim standa til boða, sætta sig frekar við einhverjar breytingar á kynlífi og eiga auðveldara með að aðlagast í sínum kynlífsbata.“ Karlar eru óhræddir við að leita sér hjálpar og stuðnings „Það sem hefur komið mér á óvart í mínu starfi er hvað karlar eru meðvitaðir um mikilvægi kynlífs og nándar eftir krabbamein og eru líka óhræddari en áður við að leita sér stuðnings og fræðslu. Í nýlegri bandarískri viðtalsrannsókn kemur fram að meirihluti karla með þetta krabbamein óskar eftir stuðningi í kynlífsbatanum. Þeir vilja fá upplýsingar áður en læknis- meðferð hefst. Þeir vilja tækifæri til að ræða opinskátt við maka um áhrif breytinga á kynlífi og kynnast úrræðum til að viðhalda nánd ef kynferðisleg nánd með samförum er ekki möguleg. Einnig vilja þeir hafa aðgang að jafningja- stuðningi. Karlar eru því mun opnari en við mörg hver höldum,“ segir Jóna. n Um þjónustuna Við kynnum þjónustu á stóma- og þvagvörum Tanja Björk Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur, tekur á móti viðskiptavinum í verslun Stoðar í Hafnarfirði, Trönuhrauni 8. Við leggjum okkur fram um að viðskiptavinir okkar fái persónulega þjónustu. Við veitum faglega ráðgjöf um hvaða vörur henta hverjum og einum. Heimsendum vörur á höfuðborgarsvæðinu næsta virka dag og póstsendum út á land. Nánari upplýsingar veitir Tanja Björk í síma 412 4463. Sérhæft starfsfólk Tanja Björk hefur síðustu árin þjónustað viðskiptavini með stóma- og þvagvörur og einnig starfað á kvenlækningadeild LSH. Opnunartími Þjónusta hjúkrunarfræðings er frá 8:30-12:00 og 12:30-16:00 alla virka daga í Trönuhrauni 8. Vöruafhending í verslun er frá 08:00-17:00. Vöruframboð Við bjóðum upp á stómavörur og þvagleggi sem eru í samningi við Sjúkratryggingar Íslands. www.stod.is hjukrun@stod.isHAFÐU SAMBAND Í SÍMA 412 4463 Skannaðu kóðann og fáðu nýjustu fréttir af vörum og þjónustu Sjónvarpsþáttur á Hringbraut 13. nóvember kl. 20:00 5LAUGARDAGUR 5. nóvember 2022 blái trefillinn
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.