Fréttablaðið - 05.11.2022, Qupperneq 100
TÓNLIST
Ár íslenska
einsöngslagsins
Flytjendur: Benedikt Kristjánsson,
Fjölnir Ólafsson, Hildigunnur
Einarsdóttir, Sigrún Hjálmtýsdóttir,
Guðrún Dalía Salómonsdóttir og
Kristján Karl Bragason
Salurinn í Kópavogi
sunnudagur 30. október
Jónas Sen
Til eru þeir sem fussa og sveia yfir
svokallaðri fagurtónlist nútímans
og finnst tónlistin í denn svo miklu
betri. Þeir benda á Beethoven og
Brahms máli sínu til stuðnings. En
staðreyndin er að það á einfaldlega
eftir að vinsa snilldina úr, skilja
hismið frá kjarnanum. Í gamla daga
var líka samin miklu meiri tónlist en
heyrist í dag, en sagan hefur dæmt
megnið af henni úr leik. Það á enn
eftir að gerast með nútímatónlistina.
Aðeins lítill hluti hennar á skilið að
verða ódauðleg, en enn er óljóst hver
sá hluti er.
Um þessar mundir stendur yfir
merk tónleikaröð í Salnum í Kópa-
vogi sem nefnist Ár íslenska ein-
söngslagsins. Á hverjum tónleikum
koma fram fjórir einsöngvarar og
tveir meðleikarar og draga upp þver-
skurð af sönglist þjóðarinnar. Á tón-
leikunum á sunnudaginn var gat að
heyra nokkrar perlur sem eru orðnar
eilífar, en líka minna þekkt lög. Auð-
heyrt var af hverju fæstir þekkja
þau síðarnefndu, þau eru bara léleg
músík sem eðlilega gleymdist með
tímanum.
Kom ekki vel út
Smalavísa eftir Þórarin Jónsson
er eitt af slíkum lögum, ómerkileg
stæling á hjarðstemningu og sveita-
sælu sem finna má víða í tónbók-
menntunum. Hálfgleymd serenaða
eftir Sigfús Halldórsson er líka ótta-
lega klén. Diddú, Sigrún Hjálmtýs-
dóttir sópran, var svo óheppin að
þurfa að syngja þessi lög og það kom
ekki vel út. Bæði voru lögin slæm og
svo var söngurinn sjálfur hvorki fugl
né fiskur. Á árum áður var Diddú
vissulega mögnuð söngkona með
frábæra rödd, en núna er unaðslegur
hljómurinn horfinn úr rödd hennar
og það sem eftir stóð á tónleikunum
var fremur ankannalegt.
Frammistaða Fjölnis Ólafssonar
barítóns olli líka vonbrigðum.
Söngurinn var nák væmur og
röddin stöðug, en túlkunin var
óskaplega trénuð og stirð, það var
ekkert ris í henni. Til dæmis var hið
glæsilega lag Sjá, dagar koma, eftir
Sigurð Þórðarson, ekki neitt neitt,
hápunktarnir í því voru bara eins
og hvert annað píp.
Góður og slæmur undirleikur
Ekki bætti úr skák að undirleikur
Kristjáns Karls Bragasonar var ófull-
nægjandi. Hann spilaði almennt of
sterkt með hægri hendinni, sem
gerði að verkum að maður upp-
lifði að hann væri í samkeppni við
söngvarana sem hann lék með. Guð-
rún Dalía Salómonsdóttir var miklu
betri, leikur hennar var fíngerður
og mjúkur og vafði sig fullkomlega
utan um sönginn, dró ávallt fram
það fegursta í honum.
Guðrún Dalía spilaði með Bene-
dikt Kristjánssyni tenór og Hildi-
gunni Einarsdóttur mezzósópran.
Hvort tveggja var frábært. Benedikt
söng lög á borð við Þulu og Vor-
kvæði eftir Jón Leifs, stórbrotnar
tónsmíðar hver á sinn hátt sem
voru afar krassandi í meðförum
söngvarans. Röddin var fáguð og
tær og túlkunin full af tilfinningum.
Ekki síðri var Hildigunnur sem
söng til dæmis hinn undurfagra
Júnímorgun eftir Jórunni Viðar,
Hvert örstutt spor eftir Jón Nordal,
Enn syngur vornóttin eftir Karl O.
Runólfsson og nýtt lag eftir Kolbein
Bjarnason. Söngur hennar var ein-
staklega fallegur. Hún hafði ótrú-
lega næma tilfinningu fyrir inntaki
hvers lags, lifði sig fullkomlega inn
í tónlistina. Flæðið var óheft og
hápunktarnir svo stórir og tignar-
legir að maður fékk gæsahúð. Von-
andi á Hildigunnur eftir að halda
ljóðatónleika í náinni framtíð. n
NIÐURSTAÐA: Misjafnir tónleikar,
en sumt var framúrskarandi.
Sagan dæmir sumt úr leik
en hitt er ódauðlegt
Á tónleikunum á
sunnudaginn var gat
að heyra nokkrar
perlur sem eru orðnar
eilífar, en líka minna
þekkt lög.
Benedikt Kristjánsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir, Jónas Ingimundarson, Hildigunnur Einarsdóttir, Guðrún Dalía Salóm-
onsdóttir, Fjölnir Ólafsson og Kristján Karl Bragason. MYND/JÓN KRISTINN CORTEZ
tsh@frettabladid.is
Kordo kvartettinn býður til franskr-
ar veislu á tónleikum sínum á Sígild-
um sunnudögum í Norðurljósasal
Hörpu á morgun, sunnudaginn 6.
nóvember klukkan 16.
„Fram verða bornir tveir safaríkir,
impressjónískir strengjakvartettar
eftir tvö af fremstu tónskáldum
franskrar tónlistarsögu, Claude
Debussy og Maurice Ravel,“ segir í
tilkynningu kvartettsins.
Kordo kvartettinn var stofnaður
2018 og hefur undanfarin ár skipað
sér í fremstu röð íslenskra kammer-
hópa. Kvartettinn er skipaður Páli
Palomares, Veru Panitch, Þórarni
Má Baldurssyni og Hrafnkeli Orra
Egilssyni, en þau eru öll hljóðfæra-
leikarar við Sinfóníuhljómsveit
Íslands. n
Frönsk veisla Kordo kvartettsins
Kordo kvartettinn skipa Páll Palomares og Vera Panitch fiðluleikarar,
Þórarinn Már Baldursson víóluleikari og Hrafnkell Orri Egilsson sellóleikari.
MYND/AÐSEND
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vil
lu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
ét
t t
il l
eið
ré
tti
ng
a á
sl
íku
. A
th
. a
ð
ve
rð
ge
tu
r b
re
ys
t á
n
fyr
irv
ar
a.
60+ Á TENERIFE
5. JANÚAR Í 20 NÆTUR
með Gunnari Svanlaugs
595 1000 www.heimsferdir.is
298.900
Flug & hótel frá
20 nætur
Fararstjóri:
Gunnar Svanlaugsson
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING
á Hringbraut
„Hugmyndarík saga,
falleg og hrollvekjandi.“
K O L B R Ú N B E R G Þ Ó R S D Ó T T I R / K I L J A N
„Ofboðslega skemmti-
legur lestur.“
S U N N A D Í S M Á S D Ó T T I R / K I L J A N
Óvenjuleg jólasaga
fyrir börn eftir Eirík
Örn Norðdahl.
Myndir eftir Elías Rúna.
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
54 Menning 5. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ