Fréttablaðið - 05.11.2022, Page 106
Mér finnst að hver
einasti Íslendingur eigi
að senda frá sér að
minnsta kosti eina
ljóðabók um ævina.
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@
frettabladid.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrir@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078:
Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolbeinn@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Skannaðu QR
kóðann og skoðaðu
jólatilboðin
Verðdæmi: 180 x 200 cm.
Fullt verð: 214.900 kr.
Nú 184.920 kr.
Sealy
PORTLAND
heilsurúm með Classic botni
Millistíf dýna með pokagormum sem
gefur fullkominn stuðning.
AUSTIN
hægindastóll
Mjúkur og notalegur. Grár,
brúnn eða svartur.
Fullt verð: 149.900 kr.
20%
AFSLÁTTUR
Jól
JÓLIN ERU
Í DORMA
Frábært úrval og gott verð
20%
AFSLÁTTUR
af dýnu
JÓL
20%
AFSLÁTTUR AF
ÖLLUM SÆNGUM
OG KODDUM
Nú 119.920 kr.
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Ve
rð
o
g
vö
ru
up
pl
ýs
in
ga
r
í a
ug
lý
si
ng
un
ni
e
ru
b
ir
ta
r
m
eð
f
yr
ir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
Sunnlenski bókabóndinn
Bjarni Harðarson lætur ekki
deigan síga í útgáfu alls kyns
ritverka og hefur enn sem fyrr
mikla og ósvikna trú á les-
efninu ljúfa sem landsmenn
setjast niður með á þessum
tíma árs – og njóta, blaðsíð-
urnar á enda.
ser@frettabladid.is
Hann hendist yfir heiðina núna
um helgina og efnir til Bókamessu
í Safnaðarheimili Grensáskirkju
klukkan 14.00 í dag og stendur
dýrðin yfir til aftanstundar, raunar
með bókauppboði á heila tímanum
á meðan hátíðin varir.
„Já, blessaður vertu, ég ætla að
bjóða þarna upp á alls kyns rarí-
tet úr útgáfusögu bókaforlagsins
Sæmundar og menn munu undrast
hvað það er litríkt safn af alla vega
skáldskap og þjóðlegum fróðleik,“
segir Bjarni í samtali við blaðið, þar
sem hann er staddur uppi á Ing-
ólfsfjalli, bæjarfjalli Selfyssinga,
en hann reynir að stæla skrokkinn
þegar tími gefst frá bókastússinu.
Þetta er ótrúleg saga
Á Bókamessunni í Grensáskirkju
munu rithöfundar forlagsins lesa
upp úr sögum sínum og ljóðum, svo
sem akureyrska ljóðskáldið Embla
Hakadóttir sem Bjarni segir yrkja af
einstöku sjálfstrausti, en svo nefnir
hann líka Hermann Stefánsson með
sögulega skáldsögu sína sem megi
heita stórkostleg að inntaki.
„Hermann er að skrifa um þá tíma
spíritismans á Íslandi þegar eyjan í
norðri var um það bil að verða and-
ans miðstöð á heimsvísu í krafti
áberandi miðla og alls konar hand-
anheimamanna. Þetta er ótrúleg
saga,“ segir Bjarni og pústar lítið eitt.
Og hann heldur svo upptalning-
unni áfram, en rannsóknarlögreglu-
maðurinn Gísli Jökull Gíslason sé á
meðal höfunda hans – og það sé nú
ekki ónýtt að hafa svoleiðis mann
í liði sínu. „Hann er að skrifa um
pyntingar á íslenskum sjómönnum,
hvorki meira né minna,“ upplýsir
bókabóndinn.
Ein ljóðabók á mann
Hann segir þetta verða herlegheita-
hátíð með alls kyns gamanmálum
– og kvæðasöng, en þar með hváir
blaðamaður. „Jújú, þarna verða
kvæðakonur úr hópnum Kvæða-
konan góða, sem Hallgerður heitin
Gísladóttir stofnaði á sínum tíma,
en með söng sínum ætla þær að
kynna endurútgáfu á tímamóta-
verki hennar, Íslenskri matarhefð,“
segir Bjarni og telur kvæðasönginn
verða einstaka upplifun fyrir nær-
stadda. „Alveg magnað fyrirbæri,“
bætir hann við.
Hann er sammála mörgum
öðrum forleggjurum landsins um
að bókaflóðið sem skellur á lands-
mönnum þessi dægrin einkennist
af óvanalega miklum fjölda skáld-
sagna. „Og svo halda ljóðin velli og
vel það. Mér finnst að hver einasti
Íslendingur eigi að senda frá sér að
minnsta kosti eina ljóðabók um
ævina,“ segir karlinn og býst til
heimferðar ofan af Ingólfsfjalli. n
Bókabóndinn mætir með
rarítetið á mölina
Bjarni Harðarson, bókabóndinn seigi, sem verður með Bókamessu í Safnaðarheimili Grensáskirkju í dag.
Bókamessur Sæmundar eru alltaf vel sóttar og þykja vera með líflegasta móti.
MYNDIR/AÐSENDAR
n Frétt vikunnar
Anna Ásthildur
Thorsteinsson,
verkefnastjóri Airwawes
Anna Ásthildur Thorsteinsson,
verkefnastjóri tónlistarhátíðarinn-
ar Iceland Airwaves, segir þá frétt
sem standi upp úr í vikunni hrein-
lega vera þá að það hafi selst upp á
Iceland Airwaves.
Greint var frá þessu í vikunni, en
hátíðin hófst á fimmtudag og endar
í dag. Hátíðin er haldin á nokkrum
stöðum í Reykjavík, en þar má nefna
Listasafn Reykjavíkur, Gamla bíó,
Fríkirkjuna og Iðnó.
„Ég held það hafi ekki verið upp-
selt í tæpan áratug,“ segir Anna, sem
bendir á að undanfarin ár hafi verið
erfið í tónlistar- og viðburðabrans-
anum. „Þetta hefur verið skrýtið og
erfitt fyrir tónlistarbransann,“ bætir
hún við.
„Það er gott að fá svona góðar
fréttir fyrir íslenskt tónlistarfólk.
Þetta sýnir að fólk er að mæta til
að hlusta á íslenska tónlist,“ segir
Anna, sem telur að hlutfall túrista
og Íslendinga skiptist nokkurn veg-
inn til helminga á hátíðinni.
Þá bendir hún á að hlutfall
íslenskra listamanna á hátíðinni hafi
líklega aldrei verið eins hátt.
„Það bendir til þess að bæði Íslend-
ingar og ferðamenn séu mættir til að
hlusta á íslenska tónlist. Sem er frá-
bært.“ n
Uppselt á Iceland Airwawes
Anna Ásthildur Thorsteinsson. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
60 Lífið 5. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ