Fréttablaðið - 22.11.2022, Blaðsíða 17
FASTEIGNIR.FRETTABLADID.IS
Fasteignablaðið
47. TBL. 22. NÓVEMBER 2022
ÁRANGUR Í SÖLU
FASTEIGNA
ÓSKAR BERGSSON LÖGGILTUR FASTEIGNASALI
SÍMI 893 2499 OG oskar@eignaborg.is
www.eignaborg.is
Miklaborg og Jórunn, lögg.
fasteignasali, kynna: Bæjar-
gata 4 Garðabæ. Glæsilegt
einstaklega vel skipulagt
nýlegt parhús í Urriðaholti,
húsið var byggt árið 2018 og
er 200 fm að stærð. Einstakt
útlit, fallegt bogaþak.
Húsið er hannað af Úti Inni arki
tektum og vandað hefur verið til
með efnisval og hönnun. Húsið
er á tveimur hæðum með inn
byggðum bílskúr. Góð aðstaða
fyrir bíla á plani með snjóbræðslu
fyrir tvo bíla.
Efri hæð: Komið er inn í forstofu
með mikilli lofthæð með skáp sem
nær upp í loft. Úr forstofu er innan
gengt í bílskúr. Úr forstofu er gengið
í baðherbergi sem er flísalagt og þar
er mikil lofthæð. Þegar komið er
úr forstofu blasir við fallegt alrými
með mikilli lofthæð. Eldhúsið er
hannað með íburðarmikilli dökkri
viðarinnréttingu með ljósum steini
á borðum. Vönduð tæki í eldhúsi og
tvöfaldur ísskápur.
Stofur eru mjög glæsilegar
með mikilli lofthæð og gólf
síðum gluggum með útgengt út á
suðursvalir. Stiginn á milli hæða er
steyptur með glerhandriði. Gluggi
á milli hæða í stiga setur mikinn
svip á hæðina og hleypir inn fal
legri birtu.
Neðri hæð: Þegar komið er niður
stigann tekur stórt alrými á móti
þér með stórum suðurglugga og
með útgengt út á pallinn. Stór
afgirtur pallur við suðurhlið húss
ins. Á neðri hæð eru þrjú svefnher
bergi, öll mjög rúmgóð, tvö þeirra
eru 30 fm að stærð. Hjónaher
bergið er með fataherbergi inn af
og úr hjónaherbergi er útgengt út á
afgirtan pall með heitum potti.
Baðherbergið á neðri hæð hefur
verið sameinað þvottahúsinu og
gert að einu rými, en þvottahús
aðstöðu hefur verið komið fyrir
í bílskúrnum. Baðherbergið sem
er flísalagt og með innfelldum
vönduðum blöndunartækjum, er
vel tækjum búið og með stórri inn
Glæsilegt einbýli í Garðabæ
Húsið er á
tveimur hæðum
með innbyggð-
um bílskúr.
MYND/AÐSEND
Eldhúsið er hannað með íburðarmikilli dökkri viðarinnréttingu með ljósum steini á borðum. Vönduð tæki í eldhúsi.
réttingu við handlaug með spegli
fyrir ofan. Einnig er góður skápur
á vegg. Smart heimiliskerfi fyrir
lýsingu og gardínur. Frábær stað
setning innan hverfis. Laust strax.
Fasteignamat næsta árs fyrir
2023 er kr. 142.650.000.
Um er að ræða einstaka eign,
þar sem glæsileiki, hönnun og
skipulag eignar fer saman. Hentugt
fjölskylduhús. Frábær staðsetning
innan hverfis og stutt í allar áttir. n
Nánari upplýsingar um eignina
veitir Jórunn lögg. fasteignasali í
síma 845-8958 eða jorunn@mikla-
borg.is
Opið hús að Bæjargötu 4, Garða-
bæ, í dag frá kl 15-17. Velkomin.
2022
2002 Á traustum
grunni í 20 ár
Grensásvegur 3, 2 hæð 108 Reykjavík Sími 530 6500 heimili@heimili.is heimili.is
VIÐ LEIÐUM ÞIG HEIM
Hlíðasmára 2 Sími: 512 4900201 Kópavogur www.landmark.isLandmark fasteignamiðlun