Fréttablaðið - 22.11.2022, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 22.11.2022, Blaðsíða 2
Menn standa gapandi yfir þessu. Gunnar Þorgeirs- son, formaður Bændasam- takanna Ævintýri fullt af töfrum Klassíski listdansskólinn hélt í gær generalprufu í Borgarleikhúsinu á Hnotubrjótnum en skólinn og Óskandi hafa tekið höndum saman og sett upp sína eigin útgáfu af þessu klassíska jólaverki. Hnotubrjóturinn, ævintýri sem flestir þekkja og er fullt af töfrum og skemmtun, verður sýndur í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Það er skortur á ull á Íslandi og því þarf að rýja oftar en einu sinni á ári – og hjálpin berst að utan með aðstoð fólks sem elskar að rýja íslensku sauðkindina. ser@frettabladid.is LANDBÚNAÐUR Slík er ásóknin í ull á Íslandi þessi árin að bændur hafa ekki undan að rýja rollur sínar. Þar af leiðandi eru þeir farnir að klippa þær að vetri sem að vori, ólíkt því sem áður var þegar ein rúning var látin nægja á ári. Og til að sinna þessu verki þarf að kalla á hjálp að utan, alla leið frá Kanada, en þaðan kemur Pauline Bolay með f lugbeittar rúnings­ græjurnar sínar. Hún kveðst í sam­ tali við Fréttablaðið vera í um tvær vikur á Íslandi að þessu sinni og fara á milli allmargra bæja. „Ætli ég rýi ekki um það bil 1.500 kindur að þessu sinni,“ segir hún, komin vestur á Melanes á Rauðasandi í vestanverðri Barðastrandarsýslu að þessu sinni til að rýja nokkra tugi kinda, en árlega ferðast hún á milli fjölmargra landa í þessu sérstaka starfi sínu. „Viðhorfið er fyrir öllu,“ segir hún aðspurð um hvað sé mikilvægast í faginu, „að laga sig að hverju verki á hverjum stað.“ Ástþór Skúlason, bóndi á Mela­ nesi, segir að ullarskortur sé orðinn viðvarandi í landinu vegna fækk­ unar fjár og fleiri prjónandi handa í landinu – og raunar langt út fyrir landsteinana. „Það segir sitt um stöðuna að bara Norðmenn væru til í að kaupa alla íslenska ull sem fellur til hér á landi,“ segir hann. „Við bændur höfum bara ekki undan við að framleiða ull.“ Hann segir að aukin rúning, jafnt að vetri sem vori, dugi ekki til að mæta stóraukinni eftirspurn eftir íslenskri ull. „Okkur er að fækka í hópi sauðfjárbænda – og sú þróun mun bara halda áfram, nema ein­ hver róttæk breyting verði þar á,“ segir hann og bendir á að meðal­ aldur þeirra nálgist nú sjötugt. „Og það segir auðvitað allt sem segja þarf. Staðan er bara þannig að ungt fólk hefur engin efni á að taka við jörðum í rekstri, svo hátt gjald þarf að reiða fram fyrir bústofn, húsa­ og vélakost.“ En hvað sem öllu líði megi það heita framför hér á landi að rollurn­ ar séu nú rúnar tvisvar á ári í stað einnar vorrúningar. Vetrarrúningin skili betri ull en vorrúningin, reifin séu ekki eins þóf kennd og þelið ekki eins flókið og í fyrri tíðar árs­ bundnu rúningunni, segir Ástþór Skúlason. Það segir sína sögu um mann­ skapinn í íslenskum landbúnaði að fjöldi útlendinga kemur hingað til lands á hverju ári í rúningu og slátrun. „Já, þetta er þróunin,“ segir Gunn­ ar Þorgeirsson, formaður Bænda­ samtakanna. „Það er orðið erfitt að fá Íslendinga í þessu lotustörf. Hvað rúninguna varðar hjálpar til að fá svona svellvant fagfólk sem er að allt árið og rýir tugi kinda á klukkutíma. Menn standa gapandi yfir þessu,“ segir Gunnar Þorgeirs­ son. n Komin frá Kanada með rúningsklippurnar á lofti Pauline Bolay ferðast þessa dagana á milli bæja á Íslandi. Hér er hún í önnum í fjárhúsunum á Melanesi á Rauðasandi í gær. MYND/ELÍN � 4. DESEMBER � KL. 14.00 � SILFURBERG JÓLAFJÖR með sölku sól kristinnpall@frettabladid.is REYKJAVÍK Lögreglan á höfuð­ borgarsvæðinu auglýsti í gær eftir vitnum að umferðarslysi sem átti sér stað fyrir helgi. Vegfarandi var f luttur alvarlega slasaður á slysa­ deild. Í tilkynningu lögreglunnar var sérstaklega kallað eftir því að einstaklingur sem keyrði sam­ hliða bílnum myndi gefa sig fram. Umræddur einst ak ling ur var á hvítum bíl og telur lögreglan að hann hafi verið af gerðinni Volkswagen. n Lýsa eftir vitnum Frá vettvangi slyssins síðastliðinn föstudag. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Atvikið átti sér stað á gatnamótum Kringlu- mýrarbrautar og Háa- leitisbrautar. kristinnpall@frettabladid.is LÖGREGLUMÁL Alls eru þrjátíu starfsmenn lögreglu að störfum við rannsókn á hnífsstunguárás sem átti sér stað í miðbæ Reykja­ víkur fyrir helgi. Margeir Sveins­ son aðstoðaryfirlögregluþjónn segir málið eitt af þeim stærstu sem lögreglan hefur tekist á við og að Fangelsismálastofnun sé komin að þolmörkum. Þegar Fréttablaðið fór í prentun var lögreglan enn á höttunum eftir síðustu einstakling­ unum sem eru grunaðir um aðild að málinu og var búið að handtaka hátt í þrjátíu manns. Þetta kom fram í viðtali við Mar­ geir sem birtist á Hringbraut í gær þar sem hann sagði lögregluna vera komna með nokkuð skýra mynd af atburðarásinni. „Við höfum verið að benda á þetta í gegnum tíðina. Hnífaárásum hefur fjölgað í miðbænum, þar sem hópar eða einstaklingar eru tilbúnir að beita eggvopnum. Þetta er eitt af því sem við óttuðumst mest, að þessi gengi enduðu saman með þessum hætti,“ sagði Margeir og bætti við að þetta væri til marks um aukna hörku í undirheimunum. „Harka hefur alltaf verið til staðar í undir heimunum en kannski ekki af þessari stærðar gráðu sem við erum að horfa á núna,“ sagði Mar­ geir. n Búið að handtaka hátt í þrjátíu manns Margeir Sveins- son, aðstoðar- yfirlögreglu- þjónn 2 Fréttir 22. nóvember 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.