Fréttablaðið - 22.11.2022, Blaðsíða 10
hoddi@frettabladid.is
FÓTBOLTI A-landslið karla í knatt-
spyrnu hefur lokið keppni á þessu
ári en liðið vann aðeins tvo af fjór-
tán leikjum sínum á þessu ári. Liðið
endaði árið á að vinna Eystrasalts-
bikarinn en báðir leikir unnust í
vítaspyrnukeppni í átt að titlinum.
Ísland spilaði fjóra keppnisleiki
undir stjórn Arnars Þórs Viðars-
sonar á þessu ári, allir fjórir leik-
irnir í Þjóðadeildinni enduðu með
jafntefli.
Jafntefli er saga ársins hjá lands-
liðinu sem gerði jafntefli í átta af
fjórtán leikjum liðsins. Rúm 57 pró-
sent leikja liðsins enduðu því með
jafntefli. Öll undankeppni fyrir EM
2024 fer fram á næsta ári þar sem
liðið þarf að ná að breyta jafnteflum
í sigra. Er þetta met í fjölda jafntefla
á einu ári hjá landsliðinu.
Íslenska liðið skoraði tólf mörk í
þessum fjórtán leikjum á þessu ári,
liðið fékk hins vegar 21 mark á sig.
Undir stjórn Arnars Þórs Viðars-
sonar hefur liðið átt í vandræðum
með að vinna jafna leiki en liðið
vann aðeins San Marínó og Venesú-
ela í æfingaleikjum sem fram fóru í
júní og síðan í september.
Arnar Þór Viðarsson var að klára
sitt annað heila ár í starfi þjálfara
en talsverð umræða hefur verið um
framtíð hans í starfi. Vanda Sigur-
geirsdóttir, formaður KSÍ, skoðaði
það á dögunum að ráða Heimi Hall-
grímsson en hætti við. Hún hefur
lagt traust sitt á Arnar sem þarf að
standa undir þeirri áskorun að skila
betri úrslitum á næsta ári. n
Árið sem yfir helmingur leikja endaði með jafntefli
Arnar Þór þarf að sækja úrslit strax á næsta ári þegar undankeppni EM 2024
hefst. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Úrslit A-landsliðs karla árið 2022:
Þjóðadeildin
Ísrael 2 - 2 Ísland
Ísland 1 - 1 Albanía
Ísland 2 - 2 Ísrael
Albanía 1 - 1 Ísland
Eystrasaltsbikarinn
Litáen 0 - 0 Ísland
Lettland 1 - 1 Ísland
Æfingaleikir
Úganda 1 - 1 Ísland
Suður-Kórea 5 - 1 Ísland
Finnland 1 - 1 Ísland
Spánn 5 - 0 Ísland
San Marinó 0 - 1 Ísland
Venesúela 0 - 1 Ísland
Sádi-Arabía 1 - 0 Ísland
Suður-Kórea 1 -0 Ísland
Það verður mikið um dýrðir
í Origohöllinni í kvöld þegar
þýska stórliðið Flensburg
mætir Val í Evrópudeildinni.
Arnór Snær Óskarsson leikur
lykilhlutverk í liði Vals.
aron@frettabladid.is
HANDBOLTI Arnór Snær Óskars son
er einn af leik mönnum Vals í hand-
bolta sem hafa sprungið út í veg-
ferð liðsins í riðla keppni Evrópu-
deildarinnar. Hjá Val nýtur Arnór
meðal annars lið sinnis bróður síns
Bene dikts og föður síns Óskars
Bjarna. Fram undan er stærsta verk-
efni Vals í Evrópu deildinni hingað
til en liðið mætir þýska stór veldinu
Flens burg í Origohöllinni í kvöld.
Það gefur auga leið að gríðar-
legur á hugi er á leiknum enda ekki
á hverjum degi sem stór lið í hand-
boltanum leika hér á landi. Upp selt
er í Origohöllina í kvöld og Vals-
menn hafa, líkt og Flens burg, farið
vel af stað í riðla keppninni með
tvo sigra í fyrstu tveimur leikjum
sínum.
Nú er komið að stærsta verk efni
Vals manna til þessa og Arnór er
spenntur.
„Það er mikill spenningur sem
hefur gert vart við sig í að draganda
leiksins. Maður hefur verið að bíða
svo lítið eftir þessum leik, að mæta
Flens burg heima, fyrir framan
allt okkar stuðnings fólk. Þetta er
draumur, al gjör snilld.
Að upplifa draum sinn
Reynsla Vals af riðla keppni Evrópu-
deildarinnar hefur verið nokkuð
góð hingað til.
„Þessir fyrstu tveir leikir okkar
í Evrópu deildinni á móti FTC og
Benidorm hafa spilast nokkuð vel.
Við höfum náð að spila okkar leik,
náð að keyra á and stæðinginn og í
raun ekkert stoppað. Þá höfum við
náð að spila góða vörn, fengið mark-
vörslu, það hefur í raun allt gengið
upp.“
Arnór er sem leik maður Vals að
upp lifa draum sinn síðan í æsku.
„Ég get með sanni sagt að þetta
sé draumi líkast. Maður hafði áður
fengið smjör þefinn af þessum
Evrópu keppnum, til að mynda
gegn Lem go í fyrra, en það að vera
nú að keppa í riðla keppni Evrópu-
deildarinnar er ein hvern veginn
miklu stærra.
Ég man þegar maður var yngri og
fylgdist með þessum stóru liðum í
Evrópu, á þeim tíma punkti hugs-
aði maður með sjálfum sér að þetta
væri eitt hvað sem maður vildi
stefna að.“
Bræður berjast hlið við hlið
Draum sinn upp lifir hann með
bróður sínum Bene dikt Gunnari
Óskars syni og föður sínum Óskari
Bjarna Óskars syni en bræðurnir
hafa vakið verð skuldaða at hygli
með frammi stöðu sinni hingað til
í Evrópu deildinni.
„Það er bara frá bært að geta upp-
lifað þetta með þeim og ég get í fullri
hrein skilni sagt að ég myndi ekki
vilja fara í gegnum þetta verk efni
með neinum öðrum.
Bene dikt er frá bær leik maður,
það er gott að spila með honum og
við tengjum vel og þá er gott að hafa
ein hvern á vara manna bekknum
sem er gott að tuða al menni lega í
og þar kemur pabbi sterkur inn.“
Fyrir upp haf Evrópu deildarinnar
var mikið um það rætt að nú myndi
fást betri mynd af stöðu ís lensks
fé lags liðahand bolta í Evrópu enda
ekki reglu legur at burður að Ís land
eigi lið í riðla keppni Evrópu móta.
Það reynist á skorun fyrir alla
hlutað eig andi hjá Val að halda ein-
beitingunni á réttum stöðum hverju
sinni en vel hefur tekist til hjá liðinu
í Evrópu og hér heima.
„Mér finnst við vera að tækla
þetta vel. Auð vitað leiðir maður
hugann að þessum Evrópu leikjum
þegar nær dregur en þetta getur
alveg tekið á. Ég reyni bara að hugsa
ekki of langt fram í tímann, heldur
bara að næsta leik.
Mark miðið var alltaf þannig,
milli þessara Evrópu leikja, að við
ætluðum að vinna þá og mæta síðan
fullir sjálfs trausts í Evrópu verk-
efnið. Hingað til hefur þetta gengið
mjög vel.“
Þurfa fullkominn leik
Vals menn ætla sér að ná í úr slit á
móti Flens burg en það gæti reynst
þrautin þyngri að gera það. Hvað
þurfa Vals menn, að mati Arnórs,
að gera til þess að sigra þýska stór
veldið?
„Við þurfum að ná full komnum
leik, keyra bara á þá og fá vörnina
inn. Þá fylgir mark varslan með. Ef
við náum að tvinna þetta saman eru
okkur allir vegir færir.“
Flens burg situr um þessar
mundir í 4. sæti þýsku úr vals-
deildarinnar og mætir sært til leiks
eftir jafn tef li gegn Melsun gen á
sunnu daginn. Stutt er á milli leikja í
þýsku úr vals deildinni og er það eitt-
hvað sem Vals menn gætu nýtt sér.
„Það getur vel verið að það sé
ein hver þreyta í leik manna hópi
þeirra en að sama skapi veit ég að
þessir leik menn eru mjög vel þjálf-
aðir og til búnir í þetta.
Þetta er bara fínn tíma punktur
fyrir okkur að keyra bara al menni-
lega á þá og vonandi gengur það
upp.“ n
Stærsta verkefni Valsmanna í Evrópu til þessa
Arnór Snær sýnir
hér listir sínar
með Val í fyrsta
leik liðsins í
riðlakeppni
Evrópudeildar-
innar og gefur
hér glæsilega
stoðsendingu.
Arnór hefur
farið frábærlega
af stað með
Val í Evrópu-
deildinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Teitur snýr aftur heim
Íslenski
landsliðs-
maðurinn
Teitur Örn
Einarsson er
á mála hjá
Flensburg og
hann mætir
til leiks í
Origohöllina
í kvöld.
Teitur er
uppalinn hjá Selfyssingum
en eftir að hafa slegið í gegn
hér heima á sínum tíma
samdi hann við sænska liðið
IFK Kristianstad. Þar lék hann
á árunum 2018–2021 þegar
kallið kom síðan frá Þýska-
landi og gekk Teitur til liðs
við Flensburg.
Þessi 24 ára gamli Selfyss-
ingur hefur verið viðriðinn
íslenska landsliðið en Teitur
spilaði sinn fyrsta A-lands-
leik í apríl 2018.
Ég get með sanni sagt
að þetta sé draumi
líkast.
Arnór Snær Óskarsson
10 Íþróttir 22. nóvember 2022 ÞRIÐJUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 22. nóvember 2022 ÞRIÐJUDAGUR