Fréttablaðið - 22.11.2022, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 22.11.2022, Blaðsíða 40
frettabladid.is 550 5000 RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025 LÆGSTA ER Á BÚSTAÐAVEGI Í REYKJAVÍK VERÐIÐ Allt fyrir góðan svefn og betri heilsu LISTHÚSINU LAUGARDAL s. 581 2233 BALDURSNESI 6, AKUREYRI s. 461 1150 OPIÐ virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 12-16 UMBOÐSAÐILAR Húsgagnaval, Höfn í Hornafirði og Bara snilld, Egilsstöðum | svefnogheilsa.isBALDURSNES 6 – AKUREYRI VERSLUN & OUTLET – LISTHÚSIÐ – REYKJAVÍK UM FJÓRÐUNGUR LANDS- MANNA SEFUR Á DÝNU FRÁ SVEFN & HEILSU* *Samkvæmt könnun frá Gallup. SVARTUR FÖSTUDAGUR 10% AF ÖLLUM VÖRUM 25% AF VANDYCK & BRINKHOUSE MJÚKVÖRU 30-50% AF VÖLDUM VÖRUM 50% AF ÖLLU Í OUTLETI ÚT NÓVEMBER Péturs Georgs Markan n Bakþankar Hann er skarpleitur og fríður þar sem hann situr til hliðar við aðra gesti safnaðarheimilisins í Breið- holtskirkju og spilar á píanóið. Tónarnir mynda notalega stemm- ingu á meðan fólkið malar. Það fer ekki mikið fyrir honum en umhverfið er einhvern veginn allt miklu betra á meðan hann spilar – á meðan hann er. Partur af sam- félagi, hluti af veröld, eitt mikil- vægt púsl í undramynd mannsins. Gefur af sér. Við náum spjalli þegar við erum báðir að sækja okkur kaffi. Ég ávarpa hann á ensku og spyr hvort hann spili mikið tónlist – hann svarar mér á íslensku og við ræðum um þetta sameigin- lega áhugamál okkar. Hann kom fyrir rúmum tveimur árum, fékk tungumálið á heilann og las íslensku upp á hvern dag, talaði og hlustaði. Fékk vinnu við umönnun á hjúkrunarheimili og leið vel í samfélagi við gamla fólkið – spjallaði, þjónustaði og studdi, og treysti þannig íslensk- una og upplifði í leiðinni öryggi og frið. Tilgang. Gaf af sér í starf sem annars erfiðlega gengur að manna. Lítils metið láglaunastarf í veröld sumra en lífsgjöf og erindi dagsins í hans hjarta. Vinnur, borgar til samneyslunnar og rækir þannig samábyrgðina – mannar mikilvægan póst, annars ómann- aðan póst. Nú hefur umsókn hans verið hafnað og hann bíður kvíðinn eftir nokkrum þungum höggum á dyrnar. Liðsafnaður fyrir utan og háu ljósin blinda. Vísað úr landi til Grikklands. Forsætisráðherra talar um í helgarumræðunni að það þurfi að auðvelda fólki utan EES að koma inn á vinnumarkaðinn. Það er rétt hjá henni og þess eru fordæmi hjá öðrum EES-þjóðum. n Þung högg

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.