Fréttablaðið - 22.11.2022, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 22.11.2022, Blaðsíða 25
Handverksfólk vill fá skemmtilegar gjafir eins og allir aðrir. Upplifun er til dæmis mjög góð og kær- komin gjöf. Þó er alltaf eitt- hvað sem vantar í bílskúrinn fyrir skapandi fólk og það er eitt og annað sem hægt er að gleðja með. elin@frettabladid.is Hvort sem um ræðir iðnaðar- eða handverksmann er ýmislegt skemmtilegt hægt að finna í jóla- pakkann. Þótt fólk vilji alltaf per- sónulegar gjafir getur verið mjög gott að fá eitthvað sem kemur sér virkilega vel til eignar, sem sagt hagnýtar gjafir. Það geta verið margs konar nútímaleg verkfæri sem auðvelda störfin. Einnig getur það verið góður stigi fyrir þann handlagna en álstiga er frá- bært að eiga á heimilinu til margs konar nota. Hvort sem stiginn er með fáum tröppum eða mörgum er gott að eiga hann í bílskúrnum eða geymslunni þegar þarf að skipta um ljósaperu, mála veggina, setja upp jólaljósin, þvo gluggana, þrífa þakrennurnar og sitthvað fleira. Í myrkrinu hér á landi er líka gott að eiga hagnýtt vasaljós í góðum gæðum. Endurhlaðanlegt vasaljós er til dæmis mjög sniðugt og gott að eiga. Þetta þarf ekki að vera dýr gjöf en afar nytsöm. Góður geymsluskápur fyrir verkfæri er sömuleiðis frábær gjöf. Hagnýtar gjafir sem koma sér vel Það er gott að eiga vönduð tæki þegar gera þarf við eitthvað en ýmislegt sniðugt fæst til gjafa fyrir handverksfólk. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Í slíkum skápum er allt í röð og reglu en gott skipulag er nauðsyn- legt þegar grípa þarf verkfærin jafnvel daglega. Hillur, verkfæra- kassar, vinnulampar eða skúffur til að geyma skrúfur. Allt eru þetta hagnýtar gjafir sem koma sér vel. Ef þú þarft að kaupa jóla- gjöf fyrir einhvern sem býr í gömlu húsi og er sífellt að gera upp er margar hug- myndir að finna í byggingar- vöruverslunum. Borvélar, sagir, rafmagnsskrúfjárn, hallamál eða ýmis minni tæki til að tengja við önnur. Svo má minnast á vinnu- hanska, vinnufatnað og -skó. Vönduð vinna krefst góðs búnaðar og sífellt er verið að hanna nýja tækni sem gerir tækin einfaldari. n Gjafirnar þurfa ekki að vera stórar því þessar litlu gera kraftaverk. Umboðsaðili STIHL á Íslandi RÉTTA GRÆJAN FYRIR ALLA JÓLASVEINA kynningarblað 5ÞRIÐJUDAGUR 22. nóvember 2022 JÓLAGJÖF FAGFÓLKSINS Jólablaðið Jólablaðið kemur út 2. desember næstkomandi. Blaðið er fullt af skemmtilegu efni og þar má nefna viðtöl, mat, skreytingar, bakstur, innlit, föndur, jólagjafir og margt fleira. Viltu auglýsa? Hafðu samband í síma 550-5077 eða í tölvupósti á serblod@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.