Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1982, Síða 5
formAli
Rannsókn sú sem hér er lýst hefur átt nokkurn aðdraganda,
sem sagt er frá í inngangi. Verkið var unnið af Mannéldis-
ráði eftir að það tók til starfa á árinu 1977. Niðurstöður
rannsóknarinnar voru jafnharðan ræddar á fundum Manneldisráðs.
Auk þeirra manna, sem skipaðir voru í Manneldisráð á tímabil-
inu 1974 - 1978 og getið er hér á eftir, var haft samráð við
Vigdísi Jónsdóttur skólastjóra og Önnu Guðmundsdóttur kennara,
um mat á skammtastærðum, en aðallega var tekið mið af fyrri
rannsóknum Baldurs Johnsens.
Dr. Jón Óttar Ragnarsson rannsakaði C-vítamín og mjólkurvörur
á Rannsóknastofnun landbúnaðarins og eiu niðurstöður birtar í
viðauka I. Þá annaðist dr. Jón öttar næringarefnaúrvinnslu á
grundvelli áætlaðra skammtastærða. Dr. Alda Möller stóð fyrir
rannsóknum á næringarefnainnihaldi ýmissa matvæla á Rannsóknar-
stofnun fiskiðnaðarins, en þær ránnsóknir eru birtar í viðauka
II. Ingibjörg Johannessen vann úr frumgögnum, en úr því efni
var síðan skammtafjöldinn unninn í hverjum matvælaflokki . Ingi
björg og Guðrún Björnsdóttir sáu einnig um vélritun greinar-
gerðarinnar. Skólastjórar og kennarar sýndu verkinu áhuga og
hjálpuðu til við framkvæmd þess. Öllum þessum aðilum og raunar
fleiri ónefndum er að þakka að fæðukönnun þessi komst í höfn.
Ef niðurstöður eru bornar saman við neyslurannsókn sem gerð
var meðal skólabarna fyrir 40 árum kemur eftirfarandi í ljós:
Neysla sælgætis og gosdrykkja er gífurleg.
Neysla járns og fituleysanlegra vítamína er í lágmark
Neysla máltíða í heimahúsum hefur minnkað verulega.
Neysla ávaxta og grænmetis hefur aukist.
Eitt brýnasta verkefnið í næringarmálum hér er að stuðla að