Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1982, Side 7

Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1982, Side 7
5 INNGANGUR Fyrstu skipulegu rannsóknirnar á mataræði íslendinga fóru fram árin 1938 -39: Neyslukönnun í skólum, einkum á Vest- fjörðum en einnig í Reykjavík og fjölskyldukönnun víða um land á vegum Manneldisráðs. Um fyrri könnunina sá Baldur Johnsen,1^ þá héraðslæknir í Ögri, en um þá síðari Júlíus Sigurjónsson, prófessor.^) Manneldisráð varð til úr nefnd sem þáverandi forsætisráðherra skipaði til undirbúnings manneldiskönnunar á Islandi 1939. Lög um Manneldisráð voru þó ekki sett fyrr en á árinu 1945. Þrátt fyrir það form sem ráðinu var gefið með lögunum lá starfsemi þess niðri þar til á ný var skipað í það og þá fyrir forgöngu landlæknis árið 1974. 1 þessu nýskipaða ráði var landlæknir samkvæmt lögum forseti, en aðrir ráðsmenn voru Baldur Johnsen yfirlæknir, prófessor Júlíus Sigurjónsson, Snorri Páll Snorrason yfirlæknir og Örn Bjarnason skólayfir- læknir. Þegar prófessor Júlíus Sigurjónsson lét af störfum, tók prófessor Hrafn Tulinius við af honum í ráðinu, en seinna var svo Jón óttar Ragnarsson dósent, skipaður í ráðið í sam- bandi við sérstakar rannsóknir 1978. Manneldisráð gat ekki tekið til starfa fyrr en á árinu 1977, en þá fyrst var veitt nokkurt fé á fjárlögum til starfsemi þess Meðlimir ráðsins gerðu sér fljótlega grein fyrir því, að til þess að hægt væri að sinna aðalhlutverki ráðsins, þ.e. ráðgjöf fyrir almenning og stjórnvöld, yrði að hefja manneldisrannsókn á breiðum grundvelli og vinna að því að teknar verði upp nær- ingarfræðilegar rannsóknir á innlendum og erlendum matvælum sem eru á borðum Islendinga. Hvað snertir manneldisrannsóknir komu til greina ýmsar aðferðir Fyrir valinu varð "skólarannsóknaraðferðin", sem er tiltölulega auðveld í framkvæmd, enda til reynsla af slíkri rannsókn eins og fyrr segir og því samanburðargrundvöllur fyrir hendi. Hins

x

Heilbrigðisskýrslur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.