Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1982, Qupperneq 9

Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1982, Qupperneq 9
7 I. KAFLI Aðferð og tilgangur fæðukönnunar Manneldisráðs 1977 - 78 Samin voru eyðublöð fyrir alla virka daga vikunnar og þeim útbýtt í kennslustundum fyrir hádegi eða eftir hádegi í sam- ráði við skólastjóra og kennara, en síðan áttu nemendur að fylla út í þar til gerða reiti hvað þeir hefðu borðað um morg- uninn og daginn áður. Sérstaklega var spurt um hvers neytt var heima og hvers utan heimilis, sbr. mynd I. Ritari ráðsins fór í alla skólana og fylgdist með útfyllingu blaðanna. Fyrsta könnunin var gerð í fjórum skólum Reykjavíkur, Austur- bæjarskóla, Hvassaleitisskóla, Hlíðaskóla og Breiðholtsskóla. í þeim skólum voru blöðin á engan hátt merkt. Seinni atrennan var gerð í apríl. I þeirri könnun þótti ástæða til þess að spyrja nokkurra fleiri spurninga, t.d. um það hve mikils brauðs væri neytt, til þess m.a. að afla vitneskju um hve mikils væri neytt af viðbiti. Þessi könnun var þannig gerð, að hægt var að rekja saman blöð nemenda og þannig hægt að fá hugmynd um fæði einstakra nemanda á þessum 5 dögum, sem könnunin stóð. Niðurstöður upplýsinga sem komu fram í seinni könnuninni voru síðan notaðar til þess að auðvelda úrvinnslu fyrri könnunarinn- ar með tilliti til orku og vítamínmagns í brauði og fitu. Við úrvinnslu á þessum rannsóknareyðublöðum var talið hversu oft hver matartegund kom fyrir, en það gaf upplýsingar um hversu margir skammtar af hlutaðeigandi fæðutegundum voru í fæðinnu vikulega og daglega að jafnaði. Upplýsingar um daglegan skammtafjölda af hinum ýmsu fæðutegund- um, en þær voru rúmlega 160, gefa miklar upplýsingar um matar- æði Islendingar eða þeirra einstaklinga sem þátt tóku í rann- sókninni.

x

Heilbrigðisskýrslur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.