Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1982, Blaðsíða 12

Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1982, Blaðsíða 12
10 Kjötmeti 0,7-0,8 skammtar á dag (1938: 0,5 skammtar á dag) Aðalkjötmetið er kindakjöt. Samfara minnkun fiskneyslu eykst neysla kjötmetis. Aðallega er um að ræða kindakjöt og lítils háttar af nautakjöti, en lítil neysla fugla og svínakjöts. Þess ber að geta að steinefnainnihald fuglakjöts er mismunandi eftir því hvar af skepnunni kjötið er. T.d. er meira af járni í brjóstvöðvum flugfugla en aftur á móti meira járn í lærvöðvum gangfugla eins og hænsnfugla o.s.frv. Heildarneysla kjöts og fiskmetis hefur minnkað frá því á árunum fyrir stríð. Egg, slátur, harðfiskur 0,9-0,18 skammtar á dag (1938: 0,5 skammtar á dag) Þessar hollu fæðutegundir sjást sjaldan á borðum. Egg voru raunar illfáanleg haustið 1977 en voru alls staðar fáanleg vorið 1978 og var neyslan þó ekki nema 1 egg á viku. 1 Laugar- nesi var eggjaneyslan heldur meiri. Sláturneysla fer minnkandi og er nú sáralítil. Harðfiskur sést varla á borðum nú orðið. Mjólkurmatur 3,21 skammtar á dag (1938: 1,66 skammtar á dag) Neysla er mikil miðað við fullfeitar mjólkurafurðir eða að meðaltali 2,4 skammtar á dag. Skyr og undanrenna gefa aðeins 0,15 -0,18 skammta daglega. Þessi mikla notkun mjólkurafurða er athyglisverð og samsvarar 600 g af nýmjólk á dag, en þar við bætist skyr, ostur, rjómi, undanrenna og smjör. Ostanotkun er töluverð. Neysla mjólkurafurða hefur tvöfaldast frá því á árun- um 1938 - 40.

x

Heilbrigðisskýrslur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.