Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1982, Page 14
12
því minnkað um helming og ýmiss konar sælgæti og sætindi komið
í staðinn.
Grænmeti og ávextir 1,90 skammtar á dag
(1938: 0,67 skammtar á dag)
Aðalgrænmetið er nú eins og áður kartöflur og neyslan er um
150 g á dag. Heildarneysla í þessum flokki hefur aukist tals-
vert frá fyrri könnunum enda voru ávextir nær óþekkt vara á
Islandi 1938-39. Neysla mandarína, klementína og appelsína
í desember gefur stóra C-vítamínskammta.
Drykkir (gos, djús og kók) 1,18 skammtar á dag (1938: 0)
Samkvæmt þessari könnun má segja að þessir drykkir skipi sér-
stakan sess því að þeirra var ekki neytt fyrr á árum. Þessara
drykkja er ýmist neytt heima eða á söluskálum. Líklegt má
telja að neysla þessara drykkja komi til með að aukast meðal
yngra fólks sem eldra.
Kaffi og te. Þessir drykkir eru á borðum tæplega einu sinni
í viku að jafnaði. Neysla þeirra er minni en áður. Kaffineysla
hefur minnkað, en tedrykkja hefur aukist nokkuð.
Sætindi, miðað við sykur 110,3 g á dag (1938: 38 g á dag)
Sælgæti og önnur sætindi vega drjúgt í fæðunni, sérstaklega
sætabrauð, súkkulaði og kex, t.d. "Prince-Polo". Þetta gefur
til samans um einn heilan skammt daglega, en l^ skammt með
sykri, sultu og hunangi. Hunang er lítill hluti af sætinda-
venjunni. Árið 1938 var sælgæti ekki teljandi, en sykur út á
grauta og í kaffi var áætlað 40 g á dag.
Alegg er erfitt að meta vegna ónákvæmni í framtali og mati á
stærð.skammtanna.