Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1987, Side 23

Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1987, Side 23
Efni til hreingerninga. Fjöldi hættulegra erlendra efna eru á markaði hér á landi en oftast fylgja ekki leiðbeiningar á islensku um notkun og hættur á umbúðum eins og ákvæói eru um erlendis. Islensk efni eru jafnvel ekki merkt. Mörg þessara efna eru mjög hættuleg og hafa valdió alvarlegum slysum. Þessum málum verður að kippa i lag. Setja parf i lög ákvæói um aó innflytjendur og islenskir framleiðendur beri ábyrgð á merkingum. Svo virðist sem fjárskortur eftir1itsaði1a valdi hér nokkru um. Nauðsynlegt er að i hverri ibúð sé efnaskápur sem börn geta ekki opnað sbr. teikningar af verkamannabústöóum frá 1978. Nú eru oft ýmis hættuleg hreinsiefni geymd i ólæstum skáp undir vaski. Börn geta auðveldlega opnað flesta skápana og forvitnilegt að vera þar að leik. Einfaldast er að hafa læsanlegan skáp undir eldhúsvaskinum. Húsgöqn. Flest slys veróa vegna þess að fólk dettur úr rúmum eða af kollum (eldra fólk). Stólar fyrir eldra fólk eiga að vera með "háum sætum". Kollar ættu ekki að vera til i húsum aldraðra. Borð og borðplötur geta verið hættuleg börnum vegna hvassra horna og kanta. Bólstrunarefni, teppi og rúmföt. Ýmiskonar gerfiefni eru nú notuð i vaxandi mæli. Við bruna er hætt við gas- og kolsýringseitrun og eru skráð 5 dánartilfelli vegna kolsýrings- eitrunar árið 1979 á Stór-Reykjavíkursvæðinu. A sama tima létust 8 i umferóarslysum á svæðinu. Nauðsynlegt er að veita fólki frekari upplýsingar um hættur er stafa af bruna gerfiefna. Sóllampar. Nokkuð er um brunatilfelli og jafnvel tímabundna blindu vegna þess aö heppileg gleraugu eru ekki notuð. Lampar þurfa að vera útbúnir með úrverki og bjöllu. Snyrtivörur. Ýmsar snyrtivörur ætti aö geyma i lyfjaskáp. 21

x

Heilbrigðisskýrslur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.