Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1987, Blaðsíða 34
hverjum aldurshóp. Við tölfræðilega úrvinnslu á þessum
niðurstöðum hefur komið í ljós að sterk líkindi eru fyrir því að
munurinn á aldurshópunum 20-24 ára og 25-29 ára annars vegar miðað
við alla aldurshópana saman hins vegar sé sannur.
Mynd 5 sýnir hlutfallslegan fjölda slasaðra hjá konum á
Reykjavíkursvæðinu á hverja 10000 starfandi í hverjum aldurshóp.
Myndin byggir því á nýgengitölum. Hér er því hægt aö bera saman
aldurshópana á raunhæfan hátt. Nýgengi allra aldurshópa saman er
sýnt með punktalínu, sem er eins konar meðaltal þeirra. Flestir
slasaðra eru í aldurshópnum 20 til 24 ára, en fjöldi slasaðra í
hópnum, sem er 19 ára og yngri, er einnig nokkuð yfir nýgengi
allra aldurshópanna saman. Við tölfræðilega úrvinnslu á
niðurstöðunum varðandi konurnar hefur komið í ljós að sterk
líkindi eru fyrir því að munurinn á aldurshópnum 20 til 24 ára
miðað viö alla aldurshópa saman sé sannur.
Frumniðurstöður þeirrar könnunar, sem hér er sagt frá sýna að
ungt fólk verður hlutfallslega fyrir fleiri vinnuslysum en eldri.
Flestar erlendar rannsóknir benda í sömu átt þó alls ekki sé um að
ræða sömu öfgakenndu yfirtíðni slysa hjá ungum eins um er að ræóa
hér. Það er því ljós að ungt fólk hér á landi er sérstakur
áhættuhópur, í meiri hættu á að verða fyrir vinnuslysum en þeir
eldri. A þessu stigi er erfitt aó segja til um hvað þessu veldur,
en nærtækastu skýringarnar eru ef til vill skortur á starfsþjálfun
og æfingu, ónógar leiðbeiningar til nýráðinna eða hin aukna
tilhneiging æskufólks að taka "áhættu". Það er einnig líklegt að
sinn þátt eigi hættulegar vinnuaðferðir, of mikill vinnuhraði
orsakaður af afkastahvetjandi launakerfum eða of langur vinnutími
með of fáum og of stuttum hvíldarhléum. Fyrirbyggjandi starfi í
þágu ungs fólks á vinnumarkaðinum þyrfti aó beina að þessum
atriðum sérstaklega.
Aldursdreifing
32
Mynd 1. FJÖldl slasaðra af báðum kynjum saman í heiIdarúrtaklnu eftir fimm ára
aldurshópum. Flestir eru í aldurshópnum 20 til 24 ára og 15 til 19 ára.