Heilbrigðisskýrslur - 06.12.1994, Page 33

Heilbrigðisskýrslur - 06.12.1994, Page 33
5. Lokaorð í þessu riti hefur verið greint frá undirbúningi rannsóknar og framkvæmd. Ekki verður gerð grein fyrir niðurstöðum hér að öðru leyti en því að tíðnitölur eru birtar í viðauka ásamt spurningalista þannig að þar sést hvernig einstökum spurningum var svarað. Hér hefur verið leitast við að kynna rannsóknina og þá sérstaklega markmið hennar og hvernig reynt var að ná þessum markmiðum með vali atriða á spurninga- lista og jafnframt hvernig rannsóknin var framkvæmd til þess að reyna að tryggja sem besta svörun. Þessi greinargerð mun liggja til grundvallar nánari túlkun niðurstaðna og umræðu um þær. A næstunni er gert ráð fyrir að gefin verði út fleiri rit þar sem túlkaðir verða einstakir efnisþættir úr niðurstöðum rannsóknarinnar og verður það gert í samvinnu við sérfræðinga á viðeigandi þáttum. Þessi rit munu fjalla um eftirtalda efnisþætti: 1. Kynhegðun og smitlíkur 2. Þekkingu á smitleiðum 3. Aðra kynsjúkdóma 4. Áherslur í fræðslu- og forvarnarstarfi 31

x

Heilbrigðisskýrslur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.