Fréttablaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 3

Fréttablaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 3
2 6 2 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F I M M T U D A G U R 1 . D E S E M B E R 2 0 2 2 Fullveldisdagur í kulda og trekki Þrír vinir hittast á T.G.I. Friday’s Lífið ➤ 24Menning ➤ 23 Nýjar íslenskar rannsóknir sýna fram á að mataræði barnshafandi kvenna hefur sín áhrif á hag fóstursins. Hratt minnkandi joðneysla landsmanna er áhyggjuefni. ser@frettabladid.is RANNSÓKNIR Neysla landsmanna á joði, sem fæst úr fiskafurðum og mjólkurvörum, hefur farið hratt minnkandi hér á landi á síðustu ára- tugum – og þess sér stað við frammi- stöðu barna á greindarprófum. Þetta er meðal þess sem fram hefur komið í ítarlegum rannsókn- um Ingibjargar Gunnarsdóttur, pró- fessors í næringarfræði við Háskóla Íslands, sem staðið hafa yfir í áratug og hverfast um næringarþörf barns- hafandi kvenna. Eitt þúsund barnshafandi konur hafa tekið þátt í rannsókninni, þar sem þvag- og blóðprufur hafa verið teknar til að sýna næringarástand þeirra, en einnig hefur verið fylgst með þróun á þarma f lóru fjölda barna þeirra kvenna sem þátt tóku. „Í rannsókninni höfum við verið að þróa einfalt skimunartæki til að finna konur sem gætu haft gagn af því að breyta mataræði sínu á með- göngu,“ segir Ingibjörg. „Kveikjan að því er að við sáum fyrir nokkrum árum að tíðni meðgöngusykursýki er algengari hjá konum yfir kjör- þyngd fyrir þungun. En þá tókum við líka eftir því að þær konur sem eru yfir kjörþyngd en borða góðan og hollan mat eru ekki í meiri hættu á að fá meðgöngusykursýki.“ Rannsóknarteymi Ingibjargar hefur einkum horft til þess hvaða næring hefur helst áhrif á heilsu móður og barns og hvað skortur á ákveðnum bætiefnum getur haft í för með sér. „Við vissum svo sem að góður D-vítamínhagur er barnshafandi konum á Íslandi mjög mikilvægur, eins og raunar öllum landsmönnum í sólarleysinu í skammdeginu, en við áttuðum okkur svo á því að joð- hagurinn skiptir líka sköpum,“ segir Ingibjörg. Minni joðneysla, af völdum breyttra neysluhátta, hefur sín áhrif. „Lítið joð hjá barnshafandi konum hefur verið tengt við lakari frammistöðu barna á greindar- prófum,“ segir Ingibjörg sem var gestur í nýjustu þáttaröðinni af Vísindunum og okkur á Hringbraut í vikunni. n Greind barna sögð tengjast joðneyslu Allt til jóla Kammólína Frábær apptilboð á hverjum degi til jóla Sæktu appið Við áttuðum okkur svo á því að joð-hagur- inn skiptir líka sköp- um. Ingibjörg Gunnarsdóttir, prófessor í nær- ingarfræði við HÍ KJARAMÁL „Ef vilji er fyrir hendi til þess að fá eldra fólk til starfa þá verður að koma til móts við það eins og gert er í siðuðum löndum,“ segir Helgi Pétursson, formaður Landssambands eldri borgara. Samkvæmt frumvarpi Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra á að heimila heilbrigðisstofnunum að ráða fólk fram til 75 ára aldurs. Bandalags háskólamanna bendir á að ekki sé tekið við lífeyrisgreiðsl- um frá ríkisstarfsmönnum eldri en 70 ára. Margir óttast þannig að lífeyris- greiðslur verði skertar og að eldri borgarar verði notaðir sem ódýrt vinnuaf l þar sem ekki þurfi að greiða í lífeyrissjóði þeirra. SJÁ SÍÐU 4 Eldri borgarar verði ekki ódýrt vinnuafl Kvikmyndaleikstjórinn, rithöfundurinn og alþingismaðurinn fyrrverandi Þráinn Bertelsson færði á 78 ára afmælisdegi sínum í gær íslenska ríkinu kvikmyndaverk sín og tekjur af þeim að gjöf. Lilja Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra veitti gjöfinni viðtöku á sérstakri hátíðarsýningu á bíómyndinni Nýju lífi eftir Þráin í Bíó Paradís. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.