Fréttablaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 14
Við höfum alltaf verið í hlutverki óþekka unglings- ins á þess- um mark- aði. Forstjóri Nova segir heilmikl­ ar áskoranir hafa fylgt skrán­ ingu fyrirtækisins á markað. Í hennar huga sé mikilvægt að muna hvað hefur tryggt félag­ inu velgengni fram til þessa. Hún segir ekki standa til að aðgreina grunnkerfin frá ann­ arri starfsemi Nova. ggunnars@frettabladid.is Í dag eru slétt fimmtán ár frá því fjarskiptafélagið Nova fór í loftið. Fyrr á þessu ári steig fyrirtækið svo skrefið inn á aðalmarkaði Nasdaq Iceland með útboði á ríflega þriðj­ ungshlut í fyrirtækinu. Margrét Tryggvadóttir, forstjóri Nova, segir alveg klárt að það geti verið krefjandi að halda í þann ferskleika sem hefur einkennt fyrir­ tækið, nú þegar heil 15 ár eru liðin og félagið komið á markað. „Okkar mantra hefur alltaf verið að við eigum að ögra okkur. Í öllu sem við gerum. Varðandi tækni­ nýjungar, í þjónustunni við okkar viðskiptavini og nú gagnvart fjár­ festum. Þannig höldum við okkur ferskum,“ segir Margrét. Hún segist meðvituð um að takt­ ur fyrirtækja geti breyst samhliða slíkum breytingum. „En hvað Nova varðar þá tel ég mjög mikilvægt að halda í það sem hefur skapað árangurinn og kúltúr inn. Muna hver við erum og hvaða þættir hafa gefið góða raun. Það er það sem ég trúi að nýir hluthafar hafi keypt. Það væri mjög skrýtið ef við færum að hegða okkur einhvern veginn öðruvísi við það eitt að stíga inn í Kauphöllina.“ Enda segir Margrét ekkert standa til að skipta um takt eða lækka tón­ listina sem hefur einkennt Nova frá upphafi. „Við höfum alltaf verið í hlutverki óþekka unglingsins á þessum mark­ aði þannig að það fer okkur kannski bara vel að vera á þessum aldri, orðin 15 ára,“ segir hún og hlær. „En svona í alvöru þá finnst okkur mjög mikilvægt að andrúmsloftið sé jafn ferskt og kraftmikið í dag eins og það var þegar við byrjuðum. Við erum alltaf með augun á háleitum markmiðum. Og svo viljum við hafa gaman. Það er ekkert að fara að breytast,“ segir Margrét. Hún segist vel geta skilið að fólk velti því fyrir sér hvort rétt hafi verið að fara í hlutafjárútboð á þess­ um tímapunkti. Hvort sú ákvörðun hafi verið góð. „Svarið við því fer svolítið eftir sjónarhorninu. Út frá seljandanum, PT Capital, þá var þetta klárlega góð ákvörðun. En ef ég horfi á þetta sem Stendur ekki til að selja grunnkerfin út úr Nova Margrét Tryggvadóttir, forstjóri Nova, segir ekki standa til að breyta kúltúrn- um þótt félagið sé nú skráð á markað. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK stjórnandi þá myndi ég segja að þetta hafi verið lærdómsríkt,“ segir Margrét. „Þetta hefur verið krefjandi en líka mjög skemmtilegt.“ Að hennar mati megi þó ekki van­ meta mikilvægi þess að fá inn fjöl­ breyttan eigendahóp. „Það skiptir gríðarlegu máli. Við erum innviðafyrirtæki og þess vegna er mjög gott að fá lífeyris­ sjóðina inn og fleiri aðila.“ Margrét segir það samt enga launung að hún hefði viljað sjá gengi bréfanna þróast með öðrum hætti. „Það segi ég bæði sem hluthafi og sem starfsmaður. Nova hefur verið að vinna sigra frá því fyrirtækið var stofnað. Þegar maður sér svo allt í einu mínustölur er maður auðvitað ekkert sáttur. En við erum keppnisfólk, setjum undir okkur hausinn og einbeitum okkur að því sem við viljum gera til að vera áfram leiðandi á þessum markaði. Það skilar sér á endanum til allra; viðskiptavina, starfsfólks, hluthafa og samfélagsins í formi sterkra innviða. Þetta er bara enn ein áskorunin og við þrífumst á þeim.“ Enda telur Margrét ekki erfitt að viðhalda keppnisskapi þegar umhverfið er jafn spennandi og raun ber vitni. „Ég held að við séum að sigla inn í enn eitt blómaskeiðið í þessum geira. Með frekari snjallvæðingu og nýrri tækni. En svo eru líka miklar breytingar í gangi á íslenskum fjar­ skiptamarkaði. Í þeim felast ótvíræð tækifæri fyrir Nova. Með því segist Margrét eiga við þær breytingar sem hafa átt sér stað hjá fjarskiptafyrirtækjum sem hafa ákveðið að aðgreina grunnkerfin frá annarri starfsemi. „Við hjá Nova erum með ólíka sýn hvað það varðar. Við erum sterkt innviðafyrirtæki og það er ekki hluti af okkar stefnu að selja grunn­ kerfin. Við höfum sagt það alveg skýrt og gerðum það til að mynda þegar við stigum inn í Kauphöllina,“ segir Margrét. Sú trú sé einfaldlega sterk innan fyrirtækisins að með því að halda á allri virðiskeðjunni skapist ákveðið forskot inn í komandi tækniþróun. „Við viljum alltaf vera fyrst inn í framtíðina þegar kemur að snjöllum lausnum. Ef við höldum ekki á allri keðjunni er hætta á að við verðum dálítið eins og kexverksmiðja sem á bara pökkunarvélina. Sjáum bara um umbúðir en höfum ekki stjórn á öllu því sem þarf að gerast á undan.“ Margrét segir þetta eitt af því sem reynslan hafi kennt henni. „Djarfar ákvarðanir í fortíðinni hafa skapað okkur forskot inn í framtíðina. Við viljum ekki missa tökin á því eða missa þann brodd út úr fyrirtækinu. Það væri ekki í okkar anda,“ segir Margrét. n helgisteinar@frettabladid.is Helmingur allra þeirra kalkúna og gæsa sem ræktuð eru fyir jólin í Bretlandi hefur annaðhvort dáið eða verið innkallaður vegna fugla­ flensu. Framkvæmdastjóri breska alifuglaráðsins segir að kalkúna­ iðnaðurinn í landinu hafi orðið fyrir miklum skelli. Af þeim 8,5 til 9 milljónum kalk­ úna sem ræktaðir eru fyrir jólin í Bretlandi hafa 1,6 milljónir þeirra nú þegar dáið. Ef tekið er mið af þeim kalkúnum sem ganga frjálsir á túnum þá hafa rúmlega 600 þúsund af 1,3 milljónum orðið fyrir beinum áhrifum flensunnar. Fuglaflensan hefur hrjáð breska alifugla í rúmlega ár en tíðni flens­ unnar hefur rokið upp á seinustu vikum. Flensan er sú versta í sögu Bretlands og felur hún einnig í sér að slátra þurfi restinni af þeim fuglum sem eftir sitja á sýktum bæjum. Paul Kelly, formaður Kelly Tur­ keys sem staðsett er í Essex, segir að búast megi við miklum skorti á kalkúnum þetta árið. Hann segist ekki sjá fram á að kalkúnaverð muni hækka, frekar að það verði einungis lítið úrval í búðakælum landsins. Hann bætir við að ástandið sé verst fyrir breska bændur og að hann sjálfur sé þegar búinn að tapa 1,2 milljónum punda. „Vandamálið sem margir smærri árstíðabundnir bændur sem vinna bara fyrir jólin þurfa að glíma við, er að um leið og það kemur upp sýking á bænum þá munu þeir fuglar deyja innan fjögurra daga,“ segir Kelly. Bændur fá bætur frá yfirvöldum þegar þau mæta á sýkta bæi til að slátra þeim fuglum sem eftir eru. Hins vegar fá bændur aðeins greitt fyrir heilbrigða fugla og hafa sumir bændur tilkynnt að heilu hjarðirnar hafi veikst áður en slátrunin hófst. Alifuglaframleiðendur í Bret­ landi hafi krafist þess að flýtt verði fyrir þróun á bóluefni gegn fugla­ flensunni og efast margir kalkúna­ bændur um hvort það sé þess virði að halda áfram rekstri. n Kalkúnaskortur í Bretlandi yfir jólin Bretar glíma við verstu fuglaflensu í sögu þjóðarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Alifuglaframleiðendur í Bretlandi hafi krafist þess að flýtt verði fyrir þróun á bóluefni gegn fuglaflensunni. Það væri mjög skrýtið ef við færum að hegða okkur einhvern veginn öðruvísi við það eitt að stíga inn í Kauphöll- ina. 12 Fréttir 1. desember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMARKAÐURINN FRÉTTABLAÐIÐ 1. desember 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.