Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.12.2022, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 01.12.2022, Qupperneq 6
Ef viljinn er fyrir hendi til að fá eldra fólk til starfa þá verður að koma til móts við það eins og gert er í siðuðum löndum. Helgi Pétursson, formaður Lands- sambands eldri borgara ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300 OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16 JEEP® COMPASS TRAILHAWK 4XE ALVÖRU JEPPI – ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF JEEP.IS PLUG-IN HYBRID ÓMISSANDI HLUTI AF FJÖLSKYLDUNNI EIGUM BÍLA TIL AFHENDINGAR STRAX! Formaður Landssambands eldri borgara telur ótækt að sérstakar reglur verði gerðar um starfslokaaldur heilbrigð- isstarfsfólks. Afnema ætti reglur um starfslokaaldur. kristinnhaukur@frettabladid.is KJARAMÁL Helgi Pétursson, for- maður Landssambands eldri borg- ara, segir það ekki tækt að taka eina starfsgrein út fyrir sviga og hækka starfslokaaldurinn. Samkvæmt frumvarpi Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra stendur til að heimila heilbrigðis- stofnunum að ráða fólk á aldrinum 70 til 75 ára. Ástæðan er mönnunar- vandi heilbrigðisstofnana. Landssambandið er almennt séð hlynnt því að starfslokaaldur verði hækkaður. Eða réttara sagt að reglurnar um hann séu einfaldlega lagðar af. „Við viljum alls ekki hafa nein ákvæði um starfslokaaldur í lögum, hvorki hámörk um 67 né 70 ára aldur. Þetta á fyrst og fremst að vera samningsatriði milli þess sem vinnur og þess sem vill hafa fólk í vinnu,“ segir Helgi. Að sögn Helga sé það hins vegar til marks um losarahátt stjórnvalda að gera sérreglur fyrir ákveðnar starfsgreinar, byggt á hentugleik hverju sinni. Til dæmis séu oft gerðir verktakasamningar við lækna eftir að þeir ná 70 ára aldri. Frumvarpið var lagt fram í sumar til þess að mæta mönnunarvanda í heilbrigðiskerfinu. Samkvæmt núgildandi lögum á að segja upp ráðningarsamningum við alla starfsmenn ríkisins mánaðamótin eftir 70 ára afmælisdaginn. Með frumvarpinu verður það áfram Óttast að eldri borgarar verði notaðir sem ódýrt vinnuafl á ríkisstofnunum Fari frumvarpið í gegn getur heil- brigðisstarfs- fólk starfað til 75 ára aldurs. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR gert, en heimilt verður að gera nýja ráðningarsamninga við fólk til 75 ára aldurs. Margir hafa óttast að lífeyris- greiðslur verði skertar við þessa breytingu. Það er, að eldri borgarar verði notaðir sem ódýrt vinnuafl þar sem ekki þurfi að greiða í líf- eyrissjóð þeirra. Í umsögnum stéttarfélaga við frumvarpið, það er Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, Ljósmæðra- félags Íslands, Læknafélags Íslands, Alþýðusambands Íslands, Banda- lags háskólamanna og f leiri, er áréttað að útkljá þurfi lífeyrismálin áður en frumvarpið verði að lögum. „Samkvæmt núgildandi lögum ber atvinnurekendum aðeins skylda til að greiða í lífeyrissjóð fyrir starfsfólk til sjötugs og samkvæmt núverandi samþykktum LSR tekur sjóðurinn ekki við greiðslum frá félagsfólki eftir þann aldur,“ segir í umsögn Bandalags háskólamanna. Helgi tekur undir þetta og segist óttast að lífeyrisréttindin verði skert. Reynslan sýni það. „Ef vilji er fyrir hendi til þess að fá eldra fólk til starfa þá verður að koma til móts við það eins og gert er í siðuðum löndum,“ segir Helgi. Bendir Helgi á að í Noregi sé hægt að starfa skattfrjálst fyrir miklu hærri upphæð en hér leyfist. Það verði að vera bitastætt fyrir eldra fólk að fresta starfslokum sínum eða að koma til starfa á nýjan leik. n sigurjon@frettabladid.is UTANRÍKISMÁL Í dag mun Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, halda til Japans þar sem hann tekur þátt í jafnréttisþinginu World Assembly for Women 2022, í boði japanskra stjórnvalda. Í fréttatilkynningu frá skrifstofu forseta segir að Japan hafi litið til Íslands sem fyrirmyndar í leit að leiðum til umbóta á sviði jafnréttis- mála, en Ísland hefur verið í efsta sæti jafnréttislista Alþjóðaefna- hagsráðsins í rúman áratug. Japan vermir 116. sæti. Forseti mun meðal annars funda með Maia Sandu, forseta Moldóvu, sem verður einnig gestur japanskra stjórnvalda. Forsetarnir verða þá einnig heiðursgestir Fumio Kishida, forsætisráðherra Japans, í Akasaka- höll í Tókýó, þar sem þau munu snæða kvöldverð saman. n Forseti Íslands heldur til Japans ser@frettabladid.is STJÓRNSÝSLA Forval er hafið um hönnun á 26 þúsund fermetra stór- hýsi fyrir löggæslu- og viðbragðsað- ila á höfuðborgarsvæðinu. Fimm teymi af Evrópska efna- hagssvæðinu verða valin til þátt- töku, samkvæmt auglýsingu sem birtist í gær. Eftir fyrsta hluta sam- keppninnar keppa tvö teymi um að hanna bygginguna, að því er segir í tilkynningu frá Framkvæmda- sýslunni og Ríkiseignum. „Nýjar höfuðstöðvar löggæslu- og viðbragðsaðila á höfuðborgar- svæðinu, HVH, verður miðstöð þeirra sem gæta að lögum, reglu, björgun og öryggi almennings. Í miðstöðinni munu þessir aðilar fá nútímalega aðstöðu sem auðveldar til muna hina mikilvægu þjónustu og vernd sem veitt er almenningi,“ segir þar enn fremur. n Viðbragsaðilar fá nýtt stórhýsi Guðni Th. verður meðal annars heiðursgestur í kvöldverði hjá for- sætisráðherra Japans. lovisa@frettabladid.is KJARAMÁL Félag íslenskra atvinnu- flugmanna (FÍA) átti góðan fund hjá ríkissáttasemjara í gær. Þar fundaði félagið með samninganefnd ríkisins vegna samninga þyrluflugmanna Landhelgisgæslunnar. Á meðan gengu viðræður SGS og SA hægar. Jón Þór Þorvaldsson, formaður FÍA, segir viðræður síns félags hafa gengið vel. Flugmenn hafa verið samningslausir í nær þrjú ár. „Fólk fór heim með heimavinnu en það er búið að bóka tvo fundi í næstu viku, á miðvikudag og föstu- dag,“ segir Jón. Samningaviðræðum hefur hingað til lítið miðað hjá FÍA fyrir hönd þyrluflugmanna, en í síðustu viku fundaði fjármála- og efnahagsráð- herra með félaginu og eftir það sagð- ist Jón Þór jákvæður fyrir samninga- viðræðunum. Forsvarsmenn SGS og SA gerðu hlé á viðræðum í gærkvöldi. Samningaviðræðum þyrluflugmanna miðar betur Jón Þór Þorvaldsson, formaður FÍA, er fyrir miðju myndarinnar. Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, sagði á Stöð 2 í gær að SGS vildi ekki semja um prósentur heldur aðeins krónu- töluhækkanir. Fréttablaðið náði hvorki tali af Halldóri Benjamín Þorbergssyni, framkvæmdastjóra SA, í gærkvöldi né öðrum forsvars- mönnum stóru stéttarfélaganna. Samninganefndir SGS og SA hyggjast hittast að nýju klukkan 13.00 í dag og þá verður viðræðum haldið áfram. n 4 Fréttir 1. desember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.