Fréttablaðið - 01.12.2022, Page 16

Fréttablaðið - 01.12.2022, Page 16
n Halldór n Frá degi til dags ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is, Lovísa Arnardóttir lovisa@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is. VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Þorvaldur S. Helgason tsh@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Því þá ekki að tengjast betur og endanlega því sem helst hefur aukið hag okkar? Nýlega var tvöföldun frítekju- marks atvinnu- tekna örorkulíf- eyrisþega samþykkt í ríkisstjórn. Sigmundur Ernir Rúnarsson ser @frettabladid.is Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir þingmaður VG og formaður fjárlaga- nefndar Senn líður að lokum þessa árs sem hefur verið viðburðaríkt hjá okkur öllum í samfélaginu. Það er mjög ánægjulegt að geta litið um öxl með stolti yfir því sem hefur verið áorkað á sviði velferðar- mála og það verður spennandi að fylgjast með áframhaldandi vinnu í þeim málaflokki. Mikil vinna hefur farið fram í ráðuneyti félags- og vinnumarkaðsráðherra þar sem lagt hefur verið af stað í tímabæra vegferð til að umbylta löngu stöðnuðu og f lóknu kerfi. Lagt hefur verið fram frumvarp um lengingu endurhæfingartímabils úr 18 mánuðum í 36 mán- uði með möguleika á framlengingu um ár í viðbót, en markmið þess er að tryggja að einstaklingar sem misst hafa starfsgetuna fái endurhæfingar- lífeyri til lengri tíma þar sem starfsendurhæfing með aukna atvinnuþátttöku að markmiði telst raunhæf. Nýlega var tvöföldun frítekjumarks atvinnu- tekna örorkulífeyrisþega samþykkt í ríkisstjórn. Það hækkar nú upp í 200 þúsund, eftir að hafa staðið óbreytt frá árinu 2009. Þetta eru stór og þörf skref í áttina að réttlátara kerfi. Samþykkt var í fjárlaganefnd breytingartillaga þess efnis að örorku- og endurhæfingarlífeyrisþeg- ar fái 60.300 króna eingreiðslu núna í desember í stað þeirra 28 þúsund króna sem gert var ráð fyrir. Í ljósi þeirra aðstæðna sem nú eru uppi í samfélag- inu, ekki síst vegna verðbólgu, er nauðsynlegt að gera betur í þessum málum, eins og ég gerði grein fyrir strax við fyrstu umræðu fjáraukalaga, það er því mikið fagnaðarefni að Alþingi stóð með þess- ari breytingu af einhug. Í farvatninu á vormánuðum er síðan að fjölga hluta- og sveigjanlegum störfum fyrir þennan hóp og einfalda um leið þann hluta kerfisins sem snýr að greiðslum og þjónustu, fjarlægja þá þröskulda sem koma í veg fyrir virkni og að hægt sé að komast í skrefum inn á vinnumarkaðinn. Það sem hefur áunnist á vakt VG og þessi mikilvægu verkefni sem eru fram undan gefa okkur því fullt tilefni til bjartsýni. n Mikilvæg skref á vakt VG gar@frettabladid.is Fimm ára Ríkisstjórn Bjarna Benedikts- sonar og Sigurðar Inga Jóhanns- sonar undir forsæti vinkonu þeirra Katrínar Jakobsdóttur náði þeim áfanga í gær að hafa hangið saman í fimm ár sam- fleytt. Geri aðrir betur í viðsjár- verðum heimi þar sem pólitískar freistingar blasa við í hverju spori. Miðað við það sem á hefur bjátað hingað til og The Three Amigos Norðursins hafa staðið af sér bendir fátt til að slíta þurfi samstarfinu í fyrirsjáanlegri framtíð. Það er ekki eins og þre- menningana eða flokka þeirra greini á um strauma og stefnur. Miðpunkturinn Allt virðist því eins og blómstrið eina á ríkisstjórnarheimilinu þar sem allir hjálpast að ef einhverjir leiðindapúkar eru að fetta sína afskiptasömu fingur út í hvað eina sem þeim flýgur í hug. Á endanum gætu þó málamiðlan- irnar sem gera þarf orðið til þess að stefnan leiti of mikið inn á við og sogist inn í þungamiðju sem mætti líkja við hugmyndafræði- legt svarthol þar sem hvorki er farið til vinstri né hægri, upp né niður, norður eða suður – þang- að sem þjóðin stefnir nú reyndar af sjálfsdáðum til að sleikja sárin og mynda á sér fæturna fyrir greiningardeild peningastefnu- nefndar Seðlabankans. Og er bara slétt sama. n Endurteknar skoðanakannanir benda til þess að meirihluti landsmanna, sem á annað borð taka afstöðu, er hlynntur því að Ísland fái fulla aðild að Evrópu- sambandinu. Það er jafn eðlilegt og það er skiljanlegt. Æ fleiri landsmenn átta sig á því að helstu samfélagsbætur sem Íslendingar hafa fundið á eigin skinni á síðustu þremur áratugum eru ættaðar frá sambandi evrópskra þjóða sem kappkostar í öllu sínu regluverki að auka sam- keppnishæfni og viðskiptafrelsi hverrar aðildar- þjóðar á öllum sviðum þjóðlífsins, almenningi til hagsbóta, en ekki bara sumum. Fámenna og spillta kunningjasamfélagið á Íslandi, sem hefur lagt sig í framkróka við að hygla sérhagsmunum á kostnað sanngirni og samkeppni, hefur átt undir högg að sækja hér á landi eftir að áhrifamesti alþjóðasamningur sem íslensk stjórnvöld skrifuðu undir á síðustu öld, tók gildi. Hann hverfist um fjórfrelsi evr- ópska efnahagssáttmálans, skilvirkustu leiðina að bættum hagvexti – og hefur reynst íslenskri þjóð svo farsæll að engum heilvita manni hér á norðurhjara dettur til hugar að segja skilið við hann. Og þar af leiðandi hugsar æ stærri hluti þjóðarinnar á þennan veg: Því þá ekki að tengj- ast betur og endanlega því sem helst hefur aukið hag okkar? Af hverju ekki að klára hálfnað verk í þeim efnum? Og geta þar með hlutast til um regluverkið sem berst hingað til lands frá höfuð- stöðvum ESB, í stað þess að vera áhorfendur að atkvæðagreiðslunum? Þetta er stærsta mál samtímans á Íslandi. Með fullri aðild eykst alþjóðasamvinna enn frekar sem er eina raunverulega tryggingin fyrir aukinni hagsæld alls almennings og atvinnulífs. Og skrefið í átt að fullri aðild er auðvelt. Þar þarf Ísland engar undanþágur. Seta okkar við ákvarðanaborðið er ekki flóknari en svo. Hinn kosturinn er að hanga á innihaldslausu fullveldi, sem framselur atkvæðaréttinn yfir á meginland Evrópu. Það er enginn bragur á því. Ekki frekar en að hanga áfram með aumasta gjaldmiðil álfunnar sem fer með ofbeldi á hendur heimilum þessa lands og gerir efnahag þeirra fullkomlega ófyrirsjáanlegan. Gjaldmið- ill sem þarfnast verðtryggingar og breytilegra vaxta er ekkert annað en hornsteinn kúgunar á hendur alþýðu fólks. Full aðild bætir hag sjávarútvegs, landbúnaðar og iðnaðar, svo og kjör neytenda og mun spara almenningi, fyrirtækjum og ríkissjóði hundruð milljarða króna með lægri vöxtum. Og það vill aukinn meirihluti landsmanna, að sjálfsögðu. n Stóra kjarabótin SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 1. desember 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.