Fréttablaðið - 01.12.2022, Síða 32

Fréttablaðið - 01.12.2022, Síða 32
AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL Ásahreppur, Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur Samkvæmt 30. og 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er kynnt tillaga aðalskipulagsbreytingar, tillögur nýrra deiliskipulagsáætlana og skipulagslýsing eftirfarandi skipulagsáætlana: 1. Selhöfðar í Þjórsárdal; Verslunar- og þjónustusvæði; Aðalskipulagsbreyting – 2106076 Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti á fundi sínum þann 16. nóvember 2022 að kynna tillögu aðalskipulagsbreyt- ingar sem tekur til skilgreiningar á verslunar- og þjónustusvæði í mynni Þjórsárdals. Innan svæðisins er gert ráð fyrir uppbygg- ingu á þjónustumiðstöð. Samhliða er lögð fram tillaga að deiliskipulagi sem tekur til svæðisins. í breytingunni felst að sett er inn nýtt verslunar- og þjónustusvæði VÞ26 og skógræktar- og landgræðslusvæðið SL17 minnkað samsvarandi. Felld er út aðkoma að Selfit og verður hún sameiginleg með aðkomu að þjónustumiðstöð við Selhöfða. Settur er inn nýr vegur frá þjónustumiðstöð að hóteli í Reykholti. Reiðleið er færð nær Þjórsárdalsvegi á kafla en að öðru leyti er hún aðlöguð að nýjum vegi að Reykholti. Gert er ráð fyrir gönguleið frá afþreyingar- og ferðamannasvæði í Sandártungu (AF9) yfir VÞ26 og að afþreyingar- og ferðamanna- svæði í Selfit (AF10). 2. Selhöfðar í Þjórsárdal; Þjónustumiðstöð; Deiliskipulag – 2110091 Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti á fundi sínum þann 16. nóvember 2022 að kynna tillögu er varðar nýtt deili- skipulag að Selhöfðum í Þjórsárdal. Um er að ræða deiliskipulag sem tekur til ferðamannasvæðis í Sandártungu í Þjórsárdal á um 52 ha svæði þar sem m.a. gert er ráð fyrir þjónustumiðstöð sem þjóna muni öllum Þjórsárdal. Innan deiliskipulags er gert ráð fyrir byggingarheimildum fyrir þjónustumiðstöð, gistihúsi/smáhúsi, aðstöðuhúsi auk salernishúsa og spennistöðvar. 3. Borg í Grímsnesi; Vesturbyggð; Ný byggð á reit ÍB2, I14 OG I15; Deiliskipulag – 2210061 Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 16. nóvember að kynna skipulagslýsingu sem tekur til deiliskipulagningar á reitum ÍB2, I14 og I15 innan þéttbýlisins að Borg í Grímsnesi. Deiliskipulagssvæðið tekur til svæðis vestan Skólabrautar á Borg og er um 16 ha að stærð. Skipulagssvæðið afmarkast af Biskupstungnabraut og fyrirhuguðu miðsvæði í suðri og suðaustri, tjaldsvæði og Skólabraut í austri og opnu svæði í norðri. Mörk svæðisins til vesturs ráðast af mörkum land- eigna í eigu sveitarfélagsins. 4. Borg þéttbýli; Verslunar-, þjónustu- og íbúðalóðir við Miðtún; Deiliskipulag – 2210039 Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 16. nóvember að kynna deiliskipulagstillögu sem tekur til þéttbýlisins að Borg í Grímsnesi. Um er að ræða 6 nýjar verslunar- og þjónustulóðir þar sem á fjórum er heimild fyrir íbúðum á efri hæð. Í skilgreiningu á miðsvæði kemur fram að gera megi ráð fyrir blöndu af verslun og þjónustu og einnig íbúðum, aðallega á efri hæðum húsa. Æskilegt er að atvinnustarfsemi geti þróast innan svæðisins í bland við íbúðabyggð. Starfsemi á lóðunum getur verið af ýmsum toga og skal horft til skilgreiningar á miðsvæði og markmiða þessa skipulags þegar mat er lagt á það hvaða starfsemi hentar innan reitsins. Má þar nefna gistiheimili, veitinga- og menningartengdan rekstur, litlar verslanir með áherslu á framleiðslu úr héraði, handverksiðnað, smærri verkstæði, gallerí o.fl. Einnig er gert ráð fyrir eldsneytissölu og hleðslu- stöðvum fyrir rafbíla. 5. Borg í Grímsnesi; Borgarteigur; Íbúðarbyggð og hesthúsahverfi; Deiliskipulag – 2210030 Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 16. nóvember að kynna deiliskipulagstillögu sem tekur til Borgarteigar, landbúnaðarsvæðis við Minni-Borg golfvöll, Móaflöt 1 og Móaflöt 2-11. Svæðið er staðsett sunnan Bisk- upstungnabrautar og austan Sólheimavegar. Með nýju deiliskipulagi er afmarkað svæði fyrir 12 íbúðalóðir og hesthúsahverfi. Íbúðalóðir eru með rúmum byggingarheimildum og er heimilt að stunda þar léttan iðnað, skógrækt og húsdýrahald. Áhersla er lögð á góðar göngutengingar innan svæðisins og að helstu þjónustum sem þéttbýlið á Borg hefur upp á að bjóða. Gott aðgengi gangandi og hjólandi vegfarenda verður tryggt með hjóla- og göngustíg samhliða Sólheimavegi, milli Borgar og Sólheima. Samkvæmt 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér tilkynnt um óverulega breytingu á aðalskipulagi: 6. Skyggnir L197781; Breytt landnotkun; óveruleg breyting á aðalskipulagi – 2208057 Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti á fundi sínum þann 2. nóvember 2022 óverulega breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins þar sem skilgreindur er verslunar- og þjónustureitur innan lands Skyggnis. Skipulagsstofnun hefur veitt samþykki fyrir málsmeð- ferð á grundvelli 2. mgr. 36. Skipulagslaga er varðar óverulega breytingu á aðalskipulagi þar sem viðkomandi heimildir fara að óverulegu leiti umfram núverandi heimildir vegna verslunar- og þjónustutengdrar starfsemi á landbúnaðarlandi. Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga eftirfarandi deiliskipulagsbreytingar: 7. Lækjartún II L215415; Tengivirki; Deiliskipulagsbreyting – 2209081 Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkti á fundi sínum þann 16. nóvember 2022 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi í landi Lækjar- túns II L215145. Með deiliskipulagsbreytingunni verður bætt við 5 lóðum austan við lóð tengivirkis. Á nýjum lóðum er heimilt að byggja upp hreinlegan orkufrekan iðnað. Með breytingunni stækkar skipulagssvæðið úr ríflega 2 ha í um 8 ha. 8. Vaðnes; Frístundabyggð; 3. áfangi; Deiliskipulag – 2204055 Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 16. nóvember að auglýsa tillögu að nýju aðalskipulagi sem tekur til hluta frístundasvæðis F26 innan aðalskipulags Grímsnes- og Grafningshrepps. Innan deiliskipulagsins er gert ráð fyrir 65 sumarhúsalóðum á 54 hektara svæði. 9. Bíldsfell 1 L170812; Frístundasvæði F20; Deiliskipulag – 2202010 Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 16. nóvember 2022 að auglýsa tillögu nýs deiliskipu- lags í landi Bíldfells 1. Í deiliskipulaginu fellst skilgreining 30 frístundalóða á um 24,5 ha svæði merkt F20 innan aðalskipulags sveitarfélagsins. 10. Skjaldborg og Kerling; Fjallasel; Deiliskipulag – 2211018 Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 16. nóvember 2022 að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi sem tekur til fjallaselsins Skjaldborgar og Kerlingar. Markmið deiliskipulagstillögunnar er að setja ramma utan um uppbyggingu svæðisins og setja skilmála um framtíðaruppbyggingu. Í deiliskipulaginu felst staðfesting á núverandi landnotkun, auk þess að gera ráð fyrir stækkun núverandi skála og/eða byggingu nýs húss. Gisting getur verið fyrir allt að 40 gesti. Skipulagssvæðið er um tæpur 1,2 ha. Deiliskipulagið er í samræmi við aðalskipulag Bláskógabyggðar 2015-2027 en þar er svæðið skilgreint sem af- þreyingar- og ferðamannasvæði, AF8. 11. Gatfellsskáli; Fjallasel; Deiliskipulag – 2211017 Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 16. nóvember 2022 að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi sem tekur til fjallaselsins Gatfellsskála í Bláskógabyggð. Markmið deiliskipulagstillögunnar er að setja ramma utan um uppbyggingu svæðisins og setja skilmála um framtíðaruppbyggingu. Í deiliskipulaginu felst staðfesting á núverandi landnotkun, auk þess að gera ráð fyrir stækkun núverandi skála og/eða byggingu nýs húss. Gisting getur verið fyrir allt að 20 gesti. Skipulagssvæðið er um tæpur 1 ha. Deiliskipulagið er í samræmi við Aðalskipulag Bláskógabyggðar 2015-2027 en þar er svæðið skilgreint sem af- þreyingar- og ferðamannasvæði, AF8 Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrifstofutíma embættisins. Að auki er hægt að nálgast tillögur á vefslóðinni www.utu.is. Þá eru gögnin aðgengileg á heimasíðum sveitarfélag- anna, www.asahreppur.is www.blaskogabyggd.is, www.floahreppur.is, www.gogg.is og www.skeidgnup.is. Mál nr. 1 -6 innan auglýsingar eru skipulagsmál í kynningu frá 1. desember 2022 til og með 22. desember 2022. Mál nr. 7- 11 innan auglýsingar eru skipulagsmál í auglýsingu frá 1. desember 2022 með athugasemdafrest til og með 13. janúar 2022. Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu UTU Dalbraut 12, Laugarvatni eða með tölvupósti á netfangið skipulag@utu.is Vigfús Þór Hróbjartsson Skipulagsfulltrúi UTU Við ráðum WWW.RADUM.IS | 519 6770 | RADUM@RADUM.IS Stjórnendaleit Reynsla og gott tengslanet sérfræðinga Ráðum skilar árangri þegar finna þarf æðstu stjórnendur eða fólk í stjórnir fyrirtækja. Ráðningar millistjórnenda og sérfræðinga Góður gagnagrunnur, gott tengslanet og ára­ löng reynsla á ráðningarmarkaði eykur líkurnar á því að finna hæfasta einstaklinginn í starfið. Almennar ráðningar á markaði Öflun umsækjenda í almenn störf er ein helsta áskorun fyrir tækja í dag. Þekking á markaðnum er því mikilvæg og þar skiptir reynslan miklu máli. Með leit í gagna grunni eða aug lýsingu í viðeigandi miðlum aðstoðar Ráðum fyrirtæki við að finna hæfasta ein staklinginn í starfið. Sveigjanleg nálgun Sérstaða Ráðum liggur í sveigjanlegri nálgun á ráðningar verkefnið. Fyrir utan að sjá um allt ráðningar ferlið komum við til móts við þarfir fyrir tækja með því að sjá um hluta þess ef þörf krefur, t.d. bakgrunns kannanir, hæfnis mat eða starfs tengdar æfingar. Matstæki Ráðum notast við nýjustu aðferðir við að meta hæfni og persónuleikaþætti sem geta skipt sköpum í ráðningum. Ráðum er í sam starfi við banda ríska mannauðs lausna fyrirtækið CEB sem er í farar broddi í persónu leika prófum og öðrum mats tækjum sem eru sér stak lega hönnuð til að greina sérstöðu og hæfileika ein staklinga áður en ráðning fer fram. Þannig er hægt að finna hæfasta einstaklinginn með talsverðri ná kvæmni. Persónu leika matið OPQ32 og DSI (Dependa bility & Safety Index) skimunar prófið hafa t.d. verið stöðluð og staðfærð að íslenskum markaði. Ráðgjöf við starfslok Viðskilnaður fyrirtækis við starfsmann skiptir höfuð máli þegar fyrirtækið á frum kvæðið að starfs lokum. Ráðum býður upp á við tal við ráð gjafa sem felur m.a. í sér upplýsingar um atvinnu markaðinn, ráðgjöf varðandi starfs­ ferilskrá og kynningarbréf og hagnýt atriði varðandi starfs leit og atvinnu viðtöl. Ráðum býður upp á ráðgjöf og ráðningar þjónustu sniðna að þörfum viðskiptavinarins.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.