Fréttablaðið - 01.12.2022, Page 38
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Böðvar Magnússon
fv. bankaútibússtjóri,
Vogaseli 5, 109 Reykjavík,
lést laugardaginn 26. nóvember.
Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 9. desember klukkan 13.
Sigrún Guðmundsdóttir
Magnús Böðvarsson
Ingibjörg Böðvarsdóttir
Jesús Loayza
Böðvar Manuel Loayza
Víctor Rúnar Loayza
Hjartans þakkir sendum við öllum
þeim sem sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns, pabba,
tengdapabba, afa og langafa,
Gunnars Árnasonar
Kirkjusandi 3,
Reykjavík.
Kristín G. Andrésdóttir
Andri Þór Gunnarsson Inger Anna Aikman
Þórdís Þ. Aikman Andrad. Bjarki Ágúst Guðmundsson
Kristín A. Aikman Andrad. Arnar Steinn Þorsteinsson
Andri Þór Aikman Arnarsson
Elsku hjartans drengurinn okkar
og bróðir,
Árni Sævar Gylfason
Austurbrún 6A, Reykjavík,
lést á Borgarspítalanum í Fossvogi
25. nóvember. Útförin fer fram frá
Fossvogskirkju mánudaginn 5. desember klukkan 13.
Gylfi Ómar Héðinsson Svava Árnadóttir
Hörður Már Gylfason Björk Ólafsdóttir
Inga Rut Gylfadóttir
og systkinabörn
Elsku móðir okkar, tengdamóðir,
systir og amma,
Karolína Smith
listakona,
Snorrabraut 87,
lést á Elliheimilinu Grund sunnudaginn
20. nóvember. Útförin fer fram í Dómkirkjunni
fimmtudaginn 1. desember klukkan 15.
Hjartans þakkir til starfsfólksins á Grund.
Óli Kári Ólason Þuríður Elín Sigurðardóttir
Eggert Páll Ólason Sveindís Ýr Sigríðar Sveinsdóttir
Óskar Smith Grímsson
og barnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Högni Þórðarson
fv. bankaútibússtjóri,
áður til heimilis á Ísafirði,
lést á Hjúkrunarheimilinu Eir í Reykjavík
aðfaranótt þriðjudagsins 29. nóvember.
Útförin verður auglýst síðar.
Kristrún Guðmundsdóttir
Hörður Högnason Una Þóra Magnúsdóttir
Þórður Högnason Jolanta Högnason
Kristín Högnadóttir Sigurður A. Þóroddsson
Guðmundur Kr. Högnason Judy-Ann Norton
barnabörn og barnabarnabörn
Þökkum auðsýnda samúð
og virðingu vegna fráfalls og
útfarar okkar ástkæra
Jóns Ólafs Vigfússonar
frá Vestmannaeyjum.
Guð blessi ykkur.
Selma Pálsdóttir og fjölskylda
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, dóttir, systir og amma,
Hrönn Helgadóttir
lést á sjúkrahúsinu í Haugasundi
þann 23. nóvember.
Útförin fer fram í Noregi 2. desember
kl. 12.00 að íslenskum tíma. Beint streymi
verður frá útförinni á slóðinni: https://m.youtube.com/
channel/UCYpoH1xwAhonkqkiNfIXd9g/featured?cbrd=1
Opnað verður fyrir streymið kl. 11.55.
Kristján Þór Kristjánsson
Kristjana Hjartardóttir
Soffía Kristjánsdóttir Símon Sessilíus Guðlaugsson
Lisa Dögg Kristjánsdóttir Jesper Christensen
Kristjana Kristjánsdóttir Håkon Rushfeldt
Kristinn Kristjánsson Kristine Gabrielsen Tveit
Svanberg Rúnar Kristjánsson Line Grannes Varne
og barnabörn
Stúdentakjallarinn býður til tíu
ára afmælisveislu í kvöld þar sem
Moses Hightower kemur fram.
arnartomas@frettabladid.is
Í dag eru liðin tíu ár síðan Stúdentakjall-
arinn opnaði dyr sínar undir Háskóla-
torgi við Háskóla Íslands. Í tilefni þess
mun Moses Hightower troða upp í
kjallaranum í kvöld til að fagna tíma-
mótunum með gestum.
Upprunalegi Stúdentakjallarinn var
opnaður árið 1975 og var rekinn í rúm
30 ár áður en honum var lokað árið 2007
þegar Háskólatorg var tekið í notkun árið
2007. Félagsstofnun Stúdenta stóð síðan
að því að endurvekja Stúdentakjallarann
sem hefur síðan verið mikilvægur hluti
af félagslífi Háskólans, sem og fastagesta
utan hans þar sem Vesturbærinn er ein-
staklega pöbbasvelt hverfi.
„Við gerum ráð fyrir því að hlutfall
gesta sem stunda háskólanám nemi um
80 prósentum, en við fáum einnig mikla
umferð frá þeim sem vinna í kring um
Vesturbæinn og Vatnsmýrina,“ segir
Auðunn Orri Sigurvinsson, rekstrarstjóri
Stúdentakjallarans. „Við tölum oft um
hvað við erum heppin með kúnnahóp
og það verður augljóst þegar litið er til
umgengni og orkunnar almennt inni á
Stúdentakjallaranum. Eins og alls staðar
annars staðar er samkeppni, en við erum
einfaldlega með hagstæðustu verðin á
þessu svæði.“
Alltaf pláss
Til viðbótar við að bjóða upp á mat og
drykk stendur Stúdentakjallarinn fyrir
ýmsum viðburðum sem hafa margir
hverjir orðið að rótgrónum hefðum í
gegnum árin. Þar má sem dæmi nefna
tónleika, umræður, uppistand auk þess
sem kvikmyndum og stórum íþróttavið-
burðum er oft varpað á risaskjá.
„Við reynum að halda eins marga og
fjölbreytta viðburði og hægt er og nem-
endafélögin og Stúdentaráð Háskóla
Íslands eru til dæmis mjög dugleg í að
halda ókeypis viðburði fyrir félagsmenn
og nemendur,“ segir Auðunn Orri sem
bætir við að kjallarinn hafi alltaf verið
frábær stökkpallur fyrir efnilegt tón-
listarfólk og skemmtikrafta. „Svo erum
við með happy hour alla daga vikunnar,
en síðasti föstudagur hvers mánaðar er
haldinn hátíðlegur sem Skítblankur
föstudagur.“
Þegar horft er fram á veginn segir
Auðunn Orri að unnið sé að því að bæta
aðstöðuna enn frekar fyrir viðburðahald.
„Við höfum verið að vinna í því að bæta
hljóðbúnað Stúdentakjallarans til þess
að geta haldið fleiri tónleika, við stefnum
á að vera komin með allan búnað og
græjur til þess að tónlistarfólk þurfi ekki
að troða trommusettum í skott til þess
að spila hjá okkur,“ segir hann. „Stúd-
entakjallarinn hefur alltaf verið öruggur
staður þar sem allir geta komið saman og
fengið sér mat og drykk. Það skiptir ekki
máli hvort að þú ert að læra fyrir loka-
próf, fagna ritgerðarskilum eða taka því
rólega eftir langan vinnudag, það er alltaf
pláss fyrir þig.“ n
Stúdentakjallarinn tíu ára
Auðunn Orri segir að það sé alltaf pláss fyrir þig í kjallaranum, hvort sem þú ert að flýja prófalestur eða fagna ritgerðarskilum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Stúdentakjallarinn hefur
alltaf verið öruggur
staður þar sem allir geta
komið saman og fengið
sér mat og drykk.
1918 Konungdæmi Serba, Króata og Slóvena er stofnað
og verður síðar konungsríkið Júgóslavía.
1930 Togarinn Apríl ferst í óveðri með 18 mönnum.
1931 Minnisvarði um Hannes Hafstein er afhjúpaður við
Stjórnarráðshúsið.
1932 Sjálfvirkar símstöðvar eru teknar í notkun í Reykja-
vík og Hafnarfirði og missa þá margir tugir síma-
stúlkna vinnu sína.
1955 Rosa Parks neitar að standa upp fyrir hvítum manni
í strætisvagni í Bandaríkjunum og er handtekin
vegna þess.
1974 Hús Jóns Sigurðssonar er formlega vígt í Kaup-
mannahöfn.
1983 Ríkisútvarpið byrjar útsendingar á FM-bylgju sem
Rás 2.
1991 Hilmar Örn Hilmarsson hlýtur Felix-verðlaunin fyrir
tónlist sína í kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar,
Börnum náttúrunnar.
1994 Þjóðarbókhlaðan er opnuð í Reykjavík.
2005 Suður-Afríka heimilar hjónabönd samkynhneigðra.
Merkisatburðir
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 1. desember 2022 FIMMTUDAGUR