Fréttablaðið - 01.12.2022, Page 44
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@
frettabladid.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrir@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078:
Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolbeinn@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Barónsstígur 8-24
Akureyri 24/7
Reykjanesbær 24/7
Kirkland tvöfaldur
jólagjafapappír 36m
2.699
Kirkland jólamerkimiðar
Torc ilmkerti 3 stk.
kr./rúllan
2.999 kr. pk.
3.499 kr. pk.
við komum með
til þín
Extra kósý
innpökkunarkvöld
Söngvaskáldið Snorri Helgason kemur fram í Hörpu í dag og sendir frá sér
nýtt jólalag á morgun. MYND/MAGNÚS LEIFSSON
Snorri Helgason segir að
íslenska indí-senan sé að taka
við sér eftir áralangan dvala.
Snorri er í hópi tónlistarfólks
sem kemur fram við hátíðlega
athöfn í Hörpu í dag í tilefni
dags íslenskrar tónlistar þar
sem tónlistarfólk er heiðrað.
ninarichter@frettabladid.is
Í dag er dagur íslenskrar tónlistar
haldinn hátíðlegur. Af þessu til-
efni verður stutt athöfn í Hörpu þar
sem einstaklingum og hópum eru
veittar viðurkenningar fyrir góð
störf í þágu íslensks tónlistarlífs.
Þá kemur landsþekkt tónlistarfólk
fram og flytur tónlist. Meðal þeirra
er söngvaskáldið Snorri Helgason
sem leikur eigin endurútsetningu
á lagi úr ævintýrinu Pílu pínu eftir
Kristján frá Djúpalæk.
Með nýtt jólalag
Snorri hefur í nógu að snúast þessa
dagana. Hann vinnur að nýrri plötu
sem hann stefnir á að taka upp
í janúar, auk þess sem hann sendir
frá sér nýtt frumsamið jólalag sem
kemur út á morgun.
„Ég gerði barnaplötu fyrir þremur
árum sem heitir Bland í poka. Þetta
nýja lag er barnajólalag sem popp-
aði inn í hausinn á mér og ég fíla.
Þetta er eitthvert brasilískt rugl,“
segir Snorri léttur. „Ég var alltaf
þarna á Skuggabaldri og sá um að
bóka það. Síðan það lokaði er ég
búinn að vera að semja fullt af stöffi
og það er að ganga ágætlega,“ segir
hann.
Talandi um tónleikastaði, hefur
umræðan um skort á slíku húsnæði
verið nokkuð hávær seinni ár.
„Staðan er skrýtin,“ segir Snorri
spurður um málið. „Það eru lífs-
mörk á Húrra, sem er að fara aftur
í gang. Steini Stef ætlar að breyta
staðnum aðeins og það verður geð-
veikt að fá þann stað aftur inn. Það
er staður sem getur tekið 300 manns
en það er allt í lagi og næs ef það eru
80 manns. Alvöru sveitt venue,“
segir hann. Að sögn Snorra eru
tónleikastaðir fáir í miðborginni.
„Þarna er Mengi sem er mjög niche
dót, það er staður sem á sína senu.
Svo er Gaukurinn, sem er eiginlega
eins. Með sína senu sem er þetta
drag-dót og allt það dæmi. Það
vantar almennan stað.“
Á bak við tjöldin í senunni
Snorri segist búa að dýrmætri
reynslu sem bókari fyrir tónleika-
staði og má gera því í skóna að
það gefi honum dýrmæta innsýn í
íslenskt tónlistarlíf. „Ég var á Húrra
í fimm ár og hef alltaf verið á bak
við tjöldin í þessu líka,“ segir hann.
„Þegar ég var að vinna þar horfði ég
á það þegar hipphoppið tók yfir. Við
notuðum ekki trommusettið eða
bassamagnarana í tvö ár. Það voru
allir að gera hipphopp.“
Snorri segir að rokkið hafi ekki átt
mikið upp á pallborðið á þeim tíma,
að undanskilinni metal-senunni.
„Þegar ég byrjaði í Sprengjuhöllinni
voru þetta alltaf indí-hljómsveitir.
Nú er það að koma aftur. Það er indí-
senan og Póstdreifing og allt það,
sem er mjög skemmtilegt.“
Aðspurður hvort endurkoma
senunnar sé af leiðing af inniveru
og tónleikaskorti í heimsfaraldri,
svarar Snorri: „Ég get ekki útskýrt
það. En framboðið á jólatónleikum
er algjör bilun og hefur aldrei verið
meira. Það gengur illa að selja á allt,
líka á Jólagesti Björgvins og Bagga-
lút,“ segir hann. „Það gengur verr
en fyrir Covid. Fólk er ekki alveg
komið í æfingu, að fara á tónleika.
Ég heyri frá fólki sem vinnur venju-
lega vinnu, ekki eins og ég, að á
stórum vinnustöðum vilji fólk bara
vinna heima hjá sér og sé enn í svo-
leiðis fasa,“ segir Snorri og bætir við
að fólk þurfi að endurlæra að vera
í kringum annað fólk. „Þessi hjól
eru lengi að fara af stað ef þau eiga
að vera aftur eins og þau voru fyrir.“
Erfitt að spá í framtíðina
Snorri segir að hipphopp-senan
standi þrátt fyrir það mjög sterkt.
„Það teygist á þessu hipphopp-hug-
taki. Aron Can er poppari, þó að
hann sé í grunninn úr hipphoppinu.
Ég veit ekki hvernig hann myndi
skilgreina sig en hann er til dæmis
hjúts, einn af þessum stærstu. Svo
er Emmsjé Gauti algjör hipphopp-
kakkalakki. Hann lifir af og er vin-
sæll, hvað sem gerist.“
Að sögn Snorra er erfitt að segja
til um hvað gerist næst. „Ég fann að
þegar ég var á Húrra var allt í hipp-
hoppi og mjög textabaserað. Ef það
er eitthvað eitt sem er voða vinsælt
og allir eru að gera, þá kemur alltaf
eitthvað nýtt sem er algjörlega öfugt
við það. Í indí-rokkinu er til dæmis
miklu minni áhersla á texta.“ n
Íslenska indí-senan snýr til
baka úr áralöngum dvala
Ég horfði á það þegar
hipphoppið tók yfir.
Við notuðum ekki
trommusettið eða
bassamagnarana í tvö
ár. Það voru allir að
gera hiphop.
Snorri Helgason
ninarichter@frettabladid.is
Sjónvarpsþættirnir Wednesday hafa
nú þegar slegið met Netflix-veit-
unnar með flestum klukkutímum
streymdum á einni viku. Þættirnir
voru frumsýndir þann 23. nóvem-
ber og notendur streymisveitunnar
höfðu horft á þættina í 341,2 milljón-
ir klukkustunda samkvæmt gögnum
streymisveitunnar á þriðjudag.
Þættirnir eru afleiða hinna geysi-
vinsælu bíómynda og sjónvarps-
þátta um Addams-fjölskylduna,
grín-hryllingsþátta sem nutu ein-
stakra vinsælda á tíunda áratugnum.
Leikkonan Jenna Ortega fer
með aðalhlutverk. Sagan hverfist
um unglingsstúlkuna Wednesday
Addams, sem hefur nám í fram-
haldsskóla fyrir einstaklinga á
jaðrinum sem búa yfir yfirnátt-
úrulegum hæfileikum. Þáttunum
leikstýrir Tim Burton, sem hefur
sérhæft sig í dekkri stefum fjöl-
skyldumynda með einstöku hand-
bragði og húmor. Einvalalið leikara
túlkar kunnuglegar persónur úr
heimi Addams-fjölskyldunnar. Þá
er Christina Ricci meðal leikenda,
en hún túlkaði persónu Wednesday
í bíómyndunum fyrir tveimur ára-
tugum síðan. Verðlaunatónskáldið
Danny Elfman semur tónlistina. n
Miðvikudagur slær met hjá Netflix
Wednesday Addams er snúin aftur í
nýjum þáttum. NETFLIX/SKJÁSKOT
26 Lífið 1. desember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ