Fréttablaðið - 01.12.2022, Page 46
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Faxafeni 11 • Sími 534 0534
Allt fyrir
veisluna
Skreytingar
Borðbúnaður
Búningar
Tækjaleiga
Ebbu Guðnýjar
Guðmundsdóttur
n Bakþankar
Jólin eru yndisleg. En þegar maður
er þreyttur, að vinna mikið, jafnvel
með lítið á milli handanna eða
miklar skuldir, glímir við heilsu-
leysi eða eitthvað af ofantöldu geta
þau orðið kvíðvænleg. Líka bara ef
maður er með fullkomnunaráráttu
eða hangir of mikið á Instagram.
Jólin eru hátíð barnanna. Þau
eru í hjartanu og þau koma, þó að
maður geri ekki þetta og hitt.
Stundum held ég að eitt helsta
hlutverk okkar foreldra sé að segja
unga fólkinu okkar að minnka
kröfur og væntingar. Lífið er
skemmtilegra þegar maður dæmir
sjálfan sig mildilega. Þorir að vera
eins og manni hentar og hefur ekki
áhyggjur af því hvort eitthvað sé
rétt, rangt, gott slæmt eða nógu gott
hjá manni.
Mér finnst mamma eiginlega
hafa verið í fullri vinnu alla ævi við
að segja mér að það sem ég geri sé
nógu gott. Að ég sé nógu góð. Af því
það er auðvelt að gleyma því inni á
milli og því fylgir vanlíðan.
Ein sagði við mig í gær að hún
væri í veikindaleyfi og loksins þætti
henni jólin yndisleg. Þau hefðu
hingað til verið vesen og allt sem
truflaði vinnuna. Núna ætlaði hún
að njóta með börnunum sínum.
Mig langar að deila aðventuráði
frá mömmu með öllum þeim sem
finna fyrir jólaundirbúningskvíða.
Það á allt að vera í drasli fram að
jólum. Þá er svo gaman þegar allt
verður fínt rétt fyrir jól. Allt verður
enn þá hátíðlegra og fallegra. Hún
á jólagjafapoka (og ég líka) sem
öllum gjöfum er stungið inn í. Mjög
fljótlegt. Hún setur límmiðakort
á efnið en ég endurnýti mín kort
til að einfalda mér lífið. Þannig að
eiginmaðurinn og börnin fá alltaf
sömu jólamerkimiðana hvert ár.
Þau kvarta ekki.
Eins og sonur minn segir þegar ég
styn yfir einhverju hjá mér. Í gríni
auðvitað en öllu gríni fylgir einhver
alvara: ,,Mamma, you do you.“
Hárrétt. Gleðilega aðventu! n
Jólin
Verslun opin 11-20 alla daga ̵ IKEA.is
Nýtt
VINTERFINT
merkimiðar
195,-/24 í setti
VINTERFINT gjafapappír
495,-/2 í setti
VINTERFINT kökustandur
2.490,-
VINTERFINT kanna
2.290,-
Jólin þín
byrja í IKEA
©
Inter IKEA System
s B.V. 2022
Frábær
apptilboð
á hverjum
degi til jóla
Sæktu
appið