Fréttablaðið - 13.12.2022, Blaðsíða 15
FASTEIGNIR.FRETTABLADID.IS
Fasteignablaðið
50. TBL. 13. DESEMBER 2022
2022
2002 Á traustum
grunni í 20 ár
Grensásvegur 3, 2 hæð 108 Reykjavík Sími 530 6500 heimili@heimili.is heimili.is
ÁRANGUR Í SÖLU
FASTEIGNA
ÓSKAR BERGSSON LÖGGILTUR FASTEIGNASALI
SÍMI 893 2499 OG oskar@eignaborg.is
www.eignaborg.is
Fasteignamarkaðurinn
kynnir til sölu virkilega
glæsilegt, vandað og vel
skipulagt, 328,4 fermetra
einbýlishús við Fróðaþing
í Kópavogi. Húsið er tvær
hæðir með kjallara og 35,8
fermetra innbyggðum bíl-
skúr.
Í húsinu er gólfhitakerfi og mikið
lagt í raflagnir og tölvulagnir.
Innfelld lýsing er að stórum hluta
í loftum og innbyggt ryksugu-
kerfi er í húsinu. Gert er ráð fyrir
aukaíbúð í hluta eignarinnar og
auðvelt að útbúa hana ef vill.
Eignin stendur á 750 fermetra
lóð sem er frágengin að mestu
með tyrfðum flötum, fallega
hlöðnum veggjum og skjólsælli
viðarverönd á baklóð með heitum
potti.
Á neðri hæð er rúmgóð og f lísa-
lögð forstofa með fataskápum og
fataherbergi. Gestasnyrting er
f lísalögð með vegghengdu salerni,
handklæðaofni og innréttingu.
Barnaherbergi I, inn af forstofu
er rúmgott með harðparketi og
sama á við um barnaherbergi II og
III sem eru einnig með fataskáp-
um. Gangur er harðparketlagður.
Baðherbergið er með glugga,
flísalögðu gólfi og veggjum, inn-
réttingu, upphengdu salerni, hand-
klæðaofni og flísalagðri sturtu.
Eldhúsið er bjart og rúmgott
með fallegri gluggasetningu og
harðparketi. Vandaðar viðarinn-
réttingar eru með búrskáp, tækja-
skáp og tengi fyrir uppþvottavél.
Í eldhúsinu er stór eyja og góð
borðaðstaða, og útgengt á skjól-
sæla viðarverönd til suðurs, með
skjólveggjum og heitum potti.
Borðstofa og setustofa eru sam-
liggjandi, parketlagðar og bjartar
með gólfsíðum gluggum í tvær
áttir og útgengi á viðarveröndina
til suðurs.
Gengið er upp á efri hæð hússins
um fallegan parketlagðan stiga.
Sjónvarpshol er með harðparketi,
rúmgott með aukinni lofthæð og
þaðan er útgengt á 16,7 fermetra
þaksvalir.
Hjónaherbergið er afar rúmgott,
parketlagt og með gluggum til
tveggja átta. Inn af því er fata-
herbergi með innréttingum og
baðherbergi með glugga, flísalagt
í hólf og gólf, með innréttingu,
handklæðaofni og flísalagðri
sturtu með sturtugleri.
Þvottaherbergið er rúmgott með
glugga, flísalagt og með góðum
innréttingum með stæðum fyrir
vélar í vinnuhæð, vinnuborði og
vaski.
Húsið er byggt úr forsteyptum
einingum frá Einingasmiðjunni.
Það stendur í grónu og eftirsóttu
hverfi við Vatnsenda í Kópavogi.
Stutt er í leikskóla, skóla og falleg
útivistarsvæði og gönguleiðir.
Í kjallara hússins eru 12,9 fer-
metra geymsla og óskráð, glugga-
laust rými, um 70 fermetrar. Það er
nýtt sem fjölskyldurými. n
Nánari upplýsingar og bókun á
einkaskoðun er í síma 570 4500 og
á netfanginu sigridur@fastmark.is
Glæsilegt einbýli við Vatnsenda
Húsið við Fróðaþing 3 er einkar glæsilegt, á tveimur hæðum og með kjallara og innbyggðum bílskúr. Það stendur á
vinsælum stað við Vatnsenda þaðan sem er stutt í skóla, gönguleiðir og stórkostlegt útivistarsvæði. MYNDIR/AÐSENDAR
Við húsið er viðarverönd til suðurs með skjólveggjum og heitum potti.